Júlíus Sólnes (frh.)
:
Virðulegi forseti. Ég var þar kominn í ræðu minni þegar umræðu var frestað hér fyrir þingflokksfundi í dag að ég lýsti því að okkur þimgmönnum Borgfl. hefði borist óvæntur liðsauki sem kemur fram í skrifum í Morgunblaðinu frá því á sunnudaginn var, en það er nánar tiltekið ritstjórnargrein undir nafninu ,,Reykjavíkurbréf``. Ég held að það sé mjög fróðlegt og nauðsynlegt fyrir alþingismenn á hinu háa Alþingi að hlýða nánar á það sem kemur fram í þessu Reykjavíkurbréfi. Það segir alla söguna og það skýrir á mjög skilmerkilegan og skýran hátt um hvað málið snýst. Nú vil ég segja að ég er ekki í einu og öllu sammála söguskýringum þess sem skrifar Reykjavíkurbréfið að þessu sinni hvað varðar umsögn hans um fyrrv. ríkisstjórnir, en að verulegu leyti þar fyrir utan get ég tekið undir það sem þarna stendur og mér finnst eins og þarna hafi höfundurinn farið í smiðju til okkar borgaraflokksmanna þegar hann er að leggja mat á það þjóðfélagsástand sem hefur skapast hér á Íslandi. Með leyfi hæstv. forseta langar mig til að lesa upp Reykjavíkurbréfið:
,,Vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar, sem tók við völdum sumarið 1971, tók við besta búi sem nokkur ríkisstjórn hefur tekið við. Hún var fljót að eyða þeim fjármunum sem viðreisnarstjórnin hafði safnað í sjóði og í tíð hennar hófst sú óðaverðbólga sem við erum enn að kljást við. Ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar, sem sat frá 1974 til 1978, gerði heiðarlega tilraun til þess að ná tökum á óðaverðbólgunni og hafði náð verulegum árangri vorið 1977. Þá um sumarið voru gerðir kjarasamningar sem eyðilögðu þann árangur á skömmum tíma. Um haustið voru gerðir samningar við opinbera starfsmenn sem voru síst betri. Tilraunum ríkisstjórnarinnar veturinn 1978 til þess að ná aftur tökum á stjórn efnahagsmála og verðbólgunni var mætt með hálfgerðum styrjaldaraðgerðum af hálfu verkalýðshreyfingarinnar og stjórnarandstöðu.
Vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar, sem tók við völdum sumarið 1978 og sat fram á haust 1979, er einhver misheppnaðasta ríkisstjórn sem hér hefur setið.`` --- Ég vil þó skjóta hér inn í að mér sýnist núverandi hæstv. ríkisstjórn ætla að keppa mjög myndarlega við þá ríkisstjórn sem þá sat um að vera einhver misheppnaðasta ríkisstjórn sem hér hefur setið að völdum. --- Og svo held ég áfram: ,,Hún náði að sjálfsögðu engum árangri. Hápunkti stjórnleysis og óðaverðbólgu var svo náð vorið 1983 þegar sú ríkisstjórn sem þá sat skildi eftir sig 130% verðbólgu. Þá mynduðu Sjálfstfl. og Framsfl. ríkisstjórn sem gerði alvarlega tilraun til þess að ná tökum á verðbólguvandanum með töluverðum árangri. Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar hélt áfram því starfi, en hvarf frá völdum haustið 1988 vegna sundurlyndis, óeiningar og samstarfserfiðleika flokksforingjanna sem að henni stóðu.
Þegar litið er yfir farinn veg með þessum hætti verður ljóst að þeir kjarasamningar sem ríkisstjórnin gerði við BSRB í fyrradag eru endapunktur á þeim tilraunum sem hér hafa staðið yfir frá vorinu 1983 til
þess að ná tökum á óðaverðbólgunni. Með þessum kjarasamningum er þeim tilraunum lokið og við blasir tímabil nýrrar kollsteypu í efnahagsmálum, gengislækkanir, verðhækkanir, kjararýrnun og öll sú óáran sem af þessu leiðir. Það er því ekki að ástæðulausu að margir spyrja sjálfa sig og aðra um þessar mundir hvort yfirleitt sé hægt að stjórna þessari þjóð.
Það er einfaldlega staðreynd að hver flokkurinn á fætur öðrum og hver stjórnmálamaðurinn á fætur öðrum gefast upp við þetta verkefni. Þrátt fyrir alla þá reynslu sem við höfum aflað okkur, þrátt fyrir alla þá þekkingu sem þjóðin býr yfir, þrátt fyrir þann fjölda hæfileikamanna sem er að finna í þessu samfélagi virðist íslensku þjóðinni gersamlega ókleift að ná tökum á sjálfri sér og sínum vandamálum.`` --- Ég vil hér aftur fá að skjóta inn í að hér hlýtur höfundur Reykjavíkurbréfsins að eiga við gömlu flokkana fjóra, þ.e. Sjálfstfl., Framsfl., Alþfl. og Alþb., því að það eru einmitt þeir flokkar sem bera alla ábyrgð á því ástandi sem hér hefur skapast, enda hafa þeir til skiptis og í ýmsum samsteypustjórnum farið með stjórn þessa lands allt frá stríðslokum.
Og ég held áfram: ,,Það er alveg sama hvert litið er. Ríkið, hagsmunasamtökin, fyrirtækin, einstaklingarnir, allir þessir aðilar ryðjast um til þess að ná sem mestu í sinn hlut og eira engu þótt það blasi við eins og nú hefur gerst í nokkur missiri að undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar, uppspretta verðmætasköpunar og auðlegðar okkar, sjávarútvegurinn, er á heljarþröm, eigið fé fyrirtækja innan hans hafi brunnið upp á síðustu árum, hvert gjaldþrotið á fætur öðru dynji yfir, heilu byggðarlögin að bresta, atvinnuleysið á næstu grösum. Þrátt fyrir allt þetta leyfir ríkisstjórn Íslands sér, sem er skipuð að mörgu leyti af hæfum mönnum, að semja um hækkun á kaupgjaldi sem enginn grundvöllur er fyrir og engir peningar eru til fyrir því að auðvitað er fásinna að ætla að þessir kjarasamningar verði ekki fyrirmynd annarra kjarasamninga. Forustumenn opinberra starfsmanna sem virðast ekki lifa í nokkrum tengslum við íslenskan raunveruleika láta sér til hugar koma að ríkisstjórn geti lofað fastgengi og verðstöðvun við þessar aðstæður.
Hæstv. fjmrh. gerir tilraun til þess að láta líta svo út sem ekkert sé
athugavert við þessa vitlausustu samninga sem gerðir hafa verið á Íslandi um langt árabil. Það er eins og þessi þjóð geti ekkert lært og að hún sé ótrúlega fljót að gleyma.
Það er von að spurt sé nú þegar við stöndum frammi fyrir enn einni hringferð of mikilla kauphækkana, gengislækkunar, verðhækkana, óðaverðbólgu og nýrra kauphækkana. Það er ljóst að stjórnmálamennirnir hafa gefist upp. Þeir hafa ekki hugmyndaflug til þess að láta sér detta í hug nokkrar aðrar lausnir. Uppgjöf ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar verður einungis borin saman við uppgjöf ríkisstjórnarinnar sem sat 1980--1983. Er þetta sú niðurstaða sem Steingrímur Hermannsson óskaði
sér?
Vandi þjóðfélags okkar er margþættur. Hann snýr að atvinnuvegunum sjálfum sem eru ekki nógu arðbærir vegna þess að fjárfesting í þeim er of mikil. Það væri hægt að bæta rekstrarafkomu útgerðar með því að fækka fiskiskipum eins og margoft hefur verið bent á á þessum vettvangi. Hið sama á áreiðanlega við um frystihúsin. Afkoma þeirra væri betri ef þau væru færri og fengju þar af leiðandi meira hráefni til vinnslu hvert fyrir sig.
Önnur vandamál hafa minna verið til umræðu en eiga sennilega töluverðan þátt í því hvað verðlag er hátt hér, ekki síst á matvöru. Það er annars vegar um að ræða úreltar reglur um hvaða matvæli má flytja inn til landsins og hins vegar skort á samkeppni í þessu fámenna samfélagi. Matarkostnaður er óheyrilega hár hér miðað við það sem tíðkast víða á meginlandi Evrópu og í Bretlandi t.d. Þegar litið er á þennan kostnaðarlið einan þarf engan að undra þótt fólk reyni að knýja fram kauphækkanir, en margfengin reynsla hefur kennt okkur að það hefur enga þýðingu. Verðstöðvanir og verðlagseftirlit hafa heldur ekki megnað að tryggja eðlilegt verðlag á matvörum og öðrum vörum. Hins vegar hefur verulega aukin samkeppni í smásölu seinni árin, ekki síst í matvöru, átt töluverðan þátt í að lækka verðlag, en það dugar ekki til vegna þess að sú samkeppni er á takmörkuðu sviði.
Sundurliðun á verði sýnir að vara hækkar ótrúlega mikið frá framleiðanda til kaupanda, hvort sem um er að ræða vöru sem framleidd er á Íslandi eða flutt inn frá útlöndum. Við eigum við að stríða gömul vandamál sem tengjast hinum hefðbundna landbúnaði sem hefur notið margvíslegrar verndar. En það er engin ástæða til þess að búa til slík vandamál í nýjum búgreinum hvort sem um er að ræða kartöflu- og grænmetisrækt eða kjúklingaframleiðslu svo að dæmi séu nefnd. Þjóðin stendur ekki lengur undir því að halda uppi atvinnugreinum sem ekki geta staðið sig í eðlilegri og frjálsri samkeppni.
Þessi skortur á samkeppni kemur fram á ótalmörgum sviðum. Halda menn að Flugleiðir hefðu boðið hin svonefndu verkalýðssæti á lágum fargjöldum ef Sterling-flugfélagið hefði ekki komið til sögunnar? Er ekki hugsanlegt að flutningskostnaður til landsins væri lægri ef meiri samkeppni væri í skipaflutningum? Og er ekki hugsanlegt að vextir og annar fjármagnskostnaður mundu lækka ef íslenskir bankar og fjármálastofnanir yrðu að standa sig í samkeppni við erlenda banka?
Tilraunir okkar í áratugi til þess að reyna að ná einhverjum tökum á stjórn efnahags- og fjármála okkar hafa að mestu farið út um þúfur. Kjarasamningarnir sem ríkisstjórnin var að gera við BSRB eru vísbending um að við ráðum ekki við þetta verkefni. Þess vegna er nú komið að því að við þurfum að reyna nýjar leiðir. Við verðum að knýja fram lækkun á matarkostnaði landsmanna með því að stórauka frelsi í innflutningi á matvöru. Við höfum ekki efni á því að búa til nýjar og nýjar búgreinar
sem fara umsvifalaust á framfæri skattgreiðenda og neytenda. Þess vegna er orðið tímabært að endurskoða úreltar og gamaldags reglur um innflutning á matvælum. Ef innlendir kjúklingaframleiðendur geta ekki staðið sig í samkeppni við innflutning á kjúklingum, þá eru engar forsendur fyrir kjúklingarækt í þessu landi. Ef innlendir kartöfluframleiðendur geta ekki staðið sig í samkeppni við erlenda kartöfluframleiðendur, þá er ekki grundvöllur fyrir kartöfluframleiðslu í þessu landi. Neytendur geta ekki lengur haldið uppi atvinnugreinum sem standa sig ekki og framkalla síðan kauphækkunarkröfur sem sjávarútvegurinn getur ekki staðið undir.
Ef í ljós kemur að ekki er við framleiðendur að sakast heldur alls kyns milliliði er tímabært að draga þá fram í dagsljósið. Upplýst hefur verið að kjúklingaframleiðandinn fái í sinn hlut 241 kr. fyrir kg sem neytandinn borgar 609 kr. fyrir.
Við verðum að knýja fram lækkun á flutningsgjöldum til landsins með því að hvetja til aukinnar samkeppni í skipaflutningum annaðhvort með innlendum skipum eða erlendum og í vöruflutningum með flugvélum. Þjóðin var tilbúin til að leggja töluvert af mörkum á sínum tíma til að byggja upp öflug fyrirtæki í samgöngum til þess að tryggja forræði okkar sjálfra í þessum efnum. Nú hefur því takmarki verið náð og tímabært að þessi fyrirtæki standi sig í harðri samkeppni hvaðan sem hún kemur. Sú samkeppni kemur neytendur til góða.
Við verðum að knýja fram lækkun á fjármagnskostnaði með því að láta íslenska bankakerfið og fjármálafyrirtæki standa andspænis stóraukinni samkeppni frá
erlendum bankastofnunum. Það kann að vera eina leiðin til þess að draga úr þeim mikla kostnaði sem augljóslega fylgir fjármálakerfi landsmanna. Þetta lokaða kerfi þar sem sjávarútveginum er ætlað að standa undir óarðbærum rekstri á öðrum sviðum gengur ekki upp.
Frændur okkar Danir standa í grundvallaratriðum frammi fyrir áþekkum vandamálum og við. Þeir hafa lifað um efni fram í áratugi eins og við. Þeir standa nú frammi fyrir því að lengra verður ekki haldið á þeirri braut. Það sama á við okkur Íslendinga. Forsætisráðherra Dana undirbýr nú að leggja tillögur um byltingu í efnahagskerfi þjóðarinnar undir þjóðaratkvæðagreiðslu til þess að brjótast í gegnum hið pólitíska kerfi. Kannski er nauðsynlegt að grípa til slíkra úrræða hér til þess að rífa þjóðina upp úr vítahring vitlausra kjarasamninga, gengislækkana og óðaverðbólgu.
Það er allt of mikill skortur á hugmyndum í umræðum um efnahags- og atvinnumál. Allur þessi áratugur hefur verið tímabil stöðnunar gagnstætt því sem var á síðasta áratug þegar landhelgin var tvisvar sinnum færð út og á viðreisnarárunum þegar margvíslegar umbætur komu til sögunnar svo sem innflutningsfrelsi og fleira. Nú er hins vegar alvarlegur skortur á hugmyndum. Menn hjakka í sama farinu. Sömu efnahagsúrræðin eru á ferðinni með nokkurra
mánaða millibili. Það gerist ekkert nýtt, engar nýjar hugmyndir á döfinni. Eru stjórnmálamenn samtímans gersneyddir öllu hugmyndaflugi? Raunar er allt of mikið horft til stjórnmálamanna og ríkisvaldsins um lausn á öllum vandamálum fólksins í landinu. Miðstýringin er allt of mikil. Það er löngu tímabært að draga úr henni þannig að starfsþrek og áhugi fólks fái að njóta sín. Stjórnmálamennirnir hafa allt of ríka tilhneigingu til þess að draga til sín völd og áhrif og sjálfsagt hefur fólk líka tilhneigingu til að krefjast þess að stjórnmálamenn leysi vandamál sem aðrir eiga að takast á við. Þó dregið hafi úr beinni aðild ríkisins að atvinnurekstri eru afskipti stjórnmálamanna og ráðherra af atvinnumálum síst minni en áður var. Þetta er ekki heilbrigt og ekki eðlilegt. Einn meginþáttur í því að skapa hér nýja tíma er að draga úr afskiptum stjórnmálamanna og ríkisvalds.``
Þetta var Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins frá sl. sunnudegi. Ég er ekki sammála því í einu og öllu. T.d. finnst mér orka tvímælis að hér yrði leyfður frjáls innflutningur á matvöru þó svo að ég geti vel tekið undir það að það er spurning hvort það borgi sig yfirleitt að framleiða suma matvöru eða reyna að framleiða hana á Íslandi. En megininntakið í því sem þarna kemur fram er held ég góð lýsing á því efnahagsóstandi sem hefur hrjáð okkur um margra, margra ára ef ekki áratuga skeið.
Í janúar sl. bauð ríkisstjórnin, þ.e. forsrh. og formenn hinna ríkisstjórnarflokkanna, Borgfl. til viðræðna um hugsanlegt stjórnarsamstarf. Við ákváðum að ganga til þessara viðræðna af heilum hug og lögðum fram umræðugrundvöll þar sem við töldum að það þyrfti að gerbreyta þeirri efnahagsstefnu sem hér hefur verið rekin undanfarin ár. Við vildum fara allt aðrar leiðir í efnahagsmálum en hæstv. ríkisstjórn hefur farið. Við töldum þegar við áttum þessar viðræður við fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna í janúar að eina leiðin sem við sæjum út úr þessum vanda væri að reyna að lækka skatta í samráði við launþegasamtökin í landinu og koma þannig í veg fyrir að það þyrfti að hækka kaup. Það má kannski líkja þessu við einmitt svipaðar aðgerðir sem forsætisráðherra Danmerkur reyndi á sínum tíma og voru kallaðar kartöflukúrinn.
Við lögðum m.a. til að söluskattur á matvælum yrði felldur niður eða færður til sama horfs og var fyrir stjórnarmyndun 1987. Í reynd vorum við með þá málamiðlunartillögu að söluskattur á helstu hefðbundnu innfluttum matvælum yrði lækkaður úr 25% í 12% sem þýðir að ríkissjóður hefði tapað tekjum upp á hartnær 2,7 milljarða kr. Nú spyr ég hæstv. fjmrh.: Hvað kosta þessir samningar sem nýlega hafa verið gerðir við opinbera starfsmenn ríkið í beinhörðum peningum, í krónum, og hvaða rúm var í fjárlögum fyrir launahækkanir yfirleitt? Ef ég hef náð því nokkurn veginn rétt held ég að það rúm hafi kannski verið einhvers staðar um 3 milljarðar kr., en ég mundi óska þess að hæstv. fjmrh. kæmi með nánari tölur um þetta atriði. Þá sé ég ekki betur en þarna hefði verið hægt að taka þá peninga sem þurfti
til að lækka verð á matvælum með því að lækka söluskattinn á helstu innfluttu hefðbundu matvælum úr 25% í 12%. Ætli hefði ekki verið nær að bjóða launþegum upp á að lækka matvælaverðið í landinu en að bjóða upp á beinharðar krónutöluhækkanir á launum sem eftir nokkrar vikur eru orðnar að engu í þeirri verðbólgu sem nú óhjákvæmilega fer af stað?
Þá lögðum við til að eignarskattsaukinn, þ.e. stóreignaþrepið, yrði fellt niður, enda er alveg með ólíkindum að láta sér detta það í hug að ætla að taka upp eignir manna sem þeir hafa náð að mynda á lífsleiðinni með tekjum sem þeir hafa borgað fulla skatta af og með innkaupum á efni sem hefur verið borgaður fullur söluskattur af. Hér er verið að tvískatta tekjur manna með óviðurkvæmilegum hætti.
Þá bentum við á að með því að koma til móts við lágtekjufólkið, með því að
hækka skattleysismörk í um það bil 60 þús. kr. og athuga með að greiða út launabætur til lágtekjuhópa í líkingu við það sem við höfum áður lagt til í þáltill. sem var flutt á síðasta þingi, mætti að verulegu leyti koma til móts við lágtekjuhópana í þjóðfélaginu og þannig hefði verið hægt að ná niður verðlagi og lækka raungengi íslensku krónunnar verulega með þessum hætti.
Við lögðum enn fremur til að vörugjaldið yrði lækkað á móti lágum ytri tollum á fullunninni vöru sem settir yrðu á í staðinn. Ég er ekki í nokkrum vafa um og það held ég að hæstv. fjmrh. sé reiðubúinn að taka undir með mér að vörugjaldið sem var sett á við síðustu áramót er alger mistök. Það hefur gert það að verkum að það hefur ruglað alla verðlagningu iðnvarnings og gert innlendum iðnaðarfyrirtækjum erfitt um vik, enda eru fáir skattar sem hafa valdið eins mikilli óánægju og uppnámi í röðum íslensks iðnaðar og þeirra sem þar vinna og vörugjaldið sem var sett á um sl. áramót, þ.e. hækkun og breikkun á vörugjaldsstofninum.
Við lögðum til að ákvæði um skattfrelsi vegna hlutafjárkaupa yrðu rýmkuð og stimpilgjöld hlutabréfa felld niður eða lækkuð verulega. Það gerðum við einfaldlega með tilliti til þess að það er alveg ljóst að eigið fé velflestra fyrirtækja, sérstaklega í útflutningsgreinunum, er brunnið upp og því er eiginlega sjálfsagt að reyna að stuðla að því með öllum ráðum að almenningur gerist eignaraðilar í fyrirtækjum í ríkara mæli en verið hefur, en þetta er leið sem víðast hvar í nágrannalöndunum er farin, að gera kaup eða fjárfestingu vegna hlutafjárkaupa sem mest skattfrjálsa og að hafa ekki eins og hér er gert hærri stimpilgjöld á hlutafé en á öðrum verðbréfum sem er aldeilis með ólíkindum.
Samfara þessu hefði þurft að fara út í mjög harkalegar aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálunum og það er ekki nokkur vafi á því að til þess hefði þurft að koma að laga raungengi íslensku krónunnar, e.t.v. með einhverri gengisfellingu samfara þeim aðgerðum sem hér eru lagðar til.
Þá lögðum við enn fremur áherslu á að það hefði þurft að aftengja allar vísitölubindingar, en það er
ekki nokkur vafi á því þegar skoðað er grannt hvernig fjármálastefna hefur verið hér undanfarin ár að lánskjaravísitalan viðheldur verðbólgunni. Hún virkar eins og olía á eldinn, hún pumpar inn í hagkerfið verðhækkunum og hún elur sjálfa sig eins og kom svo ágætlega fram í séráliti eins nefndarmannanna í verðbólgunefndinni svokölluðu. Það var ef ég man rétt veðurfræðingurinn Magnús Jónsson en hann var einmitt sá sem síst var kannski hagfræðimenntaður af þeim sem sátu í þeirri ágætu nefnd.
Ég las mjög kynduga frétt í dagblöðunum fyrir nokkrum vikum. Það var fréttatilkynning frá Seðlabankanum þar sem Seðlabankinn taldi sig hafa getað fært sönnur á það að lánskjör á Íslandi væru hagstæðari og betri en í öllum nágrannalöndunum, þ.e. lánskjaravísitölulánin væru ódýrari og hagkvæmari fyrir lántakendur en almennt gerist með lán í nágrannalöndunum. Nú vill svo til að ég lenti í því árið 1981, en það var í tíð ríkisstjórnar Gunnars heitins Thoroddsens, að þá var boðið upp á almenn skuldbreytingalán fyrir alla þá sem höfðu staðið í húsbyggingum eða íbúðakaupum. Húsbyggjendum og íbúðakaupendum stóð þá til boða skuldbreytingalán í bönkum og sparisjóðum sem fóru fram með þeim hætti að sá banki sem viðkomandi aðili skuldaði mest í tók að sér að breyta lausaskuldum í eitt stórt lán sem var til átta ára. Ég tók eitt slíkt lán, 100 þús. kr., 27. júlí 1981 til átta ára og það vill svo til að það lán er að klárast núna. Ég á eftir tvær afborganir, síðasta afborgun fellur í júlí í sumar og ég sé núna lánið til enda. Ég gerði það að gamni mínu, ég sat yfir þessu heilan dag hér um helgina, að fara í gegnum gömlu greiðslukvittanirnar fyrir afborgunum og vöxtum af þessu láni og ég er búinn að skrifa upp hvernig lánið hefur þróast frá upphafi til enda. Síðan gerði ég mér lítið fyrir og hringdi út í minn gamla danska banka þar sem ég hafði verið í viðskiptum þegar ég bjó í Danmörku og spurði hann hreinlega að því: Hvernig mundi svona lán hafa þróast sama tímabil í ykkar banka? Og það stóð ekki á svarinu. Ég fékk sent heim yfirlit yfir hvernig nákvæmlega þetta sama lán hefði þróast þetta sama tímabil. Síðan settist ég niður og aflaði mér upplýsinga frá Seðlabanka Íslands yfir meðalgengi íslensku krónunnar mánuð fyrir mánuð allt þetta tímabil og hef síðan setið núna og reiknað út hver er munurinn. Það kemur auðvitað í ljós að af danska láninu borga ég ekki nema brot af þeim fjármunum sem ég hefði þurft að borga í sambandi við íslenska lánskjaravísitölulánið. Danska lánið, sem er tekið og látið hlaupa yfir nákvæmlega sama tíma með sömu afborgunum, nema á dönskum vaxtakjörum, held ég að láti eitthvað nærri að heildargreiðslur vegna þess láns séu ekki nema svona 60--70% af þeim greiðslum sem hafa fallið vegna íslenska lánskjaravísitölulánsins. Segi mér svo hver sem vill að lánskjör á Íslandi með lánskjaravísitölu séu eitthvað hagstæðari en í nágrannalöndunum. Þvílíkur blekkingarvefur sem hér er verið að reyna að leiða okkur í gegnum!
Nei, það þarf að finna hér upp algerlega nýjar
leiðir í efnahagsmálum og fjármálastjórn landsins eins og kom ágætlega fram í margnefndu Reykjavíkurbréfi. Ég vil aðeins bæta því við að ef ekki verða gerðar strax
einhverjar ráðstafanir í efnahagsmálum sem duga blasir ekkert við annað en algert hrun hjá mjög mörgum atvinnufyrirtækjum og einkum í útflutningsgreinunum. Það er alveg ljóst að þá er atvinnuleysi og upplausn heilla byggðarlaga á næsta leiti.
Við í Borgfl. teljum nauðsynlegt að styrkja nú samkeppnisiðnaðinn og útflutningsfyrirtækin með raunhæfum aðgerðum í peninga- og gengismálum og ráðast að viðskiptahallanum fyrst og fremst. Hvernig ætlar þessi þjóð eiginlega að fara að ef viðskiptahallinn heldur áfram að vaxa og vaxa? Hann kannski fer í eina 20 milljarða. Það gæti að vísu verið að það dragi aftur úr honum því fólk hefur nú reyndar ekki lengur efni á því að kaupa hinn innflutta varning svo sem eins og bíla og aðrar hátollavörur og er reyndar mjög kvartað yfir því nú að ríkissjóður verði fyrir tekjutapi vegna þess að bílasala hefur dregist verulega saman. Það er meira að segja talað um að það geti verið allt að 2 milljarðar sem tapast þannig á árinu vegna minnkandi bílasölu svo ekki sé talað um það að vegna þess að við ætlum greinilega að drekka eitthvað minna áfengi en þeir fjárlagasmiðir gerðu ráð fyrir virðist annar milljarður tapast þar. Það getur svo sem verið að viðskiptahallinn verði ekki eins alvarlegur og var á síðasta ári vegna þess að fólkið hefur hreinlega ekki efni á því að kaupa hina dýru innfluttu vöru. En engu að síður verður viðskiptahallinn áreiðanlega tveggja stafa tala í milljörðum talið og ekki seinna vænna að fara að gera eitthvað í þeim málum áður en öll fyrirtæki í iðnaði og í samkeppnisiðnaði hafa hreinlega lagt upp laupana. Að vísu, því miður, virðist það vera stefna þessarar hæstv. ríkisstjórnar að hér þurfi enginn iðnaður að vera, hann eigi bara að færast til Suður-Evrópu og Afríku og eitthvað austur í Austurlönd fjær. Þar er kaupgjaldið svo lágt að þangað hlýtur iðnaðurinn að færast. Hann á ekkert erindi hér á Íslandi þar sem kaupið er allt of hátt og maður talar ekki um eftir að hér hafa verið gerðir samningar núna fyrir nokkrum dögum þar sem kaupgjald hækkar um ein 20% hjá stórum hópum launþega innan vébanda BSRB og það liggur alveg ljóst fyrir að um sömu launahækkanir hlýtur að verða að ræða yfir allan hópinn, hvar svo sem launþegar eru fyrir með sín kjaramál. Ég held að það sé alveg ljóst.
Að lokum, ég fer að stytta mál mitt, hæstv. forseti, vildi ég aðeins ítreka eitt sem mér finnst vera aðalatriðið í þessu. Það er að það hlýtur að vera afkoma fólksins þrátt fyrir allt sem er aðalatriði svo og afkoma atvinnufyrirtækjanna. Ég tel að afkoma ríkissjóðs hljóti þar að koma í þriðja sæti. Ég hef oft vakið athygli á því héðan úr þessum ræðustól að þegar illa árar sé verjandi að reka ríkissjóð með halla ef það er hægt að ná einhverjum árangri á þann hátt í efnahagsstjórn landsins. Ef hins vegar er haldið
áfram á þeirri sjálfsmorðsbraut sem íslensk efnahagsstjórn og fjármálastjórn er á, og það er verið að reyna að vísu að telja okkur trú um að ríkissjóður verði rekinn með einhverjum tekjuafgangi þó svo að allir hljóti að sjá að það er hrein blekking, það er alveg ljóst að það verður um verulegan fjárlagahalla að ræða þegar málin fara að skýrast á seinni hluta þessa árs, þá engu að síður hefði verið hægt að fara út í þær harkalegu aðgerðir sem eru nauðsynlegar og voru nauðsynlegar ef vilji hefði verið fyrir hendi að takast á við vandamálin í staðinn fyrir að sópa þeim undir teppið eins og núv. hæstv. ríkisstjórn er að gera.
Svo vil ég aðeins að lokum taka þetta fram: Þingflokkur Borgfl. hefur frá upphafi verið reiðubúinn að ræða við alla stjórnmálaflokka um ríkisstjórnarsamstarf. Þegar núv. ríkisstjórnarflokkar óskuðu eftir viðræðum við Borgfl. um hugsanlegt stjórnarsamstarf í janúar gekk flokkurinn til þeirra af heilum hug eins og ég hef sagt áður. Við hörmum að ríkisstjórnarflokkarnir skyldu ekki vilja horfast í augu við vandamál þjóðarinnar og fara út í nauðsynlegar og raunhæfar efnahagsaðgerðir með Borgfl. Í stað þess hefur verið farin leið smáskammtalækninga sem er lítt vænleg til að skila árangri. Ég hef komið með þá samlíkingu að atvinnulífið í landinu sé eins og dauðvona sjúklingur. Það kemur læknir í heimsókn á þriggja mánaða fresti og gefur sjúklingnum sprautu svo hann drepist ekki alveg, en hann kemst aldrei á fætur. Þetta er það ástand sem varir hér við og virðist ætla að vera þannig næstu mánuðina. Að vísu er spurning: Hvað lifir sjúklingurinn lengi með þessari læknisaðgerð? Drepst hann ekki að lokum? Því miður er ég ansi hræddur um það. Og hvert horfir þá?
Það er mín skoðun að ríkisstjórnin hafi rýrt svo álit sitt meðal þjóðarinnar að hún eigi ekki annarra kosta völ en að fara frá. Annaðhvort verður þá að kjósa á nýjan leik eða stjórnmálaflokkarnir taka höndum saman með Borgfl. og mynda nýja ríkisstjórn sem getur leitt þjóðina út úr þeim ógöngum sem hún er komin í þannig að það verði farið út í einhverjar alvöru efnahagsaðgerðir sem duga í staðinn fyrir það hálfkák sem við höfum orðið vitni að núna undanfarna mánuði.