Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að leyfa mér að vekja athygli á því að hér inni virðast fáir stjórnarliða ríkisstjórnar jafnréttis og félagshyggju hafa áhuga á umræðum um kjaramál, en þeir sitja kannski í hliðarherbergjum og lesa þau 23 stjfrv. sem hefur verið dengt á borð okkar seinnipartinn í dag og í kvöld.
Ég vil í upphafi máls míns byrja á því að lýsa furðu minni á viðbrögðum hæstv. fjmrh. við ræðu málshefjanda, hv. 18. þm. Reykv., fyrr í dag. Hann talaði hvað eftir annað um kvenfyrirlitningu, hafði greinilega fyrir fram ákveðið að hlusta ekki á ræðu hennar. Hlusta hvorki á athugasemdir hennar né spurningar, hvað þá heldur orð hennar um það að þrátt fyrir allt hefðu það verið lægst launuðu hóparnir sem fengu mesta bót með nýgerðum kjarasamningum við BSRB. Það var merkilegt að hlusta á yfirlætislega ræðu hæstv. fjmrh. þar sem hann m.a. gaf sér hvað hv. þm. Þórhildur Þorleifsdóttir vissi eða öllu heldur hvað hann taldi að hún vissi ekki. Sú kvenfyrirlitning sem hann taldi koma fram hjá henni birtist fyrst og fremst í orðum hans sjálfs svo sem þingheimur allur tók eftir.
Sú hæstv. ríkisstjórn sem nú situr hefur að markmiði sínu, eins og segir í stjórnarsáttmálanum, með leyfi forseta, ,,að leysa bráðan efnahagsvanda sem steðjar að atvinnulífinu, stöðu landsbyggðarinnar og undirstöðu velferðarríkis á Íslandi. Stefna ríkisstjórnarinnar byggir í senn á framtaki einstaklinga, samvinnu og samstarfi á félagslegum grunni. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til lausnar aðsteðjandi vanda miða að því að treysta atvinnuöryggi í landinu, færa niður verðbólgu og vexti, verja lífskjör hinna tekjulægstu, bæta afkomu atvinnuveganna og draga úr viðskiptahalla.``
Ekki blasir beinlínis við að þessi atriði, sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, hafi gengið eftir. Hvorki hefur verðbólga lækkað né heldur lífskjörin batnað og nú hafa verið gerðir kjarasamningar með rýrari kaupmætti en á síðasta ári. Og hvar skyldu nú þeir vera sem sl. ár hafa verið sjálfskipaðir verðir launafólksins í landinu? Varla getur árangurinn við að bæta stöðu atvinnuveganna talist mikill þrátt fyrir stofnun sjóða á sjóði ofan. Nú er komin upp sama staða hjá sumum fyrirtækjum og áður en þau fengu fyrirgreiðslu úr Atvinnutryggingarsjóði nema hvað þau sitja nú uppi með þær skuldir sem við hafa bæst vegna fyrirgreiðslu sjóðsins.
Í Þjóðviljanum 29. september, á fyrsta lífdegi ríkisstjórnarinnar, segir formaður Alþb. og núv. hæstv. fjmrh. í viðtali, með leyfi forseta: ,,Alþb. hefur mjög sterka stöðu í þessari stjórn. Fjmrh. er nokkurs konar stjórnstöð ríkiskerfisins og lykilstöð við stjórn efnahagsmála í landinu. Innganga Alþb. í stjórnarráðið hefur það í för með sér að flokkurinn er orðinn einn helsti áhrifaaðilinn um mótun efnahagsstefnunnar.``
Nú er ástæða til þess að spyrja hæstv. fjmrh. hverju hann telji að þessi lykilstaða og áhrif Alþb. við
stjórn efnahagsmála hafi skilað heimilum þessa lands.
Á öðrum stað í þessu sama viðtali segir hæstv. fjmrh., með leyfi forseta: ,,Þessi nýja ríkisstjórn hyggst þegar grípa til ýmissa aðgerða til hagsbóta launafólki. Það er ekki bara um að ræða verðstöðvun og lækkun vaxta heldur einnig breytingu á lánskjaravísitölu, aukningu fjármagns til skuldbreytinga heimila, hækkun elli- og lífeyrisbóta, barnabóta og persónuafsláttar. Það er einnig höfuðatriði að þessi ríkisstjórn ætlar að afla fjármagns til þessara aðgerða og annarra með því að sækja það til fjármagnseigenda og þeirra sem hafa haft stórar tekjur af vaxtagróða án þess að borga af því neina skatta á undanförnum árum. Einnig með nýjum sköttum á fjármálafyrirtæki og önnur fyrirtæki.``
Hvað líður framkvæmd þessara atriða? Hve mikið fé hefur runnið til skuldbreytingar heimilanna? Hvað varð um hækkun elli- og lífeyrisbóta og barnabóta? Og hví var persónuafslátturinn lækkaður en ekki hækkaður um leið og skattprósentan var hækkuð um síðustu áramót? Ég vildi gjarnan fá svör hæstv. fjmrh. við þessum spurningum sem ég hef hér fram borið og vona að hann hafi heyrt betur en hann gerði fyrr í dag undir ræðu hv. 18. þm. Reykv. En þetta eru þær spurningar sem mjög brýnt er að fá svör við núna.
Núna rétt fyrir helgina var undirritaður nýr kjarasamningur ríkisins og flestra félaganna í BSRB. Fróðlegt væri að heyra frá hæstv. fjmrh. hvort hann telur lægstu launin sem nú var samið um nálgast tillögu Alþb. um nýja launastefnu nógu mikið til að við megi una. Í þeirri tillögu var lagt til að fram færi útreikningur á nýrri lágmarkslaunavísitölu, en þangað til það hefði gerst yrðu jafnvel sett lög um að dagvinnutekjur skyldu ekki vera undir 45--50 þús. kr. á mánuði. Ekki hefur verðlag lækkað síðan í fyrra. Telur fjmrh. að nú ári seinna dugi stórum hluta þess fólks sem nú var samið fyrir laun undir 50 þúsundum á mánuði og það eftir margra mánaða launafrystingu og með þeim auknu skattaálögum sem launafólk hefur mátt sæta frá síðustu áramótum. Sé svar fjmrh. nei, sem það reyndar hlýtur að vera, væri fróðlegt að heyra hans hugmyndir um hvað hann telur raunhæft að ætla einstaklingi að framfleyta sér
af á mánuði. Hans flokkur treysti sér til að leggja mat á þetta í fyrra og hvert er mat flokksins nú?
Við gerð þeirra kjarasamninga sem nú hafa tekist með ríkinu og BSRB birtist aðdáunarverður trúnaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja til fjármálaráðuneytisins þar sem ýmis mikilvæg atriði í nýgerðum kjarasamningi felast í óljósum bókunum um ýmsar félagslegar umbætur. Það er rétt, sem fram kom í máli hæstv. fjmrh. fyrr í dag og reyndar líka í máli hv. þm. Þórhildar Þorleifsdóttur, að margar þeirra fjalla um sjálfsagðar og nauðsynlegar umbætur á stöðu kvenna. Vonandi verður ríkisstjórnin þess trausts verð sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja ber til hennar gagnvart sínu fólki. En ég verð að segja fyrir mitt leyti að ekki væri traust mitt of mikið gagnvart ríkisstjórn sem byrjaði feril sinn á því að svipta launafólk samningsrétti og dengdi yfir það sköttum af ýmsu tagi á þessu tímabili launafrystingar.
Ég vil aðeins minna á örlög samkomulagsins sem gert var sem hluti af kjarasamningi árið 1980 um uppbyggingu dagvistarheimila. Það er enn svo óralangt frá því að við þessa áætlun hafi verið staðið og þetta gildir um mörg önnur kjaratengd atriði sem samið hefur verið um í kjarasamningum í gegnum tíðina. Það vekur einnig athygli varðandi þennan nýgerða samning að eitt félag, Félag lögreglumanna, treysti sér ekki til að skrifa undir hann einmitt vegna vanefnda vegna síðustu kjarasamninga. Maður hlýtur því að hafa vissar áhyggjur af þeirri virðingu sem ríkisstjórnin ber fyrir kjarasamningum, hvort sama viðhorf gildir gagnvart bókunum um atriði sem taka á til athugunar og umræðu á næstu mánuðum. Mun ríkisstjórnin standa við slíkar bókanir ef hún hefur ekki einu sinni staðið við gerða kjarasamninga?
Vanda atvinnulífsins hefur borið mjög á góma í allri umræðu um efnahagsmál á síðustu mánuðum og að sjálfsögðu líka í umræðunni í dag og það auðvitað ekki að ófyrirsynju. Auðvitað er ekki hægt að slíta umræðu um kjaramál frá atvinnumálum og það vita kvennalistakonur jafnvel og allir aðrir hér inni. En það hlýtur hins vegar að fara að verða spurning hversu vandi fólksins og heimilanna í landinu þarf að verða mikill, hversu margir þurfa að vinna myrkranna milli sér til óbætanlegs heilsutjóns, hversu margar fjölskyldur þurfa að missa húsnæði sitt og þola alla þá upplausn og óhamingju sem því fylgir til þess að það verði talið til efnahagsvanda þjóðarinnar.
Margar spurningar hafa vaknað meðal launafólks á síðustu missirum, eins og t.d. hvers vegna lá svo mjög á að skerða og frysta laun þess hluta launþega sem ekki á þess kost að knýja fram launaskrið án þess að nokkuð væri gert í vaxtamálum. Hvers vegna er endalaust hægt að ganga í pyngju launafólks og greiða í sjóði til stuðnings atvinnufyrirtækjum? Hvers vegna er aldrei hugsað um grunneiningu þjóðfélagsins, heimilin? Hvers vegna verða horfurnar í þjóðfélaginu ætíð svo dapurlegar þegar gerð kjarasamninga nálgast?
Það er greinilegt að hæstv. ríkisstjórn hefur engin tök á að hafa áhrif á peningaöflin í landinu.
Í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar segir, með leyfi forseta: ,,Góð menntun er undirstaða framtíðarlífskjara þjóðarinnar.`` Áferðarfalleg setning, ekki satt, og líklega höfum við öll séð hana áður og heyrt. En hvernig ætlar hæstv. ríkisstjórn að stuðla að því að menntunin verði okkur sú stoð sem nauðsynleg er til að takast á við æ flóknari og fjölbreytilegri verkefni þar sem mestu skiptir að hafa þann grunn sem gerir manninum kleift að takast stöðugt á við ný verkefni? Hvergi birtist menntastefna þjóðfélagsins skýrar en í launastefnu hennar. En hvernig metur ríkisstjórnin sérmenntun þess fólks sem starfar á vegum hins opinbera? Við höfum heyrt ótal ræður, bæði hér í þingsölum og annars staðar, um það vanmat á menntun sem birtist í þjóðfélaginu, ekki síst meðal fólksins sem vinnur hjá ríkinu. Það er orðið með öllu óþolandi hve stofnanir eins og sjúkrahús og raunar flestar umönnunar-, uppeldis- og menntastofnanir hafa þurft að líða fyrir launastefnu
ríkisvaldsins í gegnum tíðina. Nú stendur hæstv. fjmrh. og reyndar ráðherrar hinna ýmsu fagráðuneyta frammi fyrir þeirri staðreynd að það fólk í þeirra þjónustu sem hvað lengst nám og sérhæfingu hefur að baki og ber mikla ábyrgð í störfum sínum hefur þurft að grípa til þess neyðarúrræðis sem verkföll eru.
Sá mikli órói sem skapast hefur á undanförnum árum vegna lakra kjara hinna ýmsu stétta háskólamenntaðra manna hefur þegar orðið okkur til mikils tjóns og mál er að linni. Hvað eftir annað hafa verið settar á laggirnar nefndir til að meta störfin, en af einhverjum ástæðum virðist þykja sjálfsagt að greiða fyrir þá vinnu sem matsnefndir leggja af mörkum, en stinga síðan skýrslum þeirra undir stólinn þrátt fyrir það að enginn ágreiningur hafi verið um niðurstöður þeirra. Í lögum um réttindi og skyldur háskólamenntaðra starfsmanna á vegum hins opinbera segir að þeir skuli fá sambærileg laun við það sem almennt gerist á vinnumarkaðnum og það er hin sjálfsagða krafa þeirra háskólamenntuðu ríkisstarfsmanna sem nú eiga í deilum við ríkisvaldið.
Sem dæmi um þessi vinnubrögð, hvernig skýrslum er æ ofan í æ stungið undir stólinn, læt ég nægja að nefna síendurteknar kannanir sem gerðar hafa verið á kjörum kennara. Ég minni á að Kvennalistinn flutti tillögu um endurmat á
störfum kennara á þinginu 1984. Sú tillaga hlaut mjög góðan hljómgrunn og stuðning þáverandi menntmrh. Ragnhildar Helgadóttur þó ekki hlyti hún formlega afgreiðslu. En árið eftir kom út skýrsla menntmrn. um endurmat á störfum kennara. Það var í febrúar 1985, rétt áður en kennarar gripu til þess neyðarúrræðis að ganga út úr skólum landsins eftir að hafa sagt upp störfum sínum. Í þeirri skýrslu kemur í ljós að kennarar hafa haft rétt fyrir sér öll undanfarin ár. Kröfur til kennara, bæði hvað varðar starfsálag og menntun, hafa stöðugt aukist á sama tíma og þeir hafa stöðugt dregist aftur úr í launum.
Í ágústmánuði 1987 kom út skýrsla OECD um menntastefnu á Íslandi, nokkuð þykk skýrsla og greining á menntakerfinu hér á landi. Þar er að sjálfsögðu töluvert fjallað um menntun og kjör kennara og eru hinir erlendu sérfræðingar sammála um að fátt ef nokkuð eitt sér hafi meira að segja um gæði skóla og skólastarfs en einmitt kennararnir sjálfir.
Í nóvember 1987 birtist enn ein skýrsla um starfskjör framhaldsskólakennara ásamt tillögum. Sú skýrsla var unnin af sérstakri starfskjaranefnd sem skipuð var fulltrúum fjmrn., menntmrn. og Hins ísl. kennarafélags. Í upphafi grg. með skýrslunni segir m.a., með leyfi forseta:
,,Margt bendir til þess að skólastarf á framhaldsskólastigi sé ekki í eins góðu horfi og æskilegt væri og virðist hafa hallað undan fæti í þessu efni síðustu árin. Til staðfestingar þessu má m.a. benda á athuganir sem gerðar voru sl. vetur á kennslu í íslensku og stærðfræði í framhaldsskólum. Skýrslur um niðurstöður þessara athugana hafa nýlega verið gefnar út. Brýnt er að snúa þeirri þróun við og gera til þess viðeigandi ráðstafanir, bæði í launamálum
kennara og einnig hvað varðar starfsskilyrði þeirra.``
Þetta eru upphafsorð grg. skýrslu þessarar og ekki er ágreiningur um þessa skýrslu og þær fjölmörgu ábendingar og tillögur sem koma fram í henni, ekki frekar en þær skýrslur sem ég nefndi áðan. Síðan þessi síðastnefnda kom út hafa enn einu sinni verið gerðir óviðunandi kjarasamningar kennurum til handa og enn einu sinni skellur á verkfall. Það hefur gerst æ ofan í æ að kennarar hafa gengið til starfa sinna aftur eftir deilu við stjórnvöld vegna þess að viðkomandi fjmrh. hafa lagað einhvers konar loforðasúpu sem engin næring reynist í þegar til á að taka.
Hvað skyldi samningalotan í fyrra hafa kostað ríkissjóð sem var svo ónýt nokkrum dögum síðar þegar hæstv. þáverandi ríkisstjórn setti lög um launafrystingu og ekki einu sinni öll félögin náðu að gera samninga? Og hvað hefur núverandi ríkisstjórn gert við þær skýrslur sem fyrir liggja í menntmrn.? Fróðlegt væri að fá að vita hvað gerð þessara skýrslna hefur kostað ríkissjóð á undanförnum árum. Og hvað hefur nú gerst í menntamálunum í vetur? Jú, hæstv. menntmrh. hefur verið í hugsjónaferðum á milli skóla um land allt og talað um stórkostlega þróun í skóla- og menntamálum sem mun rétt vera að hefjast undir hans forustu. Ég vil ekki láta hjá líða að nefna að vinnubrögð ráðherra sem slík teldi ég til mikillar fyrirmyndar ef ekki fylgdi niðurskurðarbréf flokksbróður hans, hæstv. fjmrh. í kjölfarið. Þau gera skólamálafundina lítt trúverðuga í augum bæði foreldra og kennara og eru í algjörri andstöðu við þarfirnar í skólunum og skólastefnu síðustu ára. Það mun hvorki auka menntun einstaklinganna í skólunum né heldur bæta starfsskilyrði kennara að fjölga í hópum og bekkjum og draga stórlega úr námsframboði. Auðvitað hlýtur að vera hægt að draga úr útgjöldum og hagræða, en það verður ekki gert með slíkum fyrirskipunum án þess að gerðar verði áætlanir í samráði við forstöðumenn stofnananna.
Það er búið að mynda margar fallegar setningar um gildi menntunar. Ein þeirra er hugmynd hæstv. menntmrh. um að ná þurfi þjóðarsátt í mennta- og menningarmálum. Slíkt gerist auðvitað ekki nema með því að allir leggi sitt af mörkum og auðvitað þarf ekki að nefna það að ef ná á slíkri þjóðarsátt eru vel menntaðir og ánægðir kennarar mikilvægur hlekkur í þeirri keðju. Kennarar sem geta látið sér nægja að kenna aðeins kennsluskylduna, ég segi aðeins því að það geta aðeins örfáir kennarar um þessar mundir og það er með öllu óverjandi að kennarar skuli þurfa að eyða öllum þeim hléum sem gefast til endurmenntunar, undirbúnings og hvíldar í að vinna aðra launaða vinnu til að hafa í sig og á. Er líklegt að ungt fólk sem sér aðstæður kennara sinna hafi löngun til þess að leggja fyrir sig kennslu í framtíðinni eða mennta sig yfirleitt?
Við ætlum kennurum að búa uppvaxandi kynslóð undir líf sem krefst sjálfstæðis og frumkvæðis einstaklinganna í æ flóknara samfélagi sem þeir munu lifa í í upphafi næstu aldar. Ég leyfi mér enn og aftur
að vitna til samtals við hæstv. fjmrh. í Þjóðviljanum 29. sept. sl. þar sem hann hefur m.a. þetta að segja um menntamálin, með leyfi forseta:
,,Við höfum ekki stýrt menntamálunum í áratug og á þeim tíma hefur Sjálfstfl. markvisst reynt að breyta stefnunni í mennta- og menningarmálum í átt að grundvallarsjónarmiðum hinnar hörðu hægri stefnu. Nú gefst tækifæri til að snúa þeirri þróun við og leggja sjónarmið jafnréttis til grundvallar í þessum málaflokki og koma í framkvæmd þeirri miklu eflingu menningarlífs sem Alþb.
hefur sett á oddinn.``
Í ljósi þessarar yfirlýsingar á fyrsta degi ríkisstjórnarinnar hlýt ég að spyrja bæði hæstv. fjmrh. og menntmrh. ef hann er hér í húsinu. ( Forseti: Hæstv. menntmrh. er ekki í húsinu, en hæstv. fjmrh. mun vera á næstu grösum.) Já, ég mun þá láta mér nægja að beina spurningum mínum til hans. Ég leyfi mér að spyrja hann hvernig ætlunin sé að koma þessari menntastefnu í framkvæmd við núverandi aðstæður.
Ég hefði gjarnan viljað beina spurningum til hæstv. menntmrh., en ég hafði hugsað mér að spyrja hann um hvaða tillögur hann hefði sem fagráðherra menntamála til lausnar þeirri kjaradeilu sem nú er uppi, en ég mun í stað þess taka undir spurningar sem komu fram hjá hv. síðasta ræðumanni að mig minnir um það að fjmrh. upplýsi þingheim á eftir um stöðuna í samningamálum BHMR eins og hún er núna eftir samningafundi í dag. Ég hefði gjarnan viljað geta spurt hæstv. menntmrh., en þar sem hann er hér ekki viðstaddur verður það að bíða betri tíma.
En að lokum vildi ég minnast enn og aftur á það sem um langa hríð hefur verið talað mikið um. Aftur og aftur hefur það borið á góma í umræðum um kjaramál að það þurfi að endurmeta störfin. Það endurmat fer ekki fram undir þeim þrýstingi sem ætíð er þegar kjarasamningar eru komnir í hnút eða verkföll eru yfirvofandi. Þess vegna hlýt ég að spyrja: Hvenær má vænta þess að menn setjist niður í alvöru og endurmeti þau störf til launa sem löngu er viðurkennt að eru í engu samræmi við þær kröfur sem til þeirra eru gerðar hvað varðar menntun og þá ábyrgð sem þeim fylgir?
Ég vík aðeins að lokum að nokkrum atriðum varðandi þær vinnuaðferðir sem gilda við gerð kjarasamninga og þá aðallega til að benda hæstv. ríkisstjórn á að ég tel algerlega ónauðsynlegt að mál komist í þann hnút sem þau hafa gert núna. Ríkisstjórnir hafa á valdi sínu að grípa til ýmissa ráðstafana sem gætu liðkað fyrir samningum með því að lækka ýmsan kostnað heimilanna eins og t.d. kom fram í máli hv. síðasta ræðumanns um matarskattinn. Allt slíkt sem kemur heimilum til góða er betra en hækkanir, hvort sem það eru krónutöluhækkanir eða prósentuhækkanir, þar sem slíkar hækkanir vilja oft fara út um þúfur strax á fyrstu vikum eftir undirritun kjarasamnings vegna þess að verðbólga fer af stað eða, eins og fram kom í máli hæstv. sjútvrh. í dag, að e.t.v. sé gengisfelling yfirvofandi.
Ég vil að lokum segja það að ég tel afar slæmt að hann skuli ekki vera hér þar sem hann kom með ýmsar yfirlýsingar sem full þörf hefði verið á að ræða í kvöld við umræðu um þessi mál því að þær yfirlýsingar sem hann gaf geta verið afgerandi um hvernig til tekst með þessa nýgerðu kjarasamninga og aðra sem eftir á að gera.