Staðan í kjaramálum
Mánudaginn 10. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég vil upplýsa hv. 18. þm. Reykv. um að það var enginn á mælendaskrá annar en hv. 1. þm. Reykv. og hann vildi ekki fara í ræðustól fyrr en hæstv. sjútvrh. kæmi til þingsins. ( Fjmrh.: Það var vegna þess að 2. forseti tilkynnti að það væri verið að bíða eftir þingmönnum Sjálfstfl. og þess vegna settum við ýmis okkur ekki á mælendaskrá.)