Staðan í kjaramálum
Mánudaginn 10. apríl 1989

     Halldór Blöndal (frh.) :
    Hæstv. forseti. Á fundi í Ed. sl. miðvikudag kom hæstv. forsrh. nokkuð inn á stöðu sjávarútvegsins og vék m.a. að því í sinni ræðu að 31 fyrirtæki hefði sótt um fyrirgreiðslu hjá Hlutabréfasjóði, umsóknir 15 fyrirtækja hefðu verið athugaðar og í ljós hefði komið að til þess að veita þessum 15 fyrirtækjum í sjávarútvegi fullnægjandi úrlausn væri nauðsynlegt að verja til þess tveim milljörðum kr. Nú veit ég ekki hvort þessi fyrirtæki sem Hlutabréfasjóður athugaði fyrst hafi verið þau sem verst voru stödd. Það vannst ekki tími til þess að spyrja hæstv. forsrh. frekar út í þá sálma, en með því að bera þessi ummæli saman við það sem hæstv. sjútvrh. sagði hér fyrr í dag, þá er áreiðanlega hægt að taka undir með honum þegar hann segir að þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið fyrir sjávarútveginn undanfarið séu ekki nægilegar.
    Ég held að það sé deginum ljósara að staða sjávarútvegsfyrirtækja er ekki nægilega góð um þessar mundir. Ég vil líka minna á það sem hæstv. sjútvrh. sagði hér í dag, þegar hann talaði við þingmann Kvennalistans eins og hann væri fjmrh., að eins og staða atvinnuveganna er um þessar mundir geta þeir ekki staðið undir betri kjörum. Ég held að hæstv. sjútvrh. hafi gefið hæstv. fjmrh. þarfa ádrepu þegar hann komst svo að orði. Þegar hann síðan bætti við að þessar hækkanir, þ.e. þær launahækkanir sem nú hefur verið samið um við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, muni koma fram í meiri verðbólgu og meiri hreyfingu á gengi. Það er við þessar aðstæður sem verið er að semja um launahækkanir, sagði hæstv. sjútvrh.
    Nú gegnir hæstv. sjútvrh. störfum forsrh. í dag. Það er þess vegna fróðlegt að rifja aðeins upp hvað hæstv. forsrh. lét frá sér fara í Morgunblaðinu sl. laugardag, en þar segir hann, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Ég er mjög hlynntur krónutöluhækkun og tel að láglaunafólkið fái þannig auknar bætur. Auk þess eru engar kvaðir settar á ríkissjóð sem hann getur ekki staðið við. En ég hef sagt það allan tímann að hinn almenni vinnumarkaður þurfi að vera á undan og hafa frumkvæðið. Þess vegna þykir mér það mjög slæmt að aðilar hans hafa dregið lappirnar allan þennan tíma eins og gerst hefur.
    Auðvitað er þetta ekki samningur sem sjálfkrafa gengur yfir allan vinnumarkaðinn. Hinir verða að semja sjálfir. Hvort þeir vilja semja um ákveðna krónutölu, prósentur eða taka þetta allt inn í bónus, það er þeirra mál.``
    Þetta eru ummæli hæstv. forsrh. um kjarasamninginn. Og formaður Alþfl., Jón Baldvin Hannibalsson, tekur í sama streng. Hann talar um að það sé sín eindregna skoðun að hinir mótandi kjarasamningar eigi að vera gerðir á hinum almenna vinnumarkaði og kjör opinberra starfsmanna síðan að miðast við það. Þannig ættu þau kjör væntanlega að endurspegla greiðslugetu atvinnuvega, sagði formaður Alþfl. og bætir þó við á öðrum stað, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Hann sagði að á það bæri að líta að það væri

ekkert náttúrulögmál að nákvæmlega sama útfærsla kjarasamnings skyldi gilda fyrir opinbera geirann og almenna vinnumarkaðinn, enda væru samningakerfin ósambærileg. Því væri gagnrýni vinnuveitenda ekki fyllilega á rökum reist.``
    Það kemur greinilega fram í ummælum formanns Framsfl. og formanns Alþfl. að þeir telja það sjálfgefið að þessar launahækkanir, sem nú hafa orðið hjá opinberum starfsmönnum, gangi með einum eða öðrum hætti yfir hinn almenna vinnumarkað. Og formaður þriðja stjórnarflokksins, hæstv. fjmrh. Ólafur Ragnar Grímsson, sagði hér í ræðustól fyrir stundu, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Það er fullkomlega út í hött að sækja gengisfellingaröksemdir í kjarasamninga BSRB.`` Þetta voru ummæli hæstv. fjmrh.
    Nú fór það ekki fram hjá neinum sem hlustaði á hæstv. sjútvrh. í dag að hann var ekki sömu skoðunar þannig að það hlýtur að kalla á þá spurningu hvort sjútvrh. hafi ekki verið kunnugt um þá samningagerð sem hæstv. fjmrh. stóð fyrir eða þá hvort hæstv. sjútvrh. hafi gert athugasemdir í ríkisstjórninni og komið þannig fram með beinum eða óbeinum hætti leiðbeiningum um það að það væri sín skoðun að hann teldi að það væri frumhlaup af hæstv. fjmrh. að ganga til samninga eins og nú háttar hjá atvinnulífinu.
    Hæstv. sjútvrh. taldi samninga BSRB leiðandi, tók fram að auðvitað væri ekki þar með sagt að launabreytingar hjá öðrum yrðu nákvæmlega þær sömu og spurði svo sjálfan sig: Er svigrúm í sjávarútveginum fyrir kjarabætur? Svarið er einfaldlega nei, sagði hæstv. sjútvrh. Einfaldlega nei. Hann rifjaði upp að sjávarútvegurinn í heild er rekinn með verulegum halla, 2,3% að mati Þjóðhagsstofnunar, vinnslan með 0,3% halla og taldi að tapið mundi aukast um 2% í heild ef þessir kjarasamningar gengju yfir í sjávarútveginum og þó meir ef tekið væri tillit til óbeinna hækkana. Nú hygg ég að við séum sammála um það að þessir kjarasamningar þýða um 13% hækkun á launalið í fiskvinnslunni, í frystihúsunum og þess vegna hygg ég að mat hæstv. sjútvrh. sé síður en svo hátt þegar hann talar um það að tapið mundi aukast um 2%. Það er enginn vafi á því að tapið í sjávarútveginum muni aukast verulega umfram það.
    Þetta var auðvitað allt athyglisvert. En þó bætti hæstv. sjútvrh. einu við sem hlýtur að vera kjarninn í því sem hann sagði og ég vil segja um leið,
þungur áfellisdómur yfir þá ráðherra sem gerðu þá kjarasamninga sem ég var að lýsa. Hann spurði þessarar spurningar: Er við núverandi aðstæður hægt að semja um það að gengið breytist ekki? Og hann svaraði sér með því að segja: ,,Það er það sama og að semja við BSRB. Það er það sama og að segja að sjávarútvegurinn fari yfir um.`` Þessi orð skrifaði ég orðrétt niður.
    Nú getum við auðvitað lengi talað um það hver séu eðlileg rekstrarskilyrði sjávarútvegsins og auðvitað má lengi reyna að meta það hvernig og hvenær rétt sé að koma til móts við atvinnurekendur og

atvinnureksturinn þegar hann stendur höllum fæti. Og auðvitað get ég líka tekið undir með hæstv. sjútvrh. þegar hann segir að það sé ekki þægilegt við þær aðstæður þegar allar stéttir hrópa á launahækkanir að koma við nauðsynlegum rekstrarlagfæringum fyrir sjávarútveginn. Mér finnst hins vegar að við getum ekki skilið við málið bara svona, haft alla enda í lausu lofti svona. Við erum á þessu ári búin að búa við verðbólgu sem var miðað við 12 mánuði 22,3% í janúar, 16,87% í febrúar og 27% í mars ef maður leggur lánskjaravísitölu til grundvallar. Og auðvitað bera þessar tölur með sér að við búum nú við langvinnari kjaraskerðingu en kannski nokkru sinni fyrr, hægt og bítandi kjaraskerðingu frá einum mánuði til annars, verðbólgu sem er 27% þó laun hafi varla hækkað um krónu í 10 mánuði. Það lýsir auðvitað því að þessi ríkisstjórn hefur ekki staðið við þau fyrirheit sem hún gaf þegar síðasta ríkisstjórn var sprengd í loft upp og enginn þeirra ráðherra sem nú sitja í ríkisstjórn getur með nokkrum hætti réttlætt þær aðfarir sem þá voru, getur hvergi nærri staðið undir þeim vonum sem vinstri menn sannarlega gerðu til þessarar ríkisstjórnar.
    En af hverju er verðbólgan svona mikil? Það er talið að 7% af þessari verðbólgu eigi beint rætur sínar að rekja til þeirra miklu skattahækkana sem gengu í gildi um áramótin. Þá voru skattar hækkaðir um 6,5--7 milljarða eða sem svarar 150 þús. kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu svo að það má kannski segja að það sé ekki undarlegt þótt formaður flokks sem vill kalla sig verkalýðsflokk vilji skila einhverju af þessu til baka nú á vordögum. En spurningin er þá, eru þessir samningar með þeim hætti að búast megi við því að þeir komi launamönnum til góða? Ef það er rétt, sem hæstv. sjútvrh. segir, að samningarnir geri það óhjákvæmilegt að gengið haldi áfram að falla sem þýðir auðvitað að verðbólgan heldur áfram að vaxa, þá höfum við Íslendingar mjög langa og bitra reynslu af því, sérstaklega eftir að lánskjaravísitalan var tekin upp og vísitölukerfið náði að festast hér í landinu, að þessir kjarasamningar muni snúast upp í andhverfu sína og muni í raun verða kjararýrnun fyrir flesta launþega og helst þá sem verst eru settir því að það vitum við að verðbólgan bitnar þyngst og verst á þeim sem minnst hafa launin, sem veikust hafa bökin til að mæta henni. Það er þess vegna mjög mikill misskilningur hjá hæstv. fjmrh. þegar hann gerir því skóna að slíkir samningar séu umfram allt kvenlegir. Það kannast ég ekki við. Við höfum fram að þessu verið alveg einfærir um það karlarnir að magna verðbólguna hér á landi og höfum ekki þurft hjálp kvenna til þess. Ef þetta er hins vegar tilfellið, sem ég hef því miður ástæðu til að ætla, liggur það ljóst fyrir að þessir kjarasamningar munu verða ókjarasamningar og þá liggur það líka fyrir að verðbólgan sem við búum nú við muni halda áfram á næstu mánuðum. Þá getum við búist við því að meðalverðbólga ársins verði eitthvað á svipuðum nótum og verðbólgan þessa fyrstu þrjá mánuði, við séum að tala um svona 25--30% verðbólgu út þetta ár.

Það breytir engu þótt menn séu að reyna að tala um það að hægt sé að lækka vöruverð með krítarkortum eða tala upp í Keflavíkurtunglið með einhverjum öðrum hætti. Við stöndum því miður frammi fyrir þessari staðreynd.
    Ég hygg, eins og á þetta allt er litið, úr því að það er samdóma álit allra þeirra hæstv. ráðherra sem hafa talað að eðlilegt sé að þessir kjarasamningar hæstv. fjmrh. Ólafs Ragnars Grímssonar gangi með einum eða öðrum hætti yfir hinn almenna vinnumarkað og úr því að líka er búið að gefa í skyn nú af hæstv. fjmrh. í ótal viðtölum að hann hafi eitthvað annað og meira að bjóða Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna en þeim sem eru í BSRB --- ( Fjmrh.: Það er ekki rétt.) Það mun reyna á það. Eitthvað nýtt ætlar hæstv. forsrh. að bjóða. Það má vera að það sé rangt, hæstv. fjmrh., að hugmyndin sé að bjóða kennurum og öðrum háskólamönnum ekki upp á neitt annað betra --- þá hygg ég að drengilegra væri og röggsamlegra að flytja frv. um það hér á Alþingi að lögfesta þessa kjarasamninga fyrir háskólamenntaða menn þannig að skólarnir geti þá tekið til starfa á nýjan leik, börnin geti lokið sínum prófum. Þau eru búin að ganga í gegnum þetta nú fjögur ár í röð að verða fyrir alvarlegri röskun á skólaárinu og ef hæstv. fjmrh. er ákveðinn í því að svelta kennara og aðra opinbera starfsmenn til þess að ganga að þeim kjörum sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur nú samið um hygg ég að myndarlegra væri nú að flytja frv. hér á Alþingi um að lögfesta launin. Ég hygg hins vegar að þetta sé ekki rétt. Ég hygg að hæstv. fjmrh. hugsi sér að semja um annað og meira við hina háskólamenntuðu menn. Og ég hygg að það sé líka rétt sem kemur fram hjá forseta Alþýðusambands Íslands að hinn frjálsi vinnumarkaður muni ekki
láta sér nægja neitt minna. Ég held að það liggi alveg ljóst fyrir. Þess vegna eru þetta spurningar mínar til hæstv. sjútvrh.:
    1. Var honum kunnugt um hversu miklar launahækkanir fólust í þeim samningi sem hæstv. fjmrh. gerði við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja?
    2. Hyggst hæstv. sjútvrh. beita sér fyrir því að viðeigandi ráðstafanir verði gerðar til þess að gera sjávarútveginum það kleift að semja á svipuðum nótum og hann sjálfur og formenn stjórnarflokkanna hafa allir talið eðlilegt að sjávarútvegurinn semji um?
    3. Hvað tekur við hjá fiskvinnslunni um mánaðamótin maí--júní eða í júnímánuði þegar það fé sem nú er í frystideild Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins hefur gengið til þurrðar? Er hugmyndin að halda áfram þeim greiðslum sem kallaðar hafa verið uppsafnaður söluskattur og er talið að nemi um 1% af framleiðslukostnaði frystra sjávarafurða?
    Það væri fróðlegt að fá um þetta upplýsingar.
    Áður en ég lýk máli mínu, hæstv. forseti, vil ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir að hann skyldi hafa flýtt sér hingað á fund deildarinnar til þess að við mættum fá að heyra hvaða skoðanir hann hefur um þetta.
    Ég vil í leiðinni aðeins spyrja hæstv. iðnrh., vegna þess að það liggur líka fyrir að ýmis fyrirtæki í

samkeppnisiðnaði sem ekki njóta nægilegrar fjarlægðarverndar eða einokunar eru mjög illa haldin nú, hvort hann telji að samkeppnisiðnaðurinn geti tekið á sig þær launahækkanir sem felast í samningum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Ég vil taka fram að þær tölur sem ég nefni í sambandi við fiskvinnsluna, 13%, eru bráðabirgðatölur. Það má vel vera að í ljós komi að samningarnir feli í sér enn meiri launahækkanir en þetta þegar öll kurl eru komin til grafar og búið verður að gera sér nákvæma grein fyrir hvernig þessir samningar koma við fiskvinnslufólk.