Almenn hegningarlög
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á almennum hegningarlögum nr. 19 12. febrúar 1940. Frv. það sem hér er til umræðu er endurskoðun á XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en sá kafli fjallar um kynferðisbrot.
    Aðdragandi frv. er sá að þegar nauðgunarmálanefnd skilaði tillögum sínum í nóvember sl. var meðal tillagna nefndarinnar frv. til laga um breytingu á 194.--199. gr. almennra hegningarlaga. Með hliðsjón af þeim breytingum sem fram komu í frv. nauðgunarmálanefndar og því að á Alþingi vorið 1988 var frv. um breytingu á 202. og 203. gr. almennra hegningarlaga vísað til ríkisstjórnarinnar ákvað ég að láta endurskoða aðrar greinar XXII. kafla hegningarlaganna. Eru 2.--7. gr. frv. um endurskoðun á 194.--199. gr. hegningarlaganna óbreyttar frá því sem nauðgunarmálanefnd lagði til.
    Þær meginbreytingar sem frv. þetta felur í sér eru í fyrsta lagi að öll ákvæði kaflans eru nú gerð ókynbundin, en í gildandi lögum eru margar greinar þannig að einungis konur njóta refsiverndar og karlar einir geta verið gerendur. Er þetta gert í samræmi við réttarþróun sem átt hefur sér stað á þessu sviði í öðrum löndum og til að auka réttarvernd almennt gagnvart kynferðisbrotum.
    Þótt þessi brot bitni nær eingöngu á konum er ekki ástæða til að ætla að víðtækari refsivernd raski á nokkurn hátt réttarstöðu þeirra. Ákvæði frv. eiga því jafnt við um athafnir karla og kvenna og taka til kynferðismaka og annarra kynferðisathafna samkynja persóna eftir því sem við á.
    Í öðru lagi felst í frv. aukin réttarvernd þar sem á því er byggt að samræði verði skýrt rýmra en samkvæmt gildandi lögum, svo sem rakið er í grg. með frv., og lagt er til að lögfest verði að önnur kynferðismök verði lögð að jöfnu við samræði. Með öðrum kynferðismökum er átt við kynferðislega misnotkun á líkama annarrar manneskju er kemur í stað hefðbundins samræðis eða hefur gildi sem slíkt. Átt er við athafnir sem veita eða eru almennt til þess fallnar að veita hinum brotlega kynferðislega fullnægingu.
    Þá eru í frv. ný ákvæði um kynferðislega áreitni sem ekki er slík misnotkun á líkama að hún komi í stað hefðbundins samræðis eða hafi gildi sem slíkt. Hér er fyrst og fremst átt við káf ýmiss konar, þukl og annars konar líkamlega snertingu, ljósmyndun af kynferðislegum toga o.s.frv.
    Í gildandi hegningarlögum eru ekki bein ákvæði um þetta, en verknaðir sem falla undir framangreindar verknaðarlýsingar hafa verið heimfærðir undir 209. gr. hegningarlaga sem fjallar um að særa blygðunarsemi. Í þriðja lagi eru svo ákvæði um sifjaspell flutt úr XXI. kafla laganna í þennan kafla þar sem þau þykja betur eiga heima, enda oft nátengd öðrum kynferðisbrotum.
    Ég mun nú víkja að einstökum greinum þessa frv.
    Í 1. gr. er lagt til að heiti XXII. kafla laganna verði breytt þannig að tekið verði upp heitið

kynferðisbrot í staðinn fyrir ,,skírlífisbrot``. Rétt þykir að miða heiti kaflans frekar við einkenni háttseminnar en hin siðrænu viðhorf til brots og brotaþola.
    Í 2. gr. frv. eru lagðar til verulegar breytingar á 194. gr. hegningarlaga, þ.e. þeirri grein sem fjallar um nauðgun. Í fyrsta lagi er lýsing verknaðaraðferða rýmkuð verulega með rýmri túlkun á samræði og með því að leggja önnur kynferðismök að jöfnu við samræði svo sem áður er rakið, auk þess sem ákvæði frv. tekur nú auk beinnar valdbeitingar til allra refsiverðra ofbeldishótana sem er nú refsivert skv. 196. gr. gildandi hegningarlaga.
    Þá felst einnig rýmkun í því að ekki er lengur áskilið að hótun veki ótta um líf, heilbrigði eða velferð. Í öðru lagi er lögð til sú grundvallarbreyting að lagt er til að ákvæðið verði tvískipt. Það er almennt ákvæði, 1. mgr., og refsihækkunarákvæði, 2. mgr., með sjálfstæðum refsimörkum.
    Núgildandi ákvæði er með refsilágmarki sem lagt er til að fellt verði brott. Með þessu er ekki verið að draga úr því að um alvarlegt brot sé að ræða heldur er talið að refsiverndin verði virkari með þessum hætti. Skal það nú rökstutt nánar.
    Þegar ákveðið refsilágmark er í lögum, svo sem í núgildandi 194. gr., er ákveðin hætta á að brot verði ekki kært vegna þess. Þá er hætta á að ákært sé fyrir brot gegn greinum sem hafa vægari refsimörk eða jafnvel að dómstólar heimfæri brot undir þær. Þess má geta að í Danmörku var refsilágmark fellt brott fyrir 15--20 árum af framangreindum ástæðum þar sem viðamikil rannsókn sýndi að þessar ástæður voru til staðar. Auk þess hefur það verið almenn löggjafarstefna hér og í nágrannalöndum að fella brott refsilágmark nema við alvarlegustu brot. Má í því sambandi m.a. benda á 110. gr. og 142. gr. Í því að fella niður refsilágmark felst ekki að lagt sé til að dómstólar taki upp vægara refsimat en nú er gert.
    Varðandi 3.--7. gr. vísa ég til þess sem fram kemur í grg. með frv.
    8. gr. frv. fjallar um sifjaspell. Meginefni núgildandi 190. gr. er flutt í þessa grein og sameinar ný ákvæði um kynferðislega áreitni, en áður hefur verið fjallað um það hugtak. Auk þess eru önnur kynferðismök lögð að jöfnu við
samræði. Í núgildandi ákvæði er sifjaspell refsivert bæði fyrir foreldri og barn sé það komið á sakhæfisaldur. En í þessu ákvæði frv. er refsiábyrgð barna og annarra niðja felld brott. Rök þess eru m.a. að alla jafna eru það börn og ungmenni sem sæta misnotkun af hálfu hinna eldri er skáka í skjóli aldurs og reynslu. Ákvæðið á jafnt við um brot gagnvart skilgetnum og óskilgetnum börnum. Ef ofbeldi eða hótun um það er beitt er einnig refsað fyrir skv. 194. gr., sbr. 2. gr. frv., og ef barn er yngra en 14 ára er jafnframt refsað skv. 202. gr., sbr. 10. gr. frv. Refsimörk eru nokkuð þyngd frá núgildandi lögum.
    Í 3. mgr. eru ákvæði varðandi systkini. Er þeim breytt frá núgildandi ákvæðum á þann veg að refsimörk eru hert en jafnframt heimilað að fella niður refsingu þess eða þeirra sem ekki hefur náð 18 ára

aldri í stað 16 í núgildandi lögum.
    9. gr. frv. svarar til 201. gr. núgildandi laga með þeirri breytingu eins og í ýmsum öðrum greinum frv. að bætt er við ákvæðum um önnur kynferðismök og kynferðislega áreitni. Þá er í upptalningu barna bætt við stjúpbarni og sambúðarbarni.
    Varðandi 10.--17. gr. er vísað til þess sem segir í athugasemdum við þær greinar.
    Í frv. þessu eru refsimörk almennt þyngd frá því sem er í gildandi lögum. En frá því eru einstök tilvik er nánar er gerð grein fyrir í athugasemdum við einstakar greinar. Verði frv. þetta að lögum verða refsimörk fyrir kynferðisbrot hér á landi með þeim þyngstu á Norðurlöndum.
    Ég gat þess hér á undan að hvatinn að frv. þessu hefðu verið tillögur frá nauðgunarmálanefnd um breyting á 194.--199. gr. almennra hegningarlaga. Í skýrslu og tillögum nauðgunarmálanefndar er mikil áhersla lögð á aukna réttarvernd og aðra aðstoð við fórnarlömb eða þolendur kynferðisbrota. Að bæta réttarstöðu þeirra verður ekki gert með því einu að breyta hegningarlögum. Öll hegningarlög fjalla fyrst og fremst um háttsemi geranda og hvernig eigi að fara með hann. Í þessum kafla hegningarlaganna skiptir viðhorf þolenda meira máli en víðast annars staðar í hegningarlögum.
    Í þessu frv. eru ákvæði þar sem almenn siðferðisviðhorf og þjóðfélagsviðhorf skipta máli, bæði varðandi mat á einstökum verknuðum og alvarleika þeirra. Lögð hefur verið áhersla á að gera frv. þannig úr garði að viðunandi friður megi haldast um viðkvæm siðferðisviðhorf jafnframt því að bæta réttarvernd þeirra sem fyrir kynferðisbrotum verða.
    Herra forseti. Ég vil að lokinni þessari umræðu leggja til að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.