Almenn hegningarlög
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég fagna því að þessar lagabreytingar eru komnar í frumvarpi inn á þingið því hér er um að ræða breytingar á lögum sem eru orðin nokkuð gömul eða frá 12. febr. 1940 og var sannarlega nauðsyn að gera tillögur um breytingar á þeim með hliðsjón af breyttum þjóðfélagsháttum og viðhorfum.
    Ég átti sæti í þeirri nefnd sem hæstv. ráðherra gat um áðan og starfaði í henni í fjögur ár. Það samstarf var mjög gott og leiddi til ítarlegrar skýrslugerðar og reyndar rannsókna eða kannana sem munu væntanlega verða gefnar út prentaðar á næstunni og þá dreift hér á Alþingi.
    Í þeirri skýrslu kemur fram, eins og reyndar kom fram í máli hæstv. ráðherra, að þær breytingar sem nefndin lagði til eða þær tillögur sem hún gerði vörðuðu breytingar á XXII. kafla almennra hegningarlaga eins og hér kemur fram. Þar eru einnig breytingar á lögum um meðferð opinberra mála, síðan tillögur um neyðarmóttöku fyrir þá sem verða fyrir nauðgunum og kynferðislegu ofbeldi og námskeið fyrir lögreglumenn og starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar því að fræðsla og upplýsingar eru mjög mikilvæg til að breyta viðhorfi manna og þá um leið meðferð þessara mála allra.
    Þær breytingar sem hér eru lagðar til eru eins og kom fram gerðar með hliðsjón af norrænum lögum. Þar hefur tekist samstarf milli dómsmrh. að halda breytingum sem mest jafnfætis hjá Norðurlandaþjóðunum og hafa þessar breytingar sem hér liggja fyrir nokkuð verið miðaðar við lögin í þessum nágrannalöndum okkar.
    Mig langar að fara lítillega yfir frv. eins og það liggur fyrir og gera við það nokkrar athugasemdir. Ég álít að hér séu margar breytingar til bóta. Ég er hins vegar ekki alveg sammála öðrum og vildi gjarnan gera athugasemdir og jafnvel tillögur til breytinga þar sem það á við. En að mestu tel ég þessi frumvarpsdrög bjóða mun betri réttarstöðu og réttarvernd fyrir þá sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi.
    Það er þá fyrst, eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra, að ákvæðin eru ókynbundin hvað varðar nauðgun og kynferðislegt ofbeldi. Ég tel það vera réttlætismál því að hér er auðvitað ekki einungis um konur að ræða sem verða fyrir slíku þó að í stærstum meiri hluta sé það svo. Það er einnig um að ræða drengi og karla sem geta orðið fyrir þessum verknaði.
    Síðan tel ég mjög mikilvægt að önnur kynferðismök eru lögð að jöfnu við samræði og einnig og ekki síður að kynferðisleg áreitni er nú tekin upp sem refsivert athæfi og skilgreind, eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra. En þar er átt við ýmiss konar káf, þukl og annars konar líkamlega snerting og ljósmyndum af kynferðislegum toga. Það kemur fram í athugasemdum með frumvarpsgreinunum að rétt þyki að veita slíkri háttsemi meiri athygli en áður með þessu sérákvæði og taka harðar á brotum og ég held að það sé rétt. Síðan eru refsiákvæði almennt fremur þyngd í þeim tillögum sem hér koma fram.

    Ég vil nú víkja lítillega að greinunum.
    Eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra gerði nefndin sem slík tillögur til breytinga á 194.--199. gr. og eru þessar breytingar sem hér liggja fyrir samhljóða tillögum hennar. Aðrar breytingar voru gerðar af Jónatan Þórmundssyni prófessor sem var formaður nefndarinnar og Þorsteini A. Jónssyni sem var ritari nefndarinnar og er deildarstjóri í dómsmrn.
    Það hefur komið fram, ef ég vík að 194. gr. eða breytingum á henni í 2. gr. frv., að margar konur gera sér ekki grein fyrir því að 194. gr. nær yfir nauðganir sem eiga sér stað í hjónabandi eins og þær nauðganir sem eiga sér stað utan hjónabands. Það er álitamál hvort þurfi að taka slíkt inn í 194. gr. Ég hef grun um að mörgum lögfróðum mönnum þyki það ástæðulaust vegna þess að slíkt hafi falist í íslenskri löggjöf í langan tíma og verið skilið þannig af lögfræðingum. Það gæti verið að fræðsla væri þarna leiðin til þess að það kæmi skýrt í ljós að athæfið er jafnrefsivert innan hjónabands sem utan.
    Ég geri ekki athugasemdir við aðrar greinar fyrr en greinina sem varðar sifjaspell. Þar er flutt grein úr XXI. kafla um sifskaparbrot, sú grein sem varðar kynferðislegt athæfi, yfir í XXII. kafla sem skírður hefur verið kafli um kynferðisbrot, sem ég tel reyndar vera betra heiti en skírlífisbrot, og skipað niður í tvær greinar, 8. og 9. gr., í þessu frv. Þar er lagt til að önnur kynferðismök verði lögð að jöfnu við samræði og tel ég það til bóta. Þar er einnig felld niður refsiábyrgð barna og annarra niðja og refsimörk nokkuð þyngd og tel ég það til bóta.
    Þó vek ég athygli á því að ég tel mjög vafasama þá skiptingu sem gerð er í 8. og 9. gr. á milli þeirra sem eru blóðskyldir og þeirra sem hafa forræði yfir börnum vegna þess að þau eru kjörbörn, stjúpbörn, fósturbörn, sambúðarbörn eða ungmenni sem manni hefur verið trúað fyrir til kennslu eða uppeldis. Ég held að sá áverki, það áfall sem barn verður fyrir við sifjaspell sé jafnalvarlegt í raun og jafnþungbært ef um er að ræða blóðskyldan aðila og aðra fullorðna manneskju sem er í raun forræðis- eða umhyggjuaðili og sá aðili sem barnið tengist tilfinningalega. Tilfinningatengslin eru grundvallaratriði í þessum málum að mínu viti. Þess vegna finnst mér í raun að það þurfi að
víkka út skilgreininguna á sifjaspelli. Hún eigi ekki fyrst og fremst að taka til blóðtengsla hvað varðar mat löggjafans á verknaðinum. Ég held að verknaðurinn geti haft jafnalvarleg áhrif á barnið og sé í raun jafnvítaverður glæpur gagnvart kynfrelsi barnsins ef um þann aðila fullorðinn er að ræða sem barnið treystir best. Þetta er ekkert einfalt mál og ég hef heyrt þær röksemdir að með því að víkka út þessa skilgreiningu verði refsimörkin og túlkun lagagreinarinnar e.t.v. ómarkvissari, en ég tel að trúnaðarbresturinn við barnið og brotið gegn kynfrelsi þess sé hér meginatriði. Við erum að fjalla hér í raun um ævaforn tabú eða helgispjöll þar sem um er að ræða sifjaspell á milli blóðskyldra og það kunna að liggja ýmsar djúpstæðar ástæður að baki strangari

refsingum gegn slíkum brotum eins og t.d. verndun á kynstofni eða eitthvað slíkt. Auðvitað koma þarna líka til tilfinningar væntumþykju og það að fremja glæp gegn sínu eigin blóði, en ef við lítum á þolandann, á barnið, held ég að glæpurinn gegn því sé í raun og geti verið oft jafnalvarlegur þegar um staðgengil blóðskyldra er að ræða.
    Í sambandi við refsimörkin held ég að flestir geri sér grein fyrir því að refsingar eru ekki það sem vegur þyngst til að bæta úr þessum málum. Hins vegar eru refsingar mælikvarði löggjafans og samfélagsins á það hversu vítaverður glæpur er, hversu refsiverður hann er í raun og veru. Ég tel þetta vera mjög alvarlegan glæp og þess vegna og vegna þess sem ég hef áður sagt þurfi að samræma refsingarnar í 8. og 9. gr., en ég viðurkenni fúslega að ég tel ekki að það sé hægt að bæta þeim sem verður fyrir slíku broti með refsingu gerandans og ég tel heldur ekki að það sé hægt að betrumbæta þann aðila eða hjálpa honum eða lækna hann með því einungis að refsa. Þar hlýtur meðferð að koma til skjalanna fyrst og fremst þó að hennar sé hvergi getið í þessu frv., enda er hér um hegningarlög að ræða og það er víst ekki siður að tiltaka meðferð í slíkum lögum.
    Síðan vil ég víkja að 12. gr. og ég vil lesa þá grein, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,205. gr. orðist svo:
    Refsing skv. 194.--204. gr. má falla niður ef karl og kona er kynferðismökin hafa gerst í milli, hafa síðar gengið að eigast eða tekið upp óvígða sambúð, ef þau voru þá í hjónabandi eða óvígðri sambúð, hafa eftir það tekið upp eða haldið áfram sambúð.``
    Nú skilst mér að það hafi aldrei reynt á þessa grein og mér finnst að það mætti fella þessa grein í burtu, það hljóti að vera mat dómsvalds og ákæruvaldsins á hverjum tíma að fella slíkt út og þurfi ekki sérstaka lagaheimild til. En eins og greinin stendur þarna finnst mér hún vekja villandi hugrenningatengsl. Hún vekur þau hugrenningatengsl að hjónaband eða óvígð sambúð geti á einhvern hátt, þótt síðar verði, réttlætt slíkan verknað. Það finnst mér vera hættulegt. Og þar sem aldrei hefur reynt á greinina og vandinn í kerfinu hefur ekki verið sá að ákæruvald eða dómsvald hafi verið svo áfjáð í að reka þessi mál tel ég að þessi grein mætti vel missa sig án þess að lögin mundu skaðast.
    Ég vil þá víkja að 13. gr., greininni sem fjallar að hluta um vændi. Ég mundi vilja leggja til að það verði fellt burt að vændi sé refsivert. Ástæðurnar eru að ég tel í raun að vændi sé leið til að framfæra sig sem sé slíkt neyðarbrauð, sem manneskja hljóti að hrekjast út í af slíkum vandræðum með líf sitt og sjálfa sig, að slíkri manneskju þurfi samfélagið miklu fremur að hjálpa en að refsa. Ef litið er til þessa erlendis og reyndar líka hérlendis er það mjög algengt að þeir sem stunda vændi eru jafnframt fórnarlömb eiturlyfjaneyslu og stunda vændi til að fjármagna hana. Satt að segja finnst mér í raun mun refsiverðara að nýta sér vændi, vera neytandi vændis en að stunda það og mér finnst í raun það samfélag þar sem vændi

þrífst sé mun saknæmara en sá sem hrekst út í að stunda slíkt. Þess vegna mundi ég vilja leggja til að orðin ,,stundar vændi sér til framfærslu eða`` falli í burtu og setningin hljóði: Hver sem hefur atvinnu eða viðurværi sitt af lauslæti annarra skal sæta fangelsi allt að fjórum árum. --- Því að það fellst ég á að sé refsivert.
    Síðan er annað atriði í þessari grein sem ég vildi gera athugasemd við og ég vil lesa það með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Sömu refsingu varðar það einnig að stuðla að útflutningi nokkurs manns úr landi í því skyni að hann hafi ofan af fyrir sér erlendis með lauslæti ef útflytjandinn er yngri en 21 árs eða honum er ókunnugt um þennan tilgang með utanförinni.``
    Nú hefur það gerst á undanförnum árum víða í nágrannalöndum okkar að konur frá Suðaustur-Asíu hafa flust eða verið fluttar til t.d. Norðurlandanna, stundum hreinlega til að ganga í hjónaband þar sem þeim er ekki misboðið en þær eru jafnréttisaðilar og ekkert er athugavert, en stundum til þess að nýta þær annaðhvort í vændi eða til illrar meðferðar. Þær koma úr fátæku umhverfi og atavinnuleysi í annan menningarheim sem þeim er framandi og verða oft fórnarlömb óprúttinna aðila. Þess vegna mundi ég vilja leggja til, án þess að
ég sé að fullyrða að um slíkt sé að ræða hér á landi nú, að ákvæðið varði bæði útflutning og innflutning því að ég tel hvort tveggja jafnsaknæmt í raun og það þyrfti ekki miklar breytingar á þessari grein til að taka hvort tveggja með.
    Ég ætla ekki að orðlengja frekar um þetta við 1. umr. Ég vildi samt koma með þessar athugasemdir. Ég er viss um að það er hægt að ræða þær og aðrar athugasemdir sem fram kunna að koma í friði og samlyndi í nefndinni. Ég hygg að allir viti að það er mjög nauðsynlegt að breyta þessum lögum og það er kannski enn nauðsynlegra að koma með raunveruleg meðferðarúrræði til að bæta alla meðferð málanna og þá sérstaklega allt viðmót við brotaþola aða þá sem verða fyrir slíku kynferðislegu ofbeldi.
    Þó að sannarlega væri ekki vanþörf á að ræða þessi mál ítarlegar mun ég láta hér staðar numið. Ég vil biðja um áheyrnaraðild að hv. allshn. Ed. þegar fjallað verður um þetta mál. Þar mun væntanlega gefast tækifæri til að líta á það frá öllum hliðum og ég vonast eftir góðri samvinnu við hv. nefnd.