Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Guðmundur Ágústsson:
    Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir það að leggja þetta frv. fram og efna það loforð sem hann gaf mér í sameinuðu þingi fyrir nokkrum vikum síðan. Ég vona svo sannarlega að þetta frv. verði að lögum á þessu þingi því það er mikil nauðsyn á því að breyta lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins þannig að starfsmenn Sinfóníuhljómsveitarinnar fái þar fulla aðild.