Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga á þskj. 768 um breytingu á lögum nr. 18 11. maí 1977, sbr. lög nr. 45 11. maí 1982 og lög nr. 95 28. maí 1984, um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði. Þetta frv. er samið í iðnrn. Það er flutt til að heimila Íslenska járnblendifélaginu að taka þátt í öðrum atvinnurekstri en bræðslu kísiljárns. Frv. byggir m.a. á hugmyndum sem hafa verið ræddar í stjórn félagsins og sem framkvæmdastjóri þess hefur rætt við aðra hluthafa og þeir fyrir sitt leyti geta fallist á.
Það er kjarni þessa máls að lagt er til að hlutafélaginu, Íslenska járnblendifélaginu hf., verði heimilað að tryggja vöxt fyrirtækisins með arðvænlegum fjárfestingum í öðrum greinum atvinnurekstrar, annaðhvort með þátttöku í öðrum félögum eða með stofnun dótturfyrirtækja.
Í lögum nr. 18/1977 er tekið fram að verksmiðjan skuli reist og rekin til að framleiða kísiljárn og til að hafa með höndum þá framleiðslu og tengdan atvinnurekstur. Í samræmi við þetta var tilgangur hlutafélagsins skilgreindur í 3. gr. samþykkta þess á þennan hátt, með leyfi hæstv. forseta, ,,að byggja, eiga og reka verksmiðju á Íslandi til framleiðslu á kísiljárni og að hafa um hönd alla starfsemi eða viðskipti sem atvinnurekstur þessi þarfnast eða honum fylgir``.
Frá því að ákvarðanir um byggingu kísiljárnverksmiðjunnar voru fyrst teknar hafa flestar forsendur þessa iðnaðar breyst mikið, bæði að því er varðar framboð á kísiljárni á heimsmarkaði og eftirspurn eftir því. Eins og nú standa sakir er ekki talið tímabært eða ráðlegt að stækka verksmiðju Járnblendifélagsins með viðbótarofni eða ofnum. Afkoma félagsins er góð og því þykir eðlilegt að leggja til að verksvið félagsins verði rýmkað og að þeir fjárhags-, tækni- og stjórnunarburðir sem fyrirtækið hefur yfir að ráða verði nýttir á fleiri sviðum en þeim sem í upphafi var ætlast til. Á þennan hátt gæti Járnblendifélagið orðið virkur þátttakandi að atvinnurekstri í landinu, ekki síst í sínu heimahéraði, bæði í nýiðnaði og rekstri sem fyrir er. Meðal þeirra nýiðnaðarverkefna sem notið gætu góðs af þekkingu og fjármagni í félaginu eru t.d. þróunarverkefni á sviði eldistækni, málmbræðslu og endurvinnslu málmúrgangs þar sem fyrirtækið hefur góðar forsendur til að verða að liði og koma upp nýrri, arðvænlegri framleiðslu. Ég nefni þetta eingöngu sem dæmi því að ég tel alls ekki að félagið eigi að vera bundið af því að fjárfesta eingöngu í iðnfyrirtækjum.
Það er ánægjulegt tilefni sem þetta frv. á sér og það er það að þarna hefur verið svo mikill og góður rekstrarafgangur, bæði í fyrra og sýnilega á þessu ári að það er vandasamt viðfangsefni hjá félaginu að festa þennan arð í nýjum fjárfestingum sem geti skilað fyrirtækinu og öllum landsmönnum arði.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að hafa um þetta mál fleiri orð, en legg áherslu á að þetta frv. nái fram að ganga á þessu þingi. Að endingu legg ég til að frv. verði að lokinni þessari 1. umr. vísað til hv. iðnn. og
2. umr.