Járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég vil lýsa yfir ánægju minni yfir þessu frv. Þetta frv. er skýr vottur þess hversu vel getur til tekist í samvinnu Íslendinga og erlendra aðila, annars vegar í stórverkefnum sem lúta að því að nýta auðlindir okkar, fallvötnin, til stóriðjurekstrar og hins vegar þegar vel tekst til hvernig slík fyrirtæki geta orðið mikill styrkur í nýrri atvinnuuppbyggingu hér á landi hvort sem við tölum í þeim efnum um þróunarverkefni á sviði efnistækni, málmbræðslu og endurvinnslu málmúrgangs, en það er auðvitað sjálfsagt líka að minnast á það, og ég hygg að það sé rétt, að þetta fyrirtæki hafi velt fyrir sér fiskeldi og ýmsum öðrum sviðum. Framleiðsluiðnaður af þessu tagi er auðvitað forsenda þess að hér sé hægt að lifa því menningarlífi sem við viljum og er sú vítamínssprauta í atvinnulífið sem við þurfum svo sannarlega á að halda.
    Við sjáum víðar á landinu dæmi um uppbyggingu sem hefur með þessum hætti orðið mikil stoð eða styrkur fyrir þau sveitarfélög þar sem slík fyrirtæki eru. Ég minnist t.d. á Kísiliðjuna við Mývatn. Ég get líka minnst á Ísno þar sem samvinna Íslendinga og Norðmanna hefur valdið því að mjög athyglisverður árangur hefur náðst í fiskeldi, sem hv. 8. þm. Reykv. kann raunar betur að rekja en ég, sem okkur munar mikið um í okkar útflutningstekjum.
    Síðast en ekki síst vil ég láta í ljósi ánægju mína yfir því að Alþb. skuli standa að þessu frv. sem einn aðili að ríkisstjórninni. Það er um leið viðurkenning Alþb. á þeirri miklu þýðingu sem stóriðjan hefur fyrir okkur Íslendinga þegar vel tekst til. Ég vil sérstaklega láta í ljósi ánægju mína yfir því um leið og ég fullvissa hæstv. viðskrh. um það að ef eitthvað stendur á Alþb. að koma þessu máli greiðlega í gegnum þingið þá munum við sjálfstæðismenn svo sannarlega gera allt sem við getum til þess að greiða fyrir málinu.