Járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Skúli Alexandersson:
    Herra forseti. Ég þakka fyrir árnaðaróskir og góðar og hlýjar kveðjur frá hv. 2. þm. Norðurl. e. í sambandi við það mál sem hér er til umfjöllunar. Ég skal fullvissa hann um það að Alþb. stendur einhuga bak við iðnrh. um það að fá þetta frv. samþykkt.
    Í sambandi við það fyrirtæki sem hér er verið að fjalla um, Íslenska járnblendifélagið, þá hafa átt sér stað miklar umræður um það og áttu sér stað miklar umræður í upphafi þegar þessi verksmiðja var byggð. Ekki er hægt að bera á móti því að rekstur þessa fyrirtækis hefur gengið á ýmsu. Það féll í hlut iðnrh. Alþb. að gera kannski stærstu hlutina til þess að tryggja rekstur fyrirtækisins eða leggja til eða standa fyrir stærstu fjárveitingunni frá íslenska ríkinu til þessa fyrirtækis til að tryggja áframhaldandi rekstur þess. Það er komið á daginn að sú aðgerð var rétt og hún er að skila sér núna með góðri afkomu þessa fyrirtækis sem er að meiri hluta í eigu Íslendinga og undir íslenskri forsjá.
    Það þarf að gera það upp við sig hvort þetta fyrirtæki á að endurgreiða þann tekjuafgang, sem núna blasir við, til meðeigendanna erlendu eða nota hann, eins og vilji er fyrir í öllu hlutafélaginu, til þess að koma upp nýjum atvinnugreinum. Ég tel það svo sjálfsagt mál að nota þetta fjármagn til þeirra hluta og Alþb. stendur, eins og ég sagði hér áðan, einhuga að því að nota þá peninga sem verða til í íslenskum atvinnuvegi, sem þarna er um ræða, til þess að byggja upp íslenska atvinnuvegi.