Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. á þskj. 769 um breytingu á lögum nr. 62 5. sept. 1986, um rétt manna til að kalla sig verkfræðinga, húsameistara, húsgagna- og innanhússhönnuði, tæknifræðinga eða byggingarfræðinga.
Þetta frv. er samið í iðnrn. og með því er lagt til að starfsheitið landslagshönnuður verði lögverndað hér á landi. Með starfsheitinu landslagshönnuður er átt við þá sem að menntun og starfsþjálfun eru hliðstæðir þeim sem á ensku nefnast landscape architect og á dönsku landskabsarkitekt og á þýsku Landschaftsarkitekt.
Frv. er flutt að tilmælum Félags landslagsarkitekta sem svo er nefnt sem fyrst óskaði eftir lögverndun á sínu starfsheiti á árinu 1983. Ekki þótti fært að verða við þeim tilmælum félagsins að lögvernda orðið arkitekt, enda hafa t.d. félagar í Arkitektafélagi Íslands hið lögverndaða starfsheiti húsameistari en ekki arkitekt eins og starfsbræður þeirra í öðrum löndum. Reyndar var það svo að af hálfu iðnrn. var lagt til að starfsheitið yrði þýtt annaðhvort með orðinu umhverfishönnuður eða landslagsmeistari sem væri þá líkt hinu íslenska heiti arkitektanna, þ.e. húsameistari. Félagið óskaði hins vegar eindregið eftir starfsheitinu landslagshönnuður með vísan til þess að önnur þau félög sem lögvernduð starfsheiti hafa samkvæmt þessum lögum voru meðmælt því heiti og eftir atvikum fellur það að sinni gerð saman við húsgagna- og innanhússhönnuði og gat ráðuneytið fyrir sitt leyti fallist á þetta starfsheiti.
Ég vil taka það alveg skýrt fram að í frv. er aðeins lagt til að starfsheitið sem slíkt sé lögverndað en í því felst ekki einkaréttur til starfa. Það verður að teljast eðlilegt og reyndar sanngjarnt að þeir sem fást við hönnun á landslagi og gerð garða fái lögverndað starfsheiti eins og sambærilegar stéttir. Ég vil í því sambandi taka sérstaklega fram að Alþjóðavinnumálastofnunin viðurkenndi starfsheitið landslagsarkitekt árið 1968 og flokkaði það samhliða starfsheitunum húsameistari og skipulagsfræðingur. Ég vil líka taka það fram að umsagna um þetta mál var aflað frá þeim aðilum sem lög nr. 62 frá 5. sept. 1986 taka til og eru þær umsagnir prentaðar sem fylgiskjöl með frv.
Hæstv. forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál en legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. iðnn. og 2. umr.