Innflutningur búfjár
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um innflutning búfjár á þskj. 771 sem er 411. mál. Í samræmi við ályktun Alþingis frá 24. febr. 1987 skipaði þáv. landbrh. nefnd til að endurskoða gildandi lög um innflutning búfjár, það eru lög nr. 74/1962. Seint á síðasta ári skilaði nefndin frá sér tillögum að frv. til nýrra laga um þetta efni og hafa þær tillögur hlotið talsverða umfjöllun og umsögn nokkurra aðila verið fengin. Ekki vannst þó tími til að leggja það heildarfrumvarp fyrir Alþingi það sem nú situr af ýmsum ástæðum en stefnt er að því að það geti orðið næsta haust.
    Í 19. gr. núgildandi laga er skýrt kveðið á um bann við flutningi búfjár frá Sóttvarnastöð ríkisins. Jafnframt er þar kveðið á um heimildir til flutnings á sæði frá Sóttvarnastöð ríkisins í land; þetta er Sóttvarnastöð ríkisins í Hrísey.
    Nú er frá því að segja að frá gildistöku þessara laga, sem eru eins og ég áður gat um frá 1962, hefur komið fram ný tækni við flutning erfðaefnis milli dýra og er þar átt við flutning á fósturvísum sem eru frjóvguð egg eða fóstur á frumstigi. Flutningur á fósturvísum frá Hrísey til lands býður upp á mun hraðari framræktun Galloway-nautgripakynsins en ef notaðar eru sæðingar sem augljóst má vera. Það er því talið mikilvægt með tilliti til framræktunar Galloway-kynsins í landi og einnig til að stytta þann tíma sem Sóttvarnastöðin verður eingöngu bundin við ræktun þessa eina búfjárkyns að fá lagaheimild til að nota þessa nýju tækni. Af þeirri ástæðu er gert ráð fyrir í frv. að aukið verði við 19. gr. núgildandi laga og sett þar inn heimild til handa landbrh. að leyfa að fengnu samþykki yfirdýralæknis flutning fósturvísa úr kúm í Sóttvarnastöðinni í land. Sjúkdómahætta af slíkum flutningi er talin hverfandi.
    Ástæða þess að þetta frv. er nú flutt er einfaldlega sú að talið var æskilegt að fá þessa lagaheimild til að henni væri unnt að beita ef það sýndist ráðlegt þegar á þessu ári þó að heildarendurskoðun laganna dragist fram til næsta þings af ýmsum ástæðum sem ég tel óþarft að rekja hér. Ég vona að þessi smávægilega lagabreyting fái hér greiðan gang í gegnum þingið af þeim praktísku ástæðum sem ég hef nú gert grein fyrir og legg svo til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til hv. landbn.