Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Það mál sem hér er til umfjöllunar finnst mér vera með dálítið sérstökum hætti og sérstakt, að það þurfi sérstök lög á Alþingi Íslendinga til að flytja inn verkfæri eins og dýpkunarpramma. Hefði nú kannski ekki verið réttara með þessari lagabreytingu að breyta þeim lögum sem banna alfarið að flytja til landsins allt það sem hægt er að kalla skip, að þar væri ákveðin undanþága fyrir skip sem ekki eiga að vera til fiskveiða en eru eins og þarna er dýpkunarprammar í 1. og 2. gr. --- og 3. gr. um það að Slysavarnafélagið megi flytja inn skip? Að við séum með þannig lög í landinu að leita þurfi sérstakrar lagaheimildar Alþingis fyrir því að Slysavarnafélag Íslands komi með björgunarskip til landsins og að það þurfi að leita sérstakrar lagaheimildar til þess að Köfunarstöðin komi með dýpkunarskip, það er að mínum dómi nokkuð skrýtið og mér fyndist eðlilegra að þeim lögum sem loka fyrir að þetta sé leyfilegt verði breytt.
Um 4. gr. vildi ég segja þetta: Mér finnst sú grein orka nokkuð tvímælis. Eigum við að fara að leyfa kaup á fiskiskipum jafnvel þó að við setjum þá klásúlu í lögin að þessum skipum verði síðan óheimilt að stunda veiðar við strendur Íslands? Hver verður staða löggjafans þegar að því kemur við breyttar aðstæður að þetta skip, eftir að hafa nýtt sér veiðimöguleika við strendur Alaska eða vesturströnd Bandaríkjanna, hefur ekki lengur þá möguleika eða þeir eru kannski óhagkvæmir? Gæti ekki staðan orðið eitthvað svipuð þeirri sem manni virðist að ríkisstjórnin hafi staðið frammi fyrir hjá Arnarflugi eða öðrum fyrirtækjum sem eru búin að byggja sig upp og búið að gefa ákveðinn rétt, að það verði erfitt að snúa við eða erfitt að segja nei við því þegar þetta skip kæmi heim og legðist hér að bryggju og þyrfti á því að halda til þess að tapa ekki kannski stórum fjármunum, og ætti góða að í kerfinu? Mér finnst það kalla einmitt á eitthvað slíkt.