Umferðarlög
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Flm. (Eiður Guðnason):
    Herra forseti. Í ljósi þess að langt er nú liðið á dag, dagur senn að kveldi kominn, skal ég reyna að vera mjög stuttorður um þetta frv. á þskj. 706 sem ég hef flutt um breytingu á umferðarlögunum.
    Ný umferðarlög gengu í gildi 1. mars 1988. Þau höfðu í för með sér margvíslegar breytingar frá þeim lögum sem áður giltu, velflestar til bóta. Gert er ráð fyrir því í gildandi lögum að þau skuli endurskoða fyrir árslok 1991 og er það auðvitað góðra gjalda vert. Hins vegar hefur komið í ljós að ýmsum ákvæðum í þessum nýju umferðarlögum þyrfti að breyta og það helst sem fyrst.
    Nú er mér það ljóst að nýlega hefur verið hér til umræðu annað frv. til breytinga á umferðarlögum, þ.e. á þskj. 669, sem nokkrir hv. þm. í þessari deild flytja. Það kom í ljós á undirbúningsstigi að bæði hv. þm. Salome Þorkelsdóttir og sá sem þetta mælir voru með mál af þessu tagi í undirbúningi og varð það að samkomulagi okkar á milli að við flyttum hvort sitt frv. og síðan yrði unnið að þeim báðum í nefnd og þau þá hugsanlega sameinuð að svo miklu leyti sem það getur átt við, en að sumu leyti fjalla þessi mál um hið sama.
    Ég skal í örstuttu máli gera grein fyrir þeim breytingum sem felast í mínu frv. Þær eru átta talsins.
    Í fyrsta lagi er mjög einföld breyting. Það er að breyta orðinu afrein í frárein. Í gildandi umferðarlögum er talað um aðreinar og afreinar þar sem ekið er út af akbraut. Það hefur komið í ljós að þessi orð eru svo lík í munni og framburði að hætta er á að þau valdi ruglingi. Eðlileg og einföld breyting er að nota aðrein og frárein.
    Önnur gr. frv. gerir ráð fyrir að færa ákvæði til fyrra horfs varðandi framúrakstur á gatnamótum. Það kom fljótlega í ljós að d-liður 1. mgr. 22. gr. orkaði tvímælis. Hann gekk þvert á þá reglu að ekki megi aka fram úr á gatnamótum. Það hefur nokkrum sinnum komið til að tryggingafélög hafa lagt ábyrgð á þá sem beygt hafa til vinstri á gatnamótum en lent í árekstri við ökutæki sem í sömu andrá hefur verið ekið fram úr í gagnstæða stefnu. Reynslan hefur bara sýnt að það er brýnt að breyta þessu.
    Í 3. gr. er fjallað um ökuréttindi og í athugasemd um greinina segir: Í frv., sem lagt var fram á þinginu 1984--1985, var lagt til að dómsmrh. gæti sett reglur um frekari skilyrði fyrir auknum ökuréttindum til að stjórna vörubifreið sem væri 3500 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd. Í meðförum þingsins var þessu breytt í ,,vörubifreið sem skráð er fyrir meira en 5000 kg farm``.
    Nú er það svo að til eru ýmsar bifreiðar sem eru langtum þyngri eða 3500 kg en eru kannski ekki til þess gerðar að bera farm. Og það er lagt til hér að greininni verði breytt til þess horfs sem var í upphaflega frv. en seinna var breytt á Alþingi, enda er það í samræmi við alþjóðasamninga sem við erum aðilar að.
    Í fjórða lagi geyma núgildandi umferðarlög ákvæði um að fullnaðarökuskírteini skuli gilda þar til

ökumaður nær 70 ára aldri. Í eldri lögunum var gildistími almennra ökuskírteina ákveðinn 10 ár. Hér er lagt til að sú regla verði tekin upp aftur og ég held að ekki þurfi að fara mörgum orðum um það. Menn nota ökuskírteini í mjög vaxandi mæli sem persónuskilríki. Og skírteini með 50 ára gamalli mynd er kannski heldur gagnslítið sönnunargagn, aukinheldur getur hæfni ökumanns breyst vegna sjúkdóma eða slysa og því er lagt til að sú regla verði tekin upp að nýju að ökuskírteini skuli endurnýjað á 10 ára fresti.
    Fimmta breytingin er sú að skylda þá sem sitja í aftursæti bifreiða sem búnar eru öryggisbeltum til þess að nota slík belti. Slík skylda er nú í lögum í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Ætla má að almenningur á Íslandi sé hlynntur þessari breytingu og nægir í því sambandi að minna á könnun Hagvangs fyrir tímaritið Heilbrigðismál í september 1988. Í 1087 manna úrtaki voru 88% hlynnt skyldunotkun bílbelta í aftursæti en 12% voru andvíg. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta. Það eru ótal dæmi um slys á fólki í aftursætum, einkanlega kannski börnum sem kastast fram þegar árekstur verður með ógnarhraða og þyngd.
    Þá er lagt til í þessari grein að við fetum í fótspor Finna, Norðmanna og Svía og raunar fleiri þjóða og gerum skylt að hafa börn í viðeigandi öryggisbúnaði í bifreiðum. Hér er lagt til að sú skylda verði lögð á ökumenn að þeir sjái um að börn noti viðeigandi og mátulegan öryggisbúnað. Loks er lagt til að í lögin komi ákvæði þar sem sé beinlínis bannað að börn séu laus í framsæti eða framan við framsæti í akstri. Um þetta þarf raunar ekki að fara mörgum orðum.
    Í sjötta lagi er lagt til að lögleitt verði að nota hjálma við akstur svonefndra torfærutækja. Er þá einkum átt við vélknúna snjósleða og vélknúin þríhjól og fjórhjól. Reynslan og það meira að segja nýleg og sorgleg reynsla hefur sýnt að ekki ber minni nauðsyn til að lögbinda hjálmanotkun við akstur
slíkra farartækja en við akstur bifhjóla.
    Í sjöunda lagi er ákvæði sem varðar tryggingamál. Þar er lögð á eiganda skráningarskylds vélknúins ökutækis sú skylda að tryggja ökumann þess. Skal vátryggingin tryggja bætur vegna slyss sem ökumaður kann að verða fyrir við starfa sinn. Það hefur komið í ljós, án þess að ég fari lengra út í þá sálma hér, að orðin ,,við starfa sinn`` hafa valdið tryggingamönnum nokkrum erfiðleikum við túlkun þessa ákvæðis. Þess vegna er lagt til að þau falli niður enda vandséð hvaða tilgangi þau muni upphaflega hafa átt að þjóna.
    Í áttunda og síðasta lagi er um að ræða atriði sem varðar réttindamissi vegna ölvunaraksturs. Í eldri umferðarlögum stóð, með leyfi forseta: ,,Nú hefur stjórnandi vélknúins ökutækis gerst brotlegur við 1. eða 2., sbr. 3. og 4., mgr. 25. gr., og skal hann þá sviptur ökuleyfi eða rétti til að öðlast það.`` Þessi orð ,,eða rétti til að öðlast það`` hafa verið felld niður í núgildandi lögum. Lagt er til að þau verði tekin upp aftur og í því sambandi vísað til hæstaréttardóms sem kveðinn var upp 27. júní 1988, en þar var kröfu ákæruvaldsins um sviptingu réttar hins ákærða til að öðlast ökuleyfi synjað. Það þótti ekki vera fyrir hendi

fullnægjandi heimild til að svipta ákærða réttinum til að öðlast ökuleyfi. Dæmi um þetta er að ef maður t.d., sem ekki hefur ökuleyfi, gerist ítrekað sekur um að brjóta af sér með þeim hætti að aka ölvaður er hægt að svipta hann réttinum til að öðlast ökuleyfi í ákveðinn tíma. Ég held að nauðsynlegt sé að taka þetta ákvæði upp aftur.
    Það væri vissulega freistandi að tala hér nokkru lengra mál um þetta. Í því frv. sem hv. þm. Salome Þorkelsdóttir og fleiri í þessari deild flytja eru í rauninni þrjú ákvæði. Í fyrsta lagi að skylda til bílbeltanotkunar í aftursætum. Sama ákvæði er í því frv. sem ég hef nú mælt fyrir. Í öðru lagi að skylda börn 10 ára eða yngri sem hjóla eða reidd eru á reiðhjóli til að nota hlífðarhjálma. Ég held að þetta sé gott og skynsamlegt ákvæði. Þriðja ákvæðið er svo að skipa sérstaka rannsóknarnefnd umferðarslysa, að dómsmrh. skuli skipa síka nefnd, en í núgildandi umferðarlögum, 114. gr., er ákvæði sem segir: ,,Dómsmrh. getur skipað sérstaka rannsóknarnefnd umferðarslysa, skipaða fimm mönnum með sérfræði- og tækniþekkingu sem varðar slysalækningar, umferðarskipulag, bifreiðaeftirlit, löggæslu og tryggingamál. Umferðarráð skal hafa eftirlit með störfum nefndarinnar.`` Það ákvæði er sem sagt að finna í umferðarlögum þótt ekki sé það gert að skyldu að ráðherra skuli skipa slíka nefnd, en allt þetta hlýtur að koma til álita í þeirri nefnd sem fær málið til meðferðar.
    Ég ætla ekki, herra forseti, að hafa um þetta fleiri orð að sinni en legg til að umræðunni lokinni að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.