Eiður Guðnason:
Herra forseti. Það var held ég sýnt að það hefði verið hægt að ljúka þessu máli og því máli öðru sem hér er eftir á nánast örfáum mínútum en nú hefur formaður þingflokks Sjálfstfl. talað og það stendur greinilega eitthvað heldur illa í bólið hjá hv. þm. Ég segi það alveg eins og er að ég hefði kosið það mjög gjarnan að hægt hefði verið að koma þessum málum til nefndar, en ég ætla ekki að fara að standa hér í einhverjum stórræðum og rifrildi við hv. þm. Halldór Blöndal vegna þessa litla máls. Ef hann vill standa í vegi fyrir því að þessi mál komist til nefndar í kvöld er honum það guðvelkomið mín vegna. Ég minnist þess hins vegar á fundi í morgun í hv. fjh.- og viðskn. að þegar var verið að ræða um fundahöld hér í þessari deild og ég lýsti þeirri skoðun minni að vel gæti komið til þess að það yrði kvöldfundur í deildinni taldi hv. þm. Halldór Blöndal það af og frá að það kæmi til að eftir þær löngu umræður sem voru hér í gær og fram á nóttina yrði aftur kvöldfundur í kvöld. Mér finnst það mjög eðlilegt sjónarmið. En þó við hefðum klárað þessi tvö litlu mál núna þó það sé að vísu komið fram í matartímann held ég að það hefði nú ekki skipt miklum sköpum hjá okkur hér, annað en að greiða fyrir vinnubrögðum. En eins og ég segi, ef hv. þm. Halldór Blöndal vill tefja fyrir því að þessi mál komist til nefndar legg ég bara til að forseti fresti þessari umræðu og við ljúkum þessum fundi.