Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til l. um vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga nr. 18 22. apríl 1959. Málið er einfalt í sniðum. Það fjallar um framlengingu á heimild til að reka vöruhappdrætti til ársloka 1999. Nefndin hefur rætt málið og leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Kristín Halldórsdóttir og Sighvatur Björgvinsson voru fjarverandi við lokaafgreiðslu málsins. Undir nál. skrifa Jón Kristjánsson, Kristinn Pétursson, Geir Gunnarsson, Friðjón Þórðarson og Guðni Ágústsson.