Kristín Halldórsdóttir:
    Virðulegur forseti. Hér er reyndar gamall kunningi á ferð og flestum hér inni vafalaust vel þekktur, búið að eiga sér langan aðdraganda og töluverðan undirbúning sem Kvennalistinn kom nú að nokkru leyti að. Frv. kom hér fram í svipuðum búningi á síðasta þingi, nokkuð seint að vísu, og var til 1. umr. hér í Nd. Þá ræddi ég þetta frv. nokkuð, lýsti stuðningi okkar kvennalistakvenna við meginefni þess og gerði fáeinar athugasemdir. Það var þá þegar ljóst, sem menn höfðu vitað alllengi, að ekki eru allir fullkomlega sáttir við þær breytingar sem hér eru lagðar til á þessum málum, enda málið búið að vera mjög lengi til umfjöllunar og ýmsir komið þar að og höfðu lýst sínu áliti. Helst eru það nú fulltrúar sýslumannaflokkanna, Framsfl. og Sjálfstfl., sem hafa beitt sér gegn þessum breytingum hér á Alþingi. Það er kannski ekki að undra með tilliti til andófs margra sýslumanna sem virðast telja að með þessari nýskipan sé dregin burst úr þeirra nefi. En það er nánast lögmálsatriði að embættismenn vilja helst ekki missa úr höndum sér neitt sem þeir telja til síns friðar heyra. Ég held reyndar að það sé á misskilningi byggt að sýslumenn séu sviptir einhverjum völdum og áhrifum og enda þótt svo væri þá skiptir það ekki miklu máli í mínum huga. Reyndar heyrði ég það á máli hæstv. ráðherra hér áðan að sérstök nefnd er með þessi atriði til umfjöllunar og mun þá væntanlega gæta vel að þeim mikilvægu störfum sem sýslumenn hafa svo sannarlega sinnt og munu sinna áfram.
    Hér er um að ræða nýskipan sem er að flestra mati óhjákvæmileg til þess að tryggja réttarfarslegt öryggi. Með þeirri tilhögun sem nú viðgengst í landi okkar brjótum við að margra mati, flestra mati líklega, gegn Mannréttindasáttmála Evrópu og það er aðeins tímaspursmál hvenær við lendum í miklu verri málum en orðið er þess vegna. Við megum í rauninni þakka fyrir að hafa sloppið svo vel hingað til sem raun ber vitni. Hitt er svo annað mál að þessi nýskipan, þessi breyting sem er greinilegur aðskilnaður dómsvalds og umboðsvalds, kostar allnokkurt fé og það var eitt þeirra atriða sem ég gagnrýndi við umræðuna á síðasta þingi og sömuleiðis í umfjöllun þeirrar milliþinganefndar sem starfaði á sl. sumri. Ég tel það gagnrýnivert að ekki skuli fylgja þessu nákvæm kostnaðaráætlun né á neinn hátt gerð skilmerkileg grein fyrir líklegum kostnaði við þessa breytingu.
    Ég tel að það hefði þurft að taka miklu fastar á þessu atriði og að minnsta kosti lágmark að framreikna þá tölu, sem hér hefur verið nefnd, sem er sama tala og við fengum að heyra hér fyrir ári, þ.e. að þessi breyting mundi hafa í för með sér á að giska 35 millj. kr. kostnað. En þá er algjörlega eftir skilinn sá kostnaður sem það hlýtur að hafa í för með sér varðandi ýmsar breytingar á húsnæði eða húsnæðiskaup og annað eins og hæstv. ráðherra drap á hér áðan. Ég tel raunar alveg óhjákvæmilegt að það sé reynt að gera Alþingi betur grein fyrir því hvaða kostnað þessi lagasetning hefði í för með sér og mun kalla eftir því í nefndinni.

    Ég held raunar að við hefðum getað komist hjá kostnaði sem nú virðist þó eiga að kalla fram með því t.d. að hafa dómstólana færri, en það mun vera kjördæmismál sem menn áttu eitthvað erfitt með að fara fram hjá. En samkvæmt þeim upplýsingum sem við fengum í milliþinganefndinni verður harla lítið að gera við suma þessara dómstóla, ef menn breyta ekki háttum sínum mjög mikið.
    Eins og hér hefur komið fram átti ég sæti í þeirri nefnd sem fjallaði um þetta á sl. sumri og í grg. með frv. kemur það fram svo og mín afstaða svo sem í þessu nál. sem með fylgir, þannig að þess vegna gæti ég látið máli mínu lokið nú. Frv. fékk allítarlega umfjöllun og ég held að það megi segja að nefndarmenn hafi verið sáttir að kalla, eins og það er orðað. Ég sé svo mér til ánægju að hv. efri deild hefur treyst sér til þess að samþykkja breytingu sem vissulega naut töluverðs stuðnings í milliþinganefndinni. En þó varð þar að ráði að láta þá breytingu eða brtt. bíða umfjöllunar þingsins. Og nú hafa efrideildarmenn sem sagt fallist á það að fella niður ákvæði úr 14. gr. frv., þar sem sagði að sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli heyrði undir þann ráðherra sem fer með mál er tengjast framkvæmd varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna. En það er þó ekki sopið kálið, eins og hæstv. ráðherra lýsti, þar sem það mun ekki hafa sjálfkrafa í för með sér breytta skipan á málum og mun ég kynna mér það betur í nefndarumfjölluninni. Sömuleiðis tel ég mjög til bóta að gildistökunni sé frestað. Það er alltaf skynsamlegt að fara sér hægt við svo gagngerar breytingar á stjórnskipan og rasa ekki um ráð fram og þess vegna tel ég mjög til bóta að breyta þessu.
    Ég held að ég hafi ekki fleiri orð um þetta. Það var mat okkar kvennalistakvenna að þetta væri réttlætismál sem við mundum styðja og það hefur ekki orðið nein breyting á því. Ég tel mjög mikilsvert að það skuli hafa náðst samstaða um þetta mál í Ed. þótt menn hefðu þar vissa fyrirvara á og ég lýsi því hér að ég vona svo sannarlega að þetta mál nái fram að ganga og vil leggja því mitt lið þar sem ég hef þá trú að þessi skipan mála muni hafa í för með sér aukið réttarfarslegt öryggi og a.m.k. ekki síðri þjónustu við almenning heldur en sú skipan sem nú tíðkast.