Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég skal verða við óskum hæstv. ráðherra um það að skýra út hugrenningar mínar um sement og Sjafnaryndi utan fundar, en ég býst þó við því, ekki síst þegar ég horfi hér á þá tvo hæstv. ráðherra, menntmrh. og iðnrh., að þeir viti báðir við hvað er átt, ekki síst ef hæstv. ráðherrar hafa lesið Morgunblaðið í dag eða jafnvel horft á aðra sjónvarpsstöðina í gærkvöldi og ætla ég ekki að ræða það mál frekar.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að ætla að skenkja þanka því sem ég talaði hér um, þ.e. hvort hugsanlegt væri að Alþfl. styddi fram komið frv. um Sementsverksmiðjuna, og lít svo á að ekki hafi verið gefið endanlegt svar um það efni. Hæstv. ráðherra sagði að reyndar gilti ekki sama um ríkisprentsmiðjuna og Sementsverksmiðjuna vegna þess að í raun hefði Sementsverksmiðjan einkasölu þar sem hún nyti fjarlægðarverndar. Það vitum við auðvitað báðir að fjarlægðin í þessum efnum eins og öðrum þegar um er að ræða þungavarning gerir það að verkum að íslensk framleiðsla getur haft samkeppnisyfirburði yfir þá erlendu, ekki síst ef þyngstu hráefnin eru og verða til hér á landi. Það breytir hins vegar ekki því að innflutningur á sementi er frjáls og sú jöfnun á verði, sem á sér stað í sementi, getur átt sér stað þótt þessi lög breytist því að í dag háttar þannig til að hver sem er getur flutt inn sement og þá gilda lög um jöfnun á verði sements varðandi það eins og um framleiðslu Sementsverksmiðju ríkisins.
Ef það skyldi ekki hafa verið vitað þá hefur sement verið flutt inn, þó ekki í miklum mæli. ( Iðnrh.: Hvíta sementið í Ráðhúsið.) Þar á meðal eru nýleg dæmi, eins og hæstv. ráðherra upplýsir, og segir það kannski alla söguna um það að Sementsverksmiðja ríkisins á auðvitað í samkeppni, ekki síst þegar um sérstaka afbrigðilega framleiðslu er að ræða. Að vísu hefur Sementsverksmiðja ríkisins breytt sinni framleiðslu á undanförnum árum og þróað sitt sement með þeim hætti að það stenst nú samanburð við besta sement sem fæst, en vegna styrkleikaþarfa í ýmsum byggingum, t.d. í virkjunum, hefur stundum þurft að fá öðruvísi og sterkara sement.
Ég kemst ekki hjá því að hæla Sementsverksmiðjunni fyrir samstarf við Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Það samstarf hefur verið til fyrirmyndar, bæði hvað varðar notkun á úrgangi frá Grundartangaverksmiðjunni og einnig fyrir þær tilraunir sem þessi fyrirtæki hafa látið fara fram á nýjum steyputegundum. Þess vegna, hæstv. ráðherra, tel ég að röksemdir þess efnis að það gegni öðru máli um Sementsverksmiðjuna en um ríkisprentsmiðjuna Gutenberg standist ekki. Ég ætlast ekki til þess að hæstv. ráðherra svari þessari fsp. nú en fagna því að hæstv. ráðherra skuli taka sér umhugsunarfrest og láta í veðri vaka að hugsanlegt sé að hv. alþýðuflokksþingmenn taki þátt í umræðunni um það mál þegar það verður á dagskrá. Ég tel að með því sé ekki loku fyrir það skotið að meiri hluti
myndist á Alþingi um stofnun hlutafélags um rekstur Sementsverksmiðju ríkisins.
Ég vil enn á ný, virðulegur forseti, lýsa því yfir að ég fagna framkomu frv. og fagna því sérstaklega að allir stjórnarflokkarnir hafa nú samþykkt að leggja málið fram í formi stjórnarfrv.