Skógrækt
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Kristín Einarsdóttir:
    Virðulegur forseti. Það er svo sannarlega tímabært að lagt sé fram heildstætt frv. um skógvernd og skógrækt eins og hér er nú gert. Eins og fram kom í máli hæstv. landbrh. hafa frv. um þetta mál verið lögð fram mjög oft, frá 108. löggjafarþingi, og hafa ekki hlotið afgreiðslu. Það er því mjög slæmt að enn einu sinni skulum við fá þetta mál svo seint inn að varla gefist tími til að vinna málið vandlega eins og ráðherra þó talaði um að við þyrftum að gera því að það þarf greinilega að vinna eitthvað í þessu máli. Margir lausir endar eru enn á frv. áður en það getur orðið að lögum.
    Ég er alveg sammála hæstv. ráðherra í því að sá kafli frv. sem e.t.v. er með flesta lausa enda er V. kaflinn þar sem fjallað er um ræktun nytjaskóga, en það er akkúrat sá kafli sem skiptir mjög miklu máli að takist vel til um í framkvæmdinni í áframhaldinu.
    Það er mikilvægt, ef frv. verður að lögum, að það skapi þann grundvöll sem þarf til að hægt sé að hefja skógrækt hér á landi í raun og veru. Í 18. gr. frv. er talað um að ríkissjóður muni styrkja skógrækt í þeim héruðum landsins ,,þar sem skógræktarskilyrði eru vænleg`` eins og stendur í þessari grein. Og það er einmitt það sem er svo mikilvægt að þau svæði sem valin eru til skógræktar séu vel valin. Ég vil vekja athygli á því að enn hefur landnýtingaráætlun ekki verið lokið og er eftir því sem ég best veit enn eftir mjög mikil vinna við gagnasöfnun fyrir þá áætlun. Landnýtingarskipulag yfirleitt hefur verið á miklum brauðfótum hér á landi þannig að það er mjög mikilvægt að þegar farið er að athuga og undirbúa þessi mál verði reynt að fara að vinna að þessari landnýtingaráætlun af einhverri alvöru. Það er algjör grundvallarforsenda að rannsóknir, samvinna við bændur, fjármögnun o.fl. haldist í hendur og að ekki verði farið út og suður í þessum málum eins og svo oft vill verða hjá okkur. Í ritinu Kostnaður og áætlun um nytjaskóga 1989--2003 sem Skógrækt ríkisins hefur gefið út, í júní 1988, eru m.a. sýnd í grófum dráttum þau svæði á landinu sem Skógrækt ríkisins mælir með til nytjaskóga. Meðmæli með þessum ákveðnu svæðum útiloka ekki önnur en frekari rannsóknir þurfa að fara fram til að hægt sé að skipuleggja ræktun skóga af einhverri skynsemi. Ef skipulag og undirbúningur er ekki góður getur það orðið til þess að fé sé kastað út í vindinn. Og eins og ég sagði áðan hefur það allt of oft gerst að vegna lélegs undirbúnings hefur skipulag í atvinnumálum okkar verið dálítið tilviljunarkennt. Má taka sem dæmi loðdýraræktina sem hefur mistekist á vissan hátt kannski vegna skipulagsleysis og ekki nægjanlega mikils undirbúnings. Þarna má því alls ekki kasta til hendinni. Það má alls ekki leggja út í kostnað án þess að undirbúningurinn sé nægilega góður. Það verður að taka tillit til landgæða, hvaða svæði henta til skógræktar, hvaða svæði henta til búfjárræktar. Og eins og ráðherra nefndi áðan hefur á Fljótsdalshéraði nú þegar verið gert heilmikið í þessum efnum. Tel ég það mjög vel við hæfi, eins og gert er ráð fyrir í

þessu frv. og samþykkt var raunar á Alþingi, að höfuðstöðvar Skógræktar ríkisins verði á Fljótsdalshéraði.
    Eins og kemur fram í 19. gr. --- reyndar svipað og gert er núna --- er gert ráð fyrir að stofnkostnaður við undirbúning skógræktarlands og ræktunar skóga verði styrktur af ríkissjóði. En ég get hvergi séð að í þessu sé gert ráð fyrir launum þeirra sem vinna við skógrækt. Ef gert er ráð fyrir að bændur leggi niður búfjárrækt og taki upp skógrækt á þeim svæðum þar sem ekki er heppilegt að hafa búfé, sem ég tel vera mjög skynsamlegt, þá hljótum við að þurfa að gera ráð fyrir að þessir menn lifi á einhverju vegna þess að skógur gefur að sjálfsögðu ekki af sér neitt fyrr en eftir ákveðinn tíma. Þetta þarf að athuga nánar. Auðvitað er það þjóðhagslega hagkvæmt að við breytum um búskaparhætti á mörgum stöðum á landinu og þurfum við að vanda val þess svæðis mjög vel eins og kom fram áðan.
    Það eru fleiri atriði sem þarf að athuga sérstaklega varðandi þennan V. kafla, um hvernig framkvæma eigi, þar sem mér finnst af lestri frv. ekki koma nægilega mikið fram hvernig að framkvæmdinni verður staðið.
    Að sjálfsögðu er fleira sem skiptir miklu máli varðandi skógrækt heldur en eingöngu nytjaskógar. Við þurfum að sjálfsögðu að endurheimta landgæðin og njóta umhverfisins. Þetta skiptir mjög miklu máli fyrir umhverfisvernd almennt þó að ég hafi helst rætt um nytjaskógana.
    Ég tel að með því að samþykkja þetta frv. með breytingu og bótum gefist Alþingi tækifærið sem það má ekki láta fram hjá sér fara. Því miður er þarna lítill tími gefinn til þess að gaumgæfa þetta mál, en kvennalistakonur vilja ekki standa í vegi fyrir framgangi. Við viljum gjarnan gera okkar til að þetta frv. geti orðið að lögum. En ég er ansi hrædd um að vönduð meðferð geti varla orðið á þessum stutta tíma ef rætist það sem áætlað er að þinginu ljúki innan mjög fárra vikna.