Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Það leikur nú vart á tveim tungum að í landinu er ríkjandi mikill áhugi á skógvernd og skógrækt. Þessi áhugi hefur auðvitað birst víða á undangengnum árum, bæði af opinberri hálfu en ekkert síður af hálfu einstaklinga og félagasamtaka sem víða hvar hafa lagt í mikla vinnu og lagt fram verulega fjármuni til þess að rækta skóg og skógarreiti og vinna þannig að því að fegra sitt umhverfi.
Af opinberri hálfu hefur einnig verið mikið unnið að þessum verkefnum á vegum Skógræktar ríkisins og ég hygg að í alllanga tíð hafi verið áhugi á því af hálfu þeirra sem farið hafa með ráðuneyti landbúnaðarmála að glæða þetta starf og vinna að því að bæta þá löggjöf sem um þetta gildir og fella saman í einn lagabálk ákvæði um skógvernd og skógrækt. Þetta frv. fjallar um það efni og er þakkarvert að það skuli hér flutt þó að það hafi vissulega verið flutt áður í svipuðu formi, víst einum þrisvar sinnum eftir því sem hv. síðasti ræðumaður sem er maður stálminnugur, hv. þm. Hjörleifur Guttormsson, lét getið hér áðan.
Þetta frv., eins og það liggur fyrir, á sér langan aðdraganda eða allt að 10 árum. Það má kannski furðu gegna, miðað við þann mikla og almenna áhuga og góðan vilja sem ábyggilega er til staðar bæði á Alþingi og hjá almenningi, hversu þessi aðdragandi er orðinn langur og hvers vegna það skyldi ekki hafa gerst að lög um þetta efni hefðu verið afgreidd og lögfest fyrir jafnvel nokkrum árum. Orsökin er vitaskuld sú að menn hafa ekki verið á einu máli um þessa lagasetningu, um þá stefnu sem birtist í þeim lafafrumvörpum sem flutt hafa verið.
Ég hef ekki að fullu borið það saman hvaða breytingar hafi orðið á þessu frv. miðað við eldri frumvörp, en það var kynnt hér af hæstv. ráðherra að þær væru nokkrar. Þó hygg ég að þær séu ekki þess efnis að þær raski þeim heildarsvip sem er á frv. og hefur verið á undangengnum árum. Ég segi að menn hafi ekki verið á eitt sáttir. Það hafa ekki orðið deilur um þetta mál á Alþingi, en það hafa komið allmiklar athugasemdir, a.m.k. frá þeim sem eru áhugamenn um skógrækt, til nefnda Alþingis sem um þetta hafa fjallað, þ.e. til landbn. og bent hefur verið á ýmis atriði sem mönnum hefur ekki líkað eins og vera þyrfti. Þetta hefur valdið því að afgreiðsla þessa máls, lögfesting heildarlöggjafar um þetta efni hefur tafist og á sér orðið langan aðdraganda.
Nú er það mála sannast, eins og hér kom fram í ágætri ræðu hv. þm. Kristínar Einarsdóttur og raunar einnig í ræðu hv. 2. þm. Austurl., að frv. kemur einnig ærið seint fyrir Alþingi nú til að vinna að breytingum á því sem verða mættu til þess að það fengi eðlilega afgreiðslu.
Ég vil ekki teygja það lengur að segja hvað ég finn að þessu frv. Í fyrsta lagi er þetta frv. ríkisforsjárfrv. í þessu máli, alveg eindregið ríkisforsjárfrv. og um leið miðstýringarfrv. Í frv. er ekki að finna ákvæði um skógræktarstarf einstaklinga eða skógræktarfélaga og hugsanlegan opinberan
stuðning við slíka starfsemi utan þess sem segir í 31. gr. um Skógræktarfélag Íslands, sem er VIII. kafli frv. Sú grein er að vísu þrjár málsgreinar en um leið þrír málsliðir. Og aðeins tveir af þessum þremur málsliðum fjalla um starf félagssamtaka og einkaaðila að þessu verkefni. Þriðji málsliðurinn fjallar um opinbera forsjá.
Mér finnst að það sé mikið tjón af því að byggja upp heildarlöggjöf um skógvernd og skógrækt á Íslandi þannig að það sé ekki í senn mótuð löggjöf um forsjá opinberra aðila, bæði að því er varðar skógverndarmál, rannsóknir, ræktun og stuðning, með öðrum hætti styrki og stuðning til þessara mála, en þá um leið lagaákvæði sem hafi hvetjandi áhrif á starf einstaklinga og starf félaganna. Það skortir í þessu frv. utan það sem hér er vikið að í einum og merkum kafla frv. um nytjaskóga, sem er opinber stuðningur við einstaklinga sem sinna því sem kallað er nytjaskógrækt. Þetta er að minni hyggju verulegur galli á þessu máli, ég er ekkert að draga fjöður yfir það, í jafnþýðingarmikilli löggjöf og hér er verið að fjalla um að setja.
Ég lít sem sagt svo á að skógrækt og skógverndun sé málefni sem eigi það ríkan hljómgrunn meðal þjóðarinnar og það sé svo auðvelt að kveikja áhuga einstaklinga og félaga í þessum efnum að löggjöf um þetta efni eigi að verka sem aflgjafi á starf slíkra aðila. Ég hygg að af því mætti fá mikinn árangur. Þetta haggar ekki því að nauðsynlegt er einnig að hafa heildarlöggjöf um opinbera forsjá, starf Skógræktar ríkisins og opinber afskipti af þessum málum. Þeim þætti er hér fyrir séð. Við getum deilt um hversu vel, en hér er séð fyrir þeim þætti málsins en ekki að því er lýtur að því hvetja og efla starf einstaklinga, skógræktarfélaga og Skógræktarfélags Íslands. Þetta er það sem er megingallinn á uppbyggingu þessa máls að mínum dómi.
Annað sem ég tel að þurfi að athuga mjög vandlega í meðferð þessa máls er það í einstökum greinum frv. er gengið það nærri eignarréttinum að það þurfi mjög vandlega athugun hvernig þau ákvæði frv. séu afgreidd og það tekur vissulega tíma. Ég ætla ekki að nefna mörg dæmi um þetta. Ég get þó nefnt að það er auðvitað mjög mikið vandaverk að setja upp lagaákvæði sem kveða á um
hvernig á skuli tekið ef t.d. búpeningur kemst inn á skógræktarsvæði. Eftir þessu frv. er ábyrgðin ævinlega á búfjáreiganda. Það er vikið að snjóalögum, en það gæti líka verið að girðingar séu ekki í lagi. Það gæti líka verið að hlið séu skilin eftir opin. Það er býsna hart undir því að búa að þá sé ábyrgð öll á öðrum aðila. En þetta er vandaverk þannig að ábyrgð verði við komið því að ábyrgð þarf að vera.
Ég nefni annað hér sem er í 10. gr. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta: ,,Hagi svo til að gripahús standi í skóglendi eða við jaðra þess er eiganda þeirra eða notanda skylt að girða í hæfilegri fjarlægð frá húsunum svo að búpeningur komist ekki í skóglendið á tímabilinu 1. nóv. til 1. júní`` o.s.frv.
Ég bý nú ekki á mesta skógræktarsvæði landsins.
En ég veit ekki hvernig á þessu ætti að taka ef ég væri á jörð þar sem skógarkjarr væri allt umhverfis túnið og hvarvetna um landið væri það sem kallað yrði skógur þannig að mér sýnist að þarna sé nokkur vandhæfni á. Ég skal ekki fara að teygja eða toga einstök slík atriði þessa frv., en mér sýnist nokkurt vandaverk að taka á þeim málum frv. þar sem verulega er sveigt að eignarréttinum þannig að ekki fari í bága við stjórnarskrána.
Ég held að það sé í sjálfu sér fengur að því að reynt sé í lögum að skýra merkingu orða eins og hér er í 2. gr. Þar kemur þó hvergi fram hvað orðið ,,skógur`` merkir. Það er talað um skóglendi, skógarjörð, nytjaskóg, skógarlund. Og skógarlundur er með þeim einkennilega hætti samkvæmt þessum orðaskýringum að það er ,,land þar sem skógur er ræktaður á 1--25 hekturum lands``. Það er sem sé ekki skógarlundur til að mynda inni í Ásbyrgi í Kelduhverfi. ( Landbrh.: Það er skóglendi.) Gjarnan hefði ég viljað sjá hæstv. landbrh. á æskuárum ganga með stúlkunni sinni þangað í lundinn og hefði ekki verið talið að þá væri ranglega til orða tekið. Að slíkri merkingu orðsins ,,skógarlundur`` mun vikið víða í skáldskap, en með þeirri lögskýringu sem hér er fest á blað væri búið að ómerkja öll slík ljóð og öll slík orðatiltæki vegna þess að það fjallaði sjaldnast um skóg sem hafði verið ræktaður heldur hafði hann vaxið þar af sjálfsdáðum. Þetta þykir mér sérkennileg og ekki skemmtileg lögfesting á skilgreiningu orða.
Þá er hér lögfesting á því hvað orðið búfé táknar eins og þar segir: ,,Nautgripir, hross, sauðfé, geitur.`` Hæstv. landbrh. var að leggja fram frv. til búfjárræktarlaga. Líklega í dag. Það er lagabálkur þar sem er eðlilegt að skýrt sé hvað skuli kallað búfé. En það er í hæsta máta óeðlilegt að það sé í skógræktarlögum. Til gamans mætti kannski kalla það búfé sem hæstv. landbrh. ákveður nú að láta telja um land allt um sumarmálin næstu eða þar um bil. Kannski ætti að skilgreina það sem búfé. (Gripið fram í.) Þetta finnst mér mjög ankannalegt og má e.t.v. kalla hártogun en þó, við tökum hér til máls við 1. umr. ekki einungis til að lofsyngja mál í öllum greinum heldur til að vekja athygli á því sem okkur finnst miður fara í annars mjög þýðingarmikilli tilraun til þess að setja á heildarlöggjöf um viðfangsefni sem á að mínum dómi tvímælalausan hljómgrunn bæði hér á Alþingi og meðal þjóðarinnar. Ég held að þessi atriði t.d. þurfi öll athugunar við.
Ég fagna því og tel það eðlilegt að aðalstöðvar Skógræktar ríkisins skuli eiga að vera á Fljótsdalshéraði. Fljótsdalshérað og kannski raunar Austurland en þó sérstaklega Fljótsdalshérað er landsvæði þar sem skógur vex að mér sýnist betur en annars staðar, þar sem náttúrufar og veðurfar er með öðrum hætti en víðast annars staðar á landinu. Og ef ekki er hægt að flytja þessa ríkisstofnun austur á Hallormsstað, þá verður engin ríkisstofnun flutt út á land. Ég tel að það sé mál til komið að þetta sé gert.
Ég tek undir það með hv. þm. Kristínu Einarsdóttur að það eru ýmis atriði sem ástæða er til
að athuga í V. kafla frv. um ræktun nytjaskóga, en þar er nú tiltölulega ný lagasetning um það efni og mjög þörf. Ég dreg ekkert úr því að það er vafalaust hárrétt, sem fram kom hjá hv. 2. þm. Austurl., að það er mikil nauðsyn á því að skipulega sé að þessu unnið og mér finnst mjög eðlilegar þær ábendingar hans að nú eru þess háttar aðstæður í búskaparháttum á Austurlandi að við því þarf að bregðast hvort sem það mundi leiða til þess að sauðfjárhald verði þar lagt niður eða ekki. Það ætla ég ekki að segja til um. En það er eðlilegt að bregðast við þessum aðstæðum sem þar eru í búskaparháttum og hér var áðan lýst.
Ég held að það sé kannski ekki ástæða til þess að ræða hér mikið um hvað gerst hefur í þessum efnum frá landnámstíð sem hv. 2. þm. Austurl. vék hér að. Ég held að það sé ekki hægt að slá neinu föstu um það hvort hér hafi verið skógur á 25 þús. ferkílómetrum lands við landnám. En þó svo að það hafi verið þá eru allar sagnir sem herma að á þeirri tíð hafi verið nokkuð annað veðurfar en gerðist síðar og það er ekki einvörðungu hægt að kenna búsetunni í landinu um það sem gerst hefur.
Ég man eftir því að eitt sinn sagði við mig Austfirðingur, mjög skýr maður, að hann hefði athugað það hvar skógur hefði haldist best á Austurlandi og hvar hann hefði gengið mest til þurrðar í gegnum tíðina. Hann komst að þeirri niðurstöðu að skógur hafði yfirleitt staðið sig á stórbýlunum en hann hafði
þokað eða gengið til þurrðar á kotbýlunum. Hvers vegna? Á stórbýlunum var fjöldi gangandi búfjár. Þar var gnægð í búi og ætla hefði mátt að þessi fjöldi gangandi búfjár hefði eytt skógunum, en það var ekki. Þar stóð skógurinn sig best. Á kotbýlunum var fátt um gripi, það var þurrð í búi. Þar var skógurinn höggvinn til þess að halda lífi í fólkinu. Hann var notaður til upphitunar, til eldiviðar og sjálfsagt lengi til kola. Það var annað en gripafjöldi sem eyddi skóginum. Þetta var niðurstaða þessa manns sem hafði athugað þetta nokkuð grannt á Austurlandi. Þessi maður er að vísu fluttur að austan, kominn hingað til höfuðborgarsvæðisins, en mér fannst hann afar skýr og athugull. Mér er nær að halda að þessi athugun hans, þó leikmaður væri, hafi verið reist á nokkurri þekkingu og nokkurri athugun en ekki einvörðungu stafað af vanþekkingu, svo notað sé orð hv. 2. þm. Austurl., þó hann væri auðvitað ekki þar að tala um þennan mann eða hans niðurstöður.
Ég bendi á varðandi stöðu gróðurlendis hvað veðurfar hefur mikið að segja. Á undanförnum árum hefur verið mjög lítil úrkoma hér á landi. Snjóar hafa verið með allra minnsta móti í mörg ár, 4--5 ár, og jarðvatnið hefur verið að hopa neðar og neðar í jarðveginn. Jarðvegurinn hefur verið að þorna. Og þegar svo vill til og vindar blása er ekki aðeins að gróðurinn hafi veikst vegna þess hve jarðvatnið hefur dýpkað, heldur þornar allt yfirborð jarðar einnig og uppblásturinn heldur innreið sína. Nú standa vonir til þess að þetta snúist við, því að nú hefur verið blessunarlega mikill snjór í vetur, og ég á von á því
að öðruvísi verði um að litast á hálendi landsins næsta sumar en verið hefur síðustu árin. Þetta er aðeins eitt dæmi um það hvað slíkar veðurfarssveiflur hafa mikið að segja fyrir utan hitastigið, sem hefur einnig gífurlega mikið að segja, og ég ætla ekki að koma hér að öðrum enn þá afkastameiri þáttum í þessum efnum sem eru eldsumbrotin og gjóskufall. Mér finnst því að við eigum að tala af varúð um þessi efni og ekki kenna það við vanþekkingu þó að tekið sé til varnar þeim sem á undan okkur hafa þraukað í þessu landi og haft þar af viðurværi sitt, oft við óblíð og hörð lífskjör. Það eru ýmsir aðrir þættir sem hafa valdið því að gróður landsins hefur á stundum þokað og miklu meira en við mundum kjósa.
Ég endurtek að ég tel það vissulega miður hvað þetta frv. er seint á ferðinni því að mér finnst alveg ljóst að það þurfi enn athugunar við. Það dregur ekki úr mikilvægi þess að setja skynsamlega heildarlöggjöf um þessi mál, löggjöf sem hafi það ekki einungis að markmiði að fella saman alla þætti þess sem kallast opinberar aðgerðir, opinber forsjá í þessum málum, starfsemi Skógræktar ríkisins, um rannsóknarstarf, um ræktun nytjaskóga, skógvernd o.s.frv. Eftirlit, ég tek undir það með hv. 2. þm. Austurl., er afar mikilvægt. Ég hefði hins vegar viljað sjá í slíkum lagabálki ákvæði sem verkuðu hvetjandi á starf einstaklinga, starf einstakra skógræktarfélaga og Skógræktarfélags Íslands en að þessu væri ekki aðeins vikið í tveimur setningum þar sem segir, með leyfi forseta:
,,Skógræktarfélag Íslands er viðurkennt sem samband skógræktarfélaga í landinu
Styrkur sá, sem veittur er í fjárlögum til skógræktarfélaga, er bundinn því skilyrði að þau séu deildir í Skógræktarfélagi Íslands.``
Í raun og veru er hér punktur. Síðan segir í 3. málsl.: ,,Ráðherra úthlutar styrknum, að fengnum tillögum skógræktarstjóra og formanns Skógræktarfélags Íslands.`` Þessi málsliður er einungis um opinbera forsjá. Það eru sem sé einungis tvær setningar sem lúta að því að það sé viðurkennt að Skógræktarfélag Íslands megi starfa sem samband skógræktarfélaga í landinu.
Herra forseti. Ég á sæti í þeirri þingnefnd sem fær þetta mál til meðferðar. Ég vildi að ég gæti tekið undir með þeim sem hér hafa talað á undan mér, að vonast til þess að þetta mál hljóti nú afgreiðslu. Ég er ekki viss um að til þess vinnist tími að gera á því þær lagfæringar sem ég held að væru mjög þarfar og í rauninni nauðsynlegar þegar um svo mikilsverða heildarlöggjöf er að ræða til þess að það væri rétt að afgreiða það á þessu þingi og kastar það engri rýrð á hlutverkið sem það á að þjóna, engri rýrð, því það hlutverk er mikið.