Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Miðvikudaginn 12. apríl 1989

     Forseti (Jón Helgason):
    Mér hefur borist eftirfarandi bréf:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson bæjarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Halldór Ásgrímsson,

1. þm. Austurl.``


    Jónas hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann því velkominn til starfa.