Halldór Blöndal:
Herra forseti. Þegar þingmenn töldu nauðsynlegt fyrir nokkrum árum þegar þingsköpum var breytt að hafa sérstakan eindaga mála til að auðvelda störf þingsins á vordögum var auðvitað hugsunin sú að eindaginn yrði ekki til þess að raska störfum Alþingis né heldur til þess að efnisleg umræða hér í þinginu, efnisleg umfjöllun þingmanna um stjórnarfrumvörp yrði verri en ella. Við megum ekki gleyma því að störf þingmanna eru að sínu leytinu lík dómara að því leytinu til að þingmönnum er ætlað að fjalla um og gefa úrskurð með atkvæði sínu um margvísleg málefni sem lögð eru fyrir þingið og auðvitað þarf ekki að fara mörgum orðum um það í dómsalnum hversu þýðingarmikið er að dómendum gefist svigrúm til þess að setja sig inn í mál og til að gaumgæfa einstök efnisatriði þeirra. Með sama hætti er þýðingarmikið að þingmönnum gefist kostur á því að gaumgæfa efnisatriði frumvarpa sem fram eru lögð og þeim gefist næði til þess að meta og vega einstök efnisatriði og athugasemdir sem fram kunna að koma á meðan málin eru í athugun eða til umræðu í þinginu. Ég hygg að alþm. eigi að þessu leytinu að bera sömu virðingu fyrir sínum störfum og dómarar bera fyrir störfum sínum í dómsalnum.
Nú háttar svo til í þessari deild hér að á fundi deildarinnar í gær voru tekin fyrir og afgreidd til 2. umr. sjö stjfrv. sem öll voru lögð fram á mánudag og sum e.t.v. um nóttina. Á fundi deildarinnar í dag eru önnur sjö líka þessi sjö frumvörp á fundinum í dag. Þetta eru fjórtán stjfrv. á færibandi á tveim dögum í deildinni þó svo að fundur í Sþ. hafi staðið til hálfþrjú á þriðjudagsnótt og þó svo nefndarfundir í nefndum Ed. hafi verið boðaðir kl. 8.30 bæði í morgun og í gærmorgun, þó svo að þeir fundir hafi ekki staðið allan daginn.
Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um að stjórnarandstaðan hefur lagt sig fram um það að greiða fyrir því að þessi stjfrv. hafi fengið afgreiðslu bæði í Ed. og í Nd. Í Nd. voru í gær til umræðu sex stjfrv. sem lögð voru fram á þessum mánudegi og í dag tvö frumvörp til viðbótar sem líka voru lögð fram þennan eina dag. Það er m.ö.o. ætlast til þess af stjórnarandstöðunni að hún taki til efnislegrar meðferðar og umræðu 22 stjórnarfrumvörp sem lögð voru fram sl. mánudag og þó stóð fundur þann dag fram til kl. hálfþrjú um nóttina. Ég hlýt að átelja þessi vinnubrögð.
Í annan stað vil ég segja. Það hefur verið venja í þinginu að stjórnarandstaða fái að fylgjast með því þegar fundur er auglýstur á afbrigðilegum tímum. Nú háttar svo til í dag að fundur er auglýstur í báðum deildum kl. 1.30. Hæstv. forseti segir mér að hann hafi skýrt frá því á fundi deildarinnar í gærkvöldi sem ég tók ekki eftir og bið ég hann afsökunar á því athugunarleysi mínu sem er mér vitaskuld ekki til afsökunar þó ég geri það nú því ég á að fylgjast grannt með því sem hæstv. forseti segir úr forsetastóli. Á hinn bóginn voru ýmsir aðrir þingmenn í Ed. og Nd. sem ekki höfðu hugmynd um þessa breytingu á
venjulegum fundartíma fyrr en í morgun. Af þessum sökum, þar sem fundartími hefst þrjátíu mínútum fyrr en stjórnarandstaðan gat búist við, lýsi ég því sem minni skoðun og fer fram á það við hæstv. forseta að fundahöldum ljúki í dag kl. 4 og ekki verði efnt til fundahalda eftir þingflokksfund í dag.
Ég vil í öðru lagi segja að við þingmenn mætum yfirleitt til starfa okkar árla morguns. Fæstir okkar eiga þess kost að snæða hádegisverð með fjölskyldu sinni. Margir okkar eru á fundum að kvöldlagi hvern einasta dag að heita má sem þingið situr og margir þingmenn fara burt frá fjölskyldu sinni um helgar til fundarhalda í sínum kjördæmum. Af þessum sökum er það vitaskuld mikið fjölskyldumál að þingmenn geti treyst því að fundi sé slitið í deildum svo tímanlega að þeir geti farið heim til snæðings með sinni fjölskyldu en fundur sé ekki dreginn fram eftir kl. 7 á kvöldin og vil ég vænta þess að forsetar þingsins sýni þingmönnum þá kurteisi og starfsfólki að það geti borðað mat sinn á venjulegum matmálstíma eins og annað fólk.
Ég vil að lokum segja, hæstv. forseti, að ég vil vænta þess að eftirleiðis verði ekki boðað til fundar á afbrigðilegum tímum, hvorki korter fyrir tvö né hálftvö, undir því yfirvarpi að um atkvæðagreiðslu sé að ræða heldur hefjist fundartími kl. 2 nema á fimmtudögum kl. 10 að morgni. Ef hæstv. forsetar þykjast þurfa að hafa afbrigðilegan fundartíma tel ég sjálfsagða kurteisi við stjórnarandstöðuna að leita eftir samningum við hana um málsmeðferð og efnismeðferð í þinginu, hvort sem um kvöldfundi er að ræða eða að til fundahalda sé boðað á föstudögum þegar þingmenn ætla að þeir hafi leyfi til að fara heim í sín kjördæmi.
Nú getur að sjálfsögðu farið svo að ríkisstjórn og forsetar treysti sér ekki til að verða við öllum óskum stjórnarandstöðunnar um fundahaldið. Það hefur oft komið fyrir á liðnum árum. En þá er að minni hyggju lágmark að forsetar virði rétt stjórnarandstöðunnar til að fá vitneskju um að bregða eigi út af vananum um fundahöld með þvílíkum fyrirvara að þingmenn geti gert ráðstafanir og búið sig undir breytta tímasetningu. Ég vek athygli á því að fundahöld drógust í Sþ. sl. mánudagskvöld vegna þess að ráðherrar höfðu með löngum
fyrirvara skuldbundið sig til annarra starfa um kvöldið og þingheimur allur varð að laga sig eftir því. Eins er það með þingmenn að þeir skuldbinda sig oft með löngum fyrirvara til fundahalda á kvöldin og svo var t.d. þetta mánudagskvöld um formann Sjálfstfl. og ætlaðist hann þó ekki til þess að tekið yrði tillit til þess við þingstörfin. Auðvitað hljótum við alltaf að vera við því búin að óviðráðanleg atvik valdi því að röskun verði á eðlilegum þingstörfum eða umræður geti ekki gengið með eðlilegum hætti þegar breytt er út af vananum með mjög skömmum eða engum fyrirvara. Það breytir ekki hinu, að til þess að störf þingsins geti gengið vel fyrir sig og til þess að við getum rækt þá frumskyldu okkar að setja okkur vel inn í mál vil ég mælast til þess að ekki sé boðað til funda með þeim hætti sem var í dag og í öðru lagi að
ekki sé ætlast til þess að stjórnarandstaðan sé í fyrsta lagi reiðubúin til efnislegrar umræðu um 14 frumvörp á tveim dögum sem lögð eru fram samtímis. Og að síðustu veit ég að hæstv. ríkisstjórn og einstakir þingmenn stjórnarmeirihlutans gera sér grein fyrir að engin von er til þess að öll þessi holskefla mála, sem beðið er með fram á síðustu stundu að leggja fram fyrir þingið af ríkisstjórninni, verði afgreidd á þessu þingi. Auðvitað munu mörg þessara mála bíða næsta þings nema gengið sé yfir þá þingmenn sem hér eru í stjórnarandstöðunni og um leið ætlast til þess að þeir geti ekki rækt störf sín með sóma.