Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Ég vil leiðrétta þann misskilning að ég hafi verið að gera athugasemdir við virðulegan forseta þessarar deildar í ræðu minni áðan. Ég hins vegar beindi orðum mínum til virðulegs forseta og gat þess að það hefði ekki verið viðunandi né gott að ekki er boðað til fundar hér með lengri fyrirvara en rúmum tveim tímum. Ég gerði engar athugasemdir við störf eða stjórn virðulegs forseta í þessari deild nema síður sé. Þetta er virðulegur og góður forseti sem stjórnar þessari deild vel. Þetta vil ég undirstrika alveg sérstaklega að gefnu tilefni.
En ég vil, virðulegi forseti, fá að endurtaka það og fara kannski nokkuð mildari orðum um hæstv. ríkisstjórn núna en ég gerði áðan að hæstv. ríkisstjórn er mjög óvenjuleg svo að ekki sé meira sagt og vegna þess hvað hún er óvenjuleg og ég vil segja afbrigðileg og að mörgu leyti óæskilegt hvernig vinnubrögð hennar eru, þá leyfi ég mér að gagnrýna hana með mjög hörðum orðum og með mjög ákveðnum hætti. Það er vegna þess að íslenska þjóðin er farin að örvænta um að þessi ríkisstjórn geti komið þeim umbótum til leiðar sem hún lofaði. En ég ætla ekki að fara út í almenna þjóðmálaumræðu nú. Ég undirstrika það að óvissan og starfshættir núv. hæstv. ríkisstjórnar hafa leitt störf hins háa Alþingis með mjög óæskilegum hætti.
Varðandi starfsáætlun vil ég segja að auðvitað hafði ég lesið þetta plagg. Það kom fram hjá hv. þm. Eiði Guðnasyni að hann sagði að það hefði verið farið eftir henni í stórum dráttum og það yrði reynt að breyta samkvæmt henni og þingi mundi þá væntanlega ljúka 6. maí. Þó tók hann ekki alveg þvert fyrir það að það gæti verið að þing yrði að vera eitthvað lengur sem er eðlilegt ef maður hefur í huga öll þau mörgu mál sem nú hafa komið inn í þingið síðustu daga. Ég endurtek að ef þingi ætti að ljúka 6. maí hefur þessi hv. deild aðeins 6--8 daga til að fjalla um tugi mála fyrir utan mikið nefndarstarf hjá hv. þm.
Mér fannst hv. þm. Eiður Guðnason taka óþarflega mikið til sín af minni gagnrýni á störf hæstv. ríkisstjórnar. Ég kom inn á það í ræðu minni m.a. Að vísu sagði ég stundum stjórnarstuðningsmenn án þess að takmarka það nokkuð, en í meginatriðum vil ég segja og undirstrika að ýmsir stjórnarstuðningsmenn og hæstv. ríkisstjórn hafa því miður ekki starfað samkvæmt því sem ég mundi kalla þingræðislegum hætti í vetur. Ég sný ekki til baka með þessa fullyrðingu mína. En ég vil endilega að hv. þm. Eiður Guðnason taki þetta alls ekki til sín því að hann er í erfiðu hlutverki og ég skil að hann reynir að bera hönd fyrir höfuð þessari ríkisstjórn á meðan hann styður hana.
Varðandi það atriði að við stjórnarandstæðingar höfum ekki sýnt skilning og samstarfsvilja hér á hinu háa Alþingi vil ég segja að þetta er rangt. Við höfum sýnt alveg sérstakan samstarfsvilja á þessu þingi. Ég nefni sem dæmi mál sem hefur komið fyrir í þeim nefndum sem ég starfa í, þar á meðal félagsmálanefnd, sem er meiri háttar mál og á ég þar
við frv. til laga um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og frv. til l. um tekjustofna sveitarfélaga. Þessi mál hafa verið í deiglunni í tæpa tvo áratugi. Núna loksins hillir undir að þessi frv. fari í gegnum þingið og þau gera það m.a. vegna þess að stjórnarandstæðingar hafa unnið alveg sérstaklega að því að koma þessu máli í höfn. Þetta er meiri háttar mál. Þetta er með stærri málum. (Gripið fram í.) Hv. þm. er nú ekki í deildinni. Ég vil ekki nefna nafnið hans. Það er rétt hjá honum að hverfa út með frammíkalli. --- Ég vil undirstrika það, virðulegi forseti, að við stjórnarandstæðingar höfum sýnt það svo sannarlega í verki að við erum jákvæðir í því sem horfir til heilla fyrir íslenska þjóð og Íslendinga.
En ég undirstrika það, virðulegi forseti, að það er gersamlega óviðunandi að koma með á síðustu dögum þingsins það sem ég vil kalla stjórnarfrumvörp sem eru meiri háttar mál. Ég nefni sem dæmi frv. til l. um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins sem felur í sér grundvallarbreytingu á starfsemi Húsnæðisstofnunar og öllu er lýtur að húsnæðismálum þjóðarinnar. Það er um það að ræða að leggja niður það kerfi sem hv. þm. núv. stjórnar, að vísu í öðru stjórnarsamstarfi áður fyrr, lögðu megináherslu á að koma á laggirnar árið 1986 og allar götur síðan en við ýmsir sjálfstæðismenn höfum gagnrýnt og varað við. Núna er það eitt af stærstu málum þessarar ríkisstjórnar að koma í höfn að það verði gerð breyting á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins þannig að upp verði tekin svokölluð húsbréf. Um það hefur ekki verið nein umræða enn þá hér í hv. deild. Þetta er meiri háttar mál. Þetta er svo stórt mál að það getur tekið fleiri vikur að ræða það hér í deildinni. Hér erum við að ræða um grundvallarbreytingu á húsnæðismálum þjóðarinnar. Hér er um það að ræða að ákveða hvernig á að stýra tugum milljarða árlega inn í húsnæðismálakerfið. Ég endurtek að það er gersamlega óviðunandi að við skulum ekki fá tíma til að fjalla um jafnviðamikið mál og þetta eitt sér.
Ég tek undir það sem hv. 6. þm. Reykv. Guðrún Agnarsdóttir sagði. Hér er mjög merkilegt mál á dagskrá í dag sem er frv. til l. um Félagsmálaskóla alþýðu. Ég vil fá góðan tíma til að fjalla um það. Ég er þessu máli nokkuð
kunnugur vegna þess að ég sat í miðstjórn ASÍ á sínum tíma þegar Menningar- og fræðslusamband alþýðu var stofnað, ef ég man rétt á árinu 1968. Þá var það gert á vegum Alþýðusambandsins og að frumkvæði verkalýðshreyfingarinnar. Hér er um stórmál að ræða. Ég segi eins og hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir: Ég var að lesa það meðan umræðan fór fram áðan. Það er mjög stórt atriði í því máli t.d. hvar á að vista þessa starfsemi í kerfinu. Á þetta að heyra undir félmrn. eða á það að heyra undir menntmrn.? Ég sé að hæstv. menntmrh. er mjög ánægður með að ég skuli minnast á menntmrn. í þessu sambandi og ég skil það vel.
Nei, virðulegi forseti. Hér er svo margt á ferðinni að við getum ekki unað við það, hv. þm., að fá ekki tíma til að fjalla um það.
Þá er eitt mál í viðbót sem er stórmál. Það er frv. til l. um umhverfismál. Það er ekki smátt í sniðum. Þetta er eitt af veigamestu málunum. Þetta er eitt af stjfrv. sem við stjórnarandstæðingar viljum endilega fá að fjalla um af gaumgæfni og fá að kalla til sérfræðinga og aðra kunnáttumenn til að skoða þessi mál með okkur. Það er ekki sama hvernig þessi frumlöggjöf verður ákveðin hér á hinu háa Alþingi.
Þá er eitt mál í viðbót og skal ég svo ljúka þessari upptalningu. Það er frv. til l. um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þetta er stórmál. Ég heyri það að hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir tekur undir þetta. ( KP: Nei. Heyrðirðu það?) Ég taldi mig heyra það. Ég vil ekki viðurkenna annað en hv. þm. hafi áhuga fyrir því eins og hv. þm. Karvel Pálmason.
Nei, virðulegi forseti. Það var full ástæða til að við gagnrýndum þau vinnubrögð, sem hæstv. ríkisstjórn viðhefur, að demba hér inn frumvörpum, stórum málum, og ætla að keyra þau í gegn á aðeins 6--8 dögum í deildinni.
Ég vil segja að lokum að mér fannst hæstv. menntmrh. koma fram af kurteisi og sýnir það að hann hefur þroskast sem stjórnmálamaður. Hann hefur e.t.v. fulla ástæðu til að fjalla um mjög viðkvæm mál sem hann gerði ekki og virði ég það við hann og ætla ekki að koma inn á það á þessu stigi, en ég get ekki neitað því, virðulegi forseti, og beini því til hæstv. menntmrh. að hann hefur valdið mér, því miður, vonbrigðum.