Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að lengja þessa umræðu um þingsköp. Ég hef ekki síður en aðrir hv. þm. fullan hug á því að taka til við þau verk sem við eigum nú fyrir höndum, en aðeins vegna orða hv. 3. þm. Vesturl. áðan vildi ég gera örstutta athugasemd.
Það er rétt að þingflokkur Kvennalistans fór fram á utandagskrárumræður sl. mánudag um kjaramál og það var mjög nauðsynlegt að þau mál yrðu rædd í þingsölum að mínu mati og það voru of fáir í þingsal þegar átti að vísa vegáætlun til nefndar eins og fram kom í mínu máli áðan.
Nú er það svo að þingmönnum er skylt að vera viðstaddir atkvæðagreiðslu nema lögmæt forföll séu fyrir hendi. Ekki skal ég vefengja að þingmenn hafi haft lögmæt forföll þetta kvöld og það er einmitt það sem málið snýst um og það sem við vorum að tala um. Oft erum við búin að ráðstafa okkur til annarra fundahalda á kvöldin og þess vegna, einmitt þess vegna er svo nauðsynlegt að gera áætlanir í samráði við þingflokkana og reyna að halda þær, ekki síst á þessum síðustu vikum þegar annir eru miklar, þannig að þingmenn eigi þess kost að vera viðstaddir.
Ég vil einnig láta þess getið að það var leitt hversu fáir hv. þm. gátu verið viðstaddir þessa þörfu umræðu um kjaramál þetta kvöld.