Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Miðvikudaginn 12. apríl 1989

     Frsm. félmn. (Jóhann Einvarðsson):
    Hæstv. forseti. Það er kannski ekki vonum fyrr að við komumst til þingstarfa hér í dag. Það eru komnir nærri tveir tímar hér í utandagskrárumræðu, þar sem menn hafa m.a. verið að kvarta yfir miklu álagi og hægagangi, en það hefði kannski mátt flýta fyrir ýmsum hlutum með því að hefja strax þingstörfin.
    Félmn. Ed. kom saman til fundar í dag eftir 2. umr. um frv. til laga um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og leggur fram við frv. þrjár brtt. að lokinni athugun með hlutaðeigandi aðilum.
    Það er í fyrsta lagi breyting á 26. gr. frv., þ.e. að niðurlag greinarinnar, frá orðunum ,,til Tryggingastofnunar ríkisins``, falli brott. Setningin hljóðar nú svona í frv.: ,,Eignir sjúkrasamlaga skulu renna til Tryggingastofnunar ríkisins og skulu þær nýttar fyrir umboðsskrifstofur Tryggingastofnunar ríkisins.`` Að höfðu samráði bæði við heilbrrn. og dómsmrn. þótti rétt að fella lok setningarinnar niður, þannig að setningin sé einungis: ,,Eignir sjúkrasamlaga skulu renna til Tryggingastofnunar ríkisins.`` Ástæðan fyrir þessu er m.a. sú að í þeim brtt. sem núna liggja fyrir Alþingi um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði kemur fram m.a. að ákveðið er að efla störf sýslumanna á stjórnsýslustiginu. Sumum þótti þessi setning sem við ætlum að fella núna niður gefa til kynna að það ætti að taka þessi umboðsstörf af sýslumönnunum, en það er alls ekki er meiningin. Og þess vegna þótti rétt að fella þetta niður.
    Í öðru lagi gerum við brtt. við 2. mgr. 74. gr. frv. 2. mgr. hljóðar svo núna: ,,Þátttaka ríkissjóðs í framkvæmdum, sem unnar eru á árinu 1989, skal þó aðeins nema þeim framlögum sem eru á fjárlögum 1989.`` Það þótti rétt að breyta þarna um og segja: ,,skal þó miðuð við þau framlög sem eru á fjárlögum 1989.`` Ástæðan fyrir þessu er einkum sú að einstaka sveitarfélög hafa gert samninga við ríkisvaldið um að fresta framkvæmdum 1988 og færa þær fjárveitingar fram á árið 1989. Þess vegna þótti rétt að hafa þetta ekki alveg eins ákveðið og þarna er heldur miða við þau framlög.
    Að lokum gerum við þá tillögu, eins og kemur fram í 3. lið, að við 75. gr. bætist ný málsgrein sem orðist svo:
    ,,Þegar lög þessi hafa hlotið staðfestingu skal fella þau inn í meginmál þeirra laga sem þau breyta og gefa þau lög út svo breytt.``
    Þetta er til hægðarauka og til mikilla þæginda held ég fyrir alla sem þurfa að starfa með og eftir þessum lögum.
    Undir þessa brtt. nefndarinnar skrifar sá sem hér stendur, Salome Þorkelsdóttir, Guðmundur H. Garðarsson, Karl Steinar Guðnason, Júlíus Sólnes og Valgerður Sverrisdóttir, en Margrét Frímannsdóttir var fjarverandi.