Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð um þetta mikilvæga mál sem ég tel hið ágætasta og fagna því að það skuli hér komið fram. Það varðar réttindamál launþega, það varðar rétt þeirra til þess að öðlast meiri færni og þekkingu í því að verja rétt þeirra og ávinna sér réttindi og það varðar réttindi þess til fullorðinsfræðslu sem mikil þörf er á í okkar þjóðfélagi. Hún hlýtur að verða í misjöfnum farvegi, allt eftir því hvað við á. Betur væri reyndar ef hún væri meiri, en þetta er þróun sem er öll í jákvæða átt.
Ég held, vegna orða hv. 14. þm. Reykv. um að skipta upp verkalýðshreyfingunni á milli stjórnmálaflokkanna, hinna fjögurra gömlu stjórnmálaflokka, að það sé í raun röng stefna og úrelt. Það sem skiptir meginmáli er að þeir sem hafa einhverja kunnáttu í sambandi við þessi mál og reynslu hafa unnið að því að semja frv. Það er auðvitað meginmál.
Það hefur ekki gefist mikill tími til að kynna sér frv. nákvæmlega en við fljótlestur á því sýnist mér það vera hið ágætasta og tel rétt að hið opinbera taki að sér að styðja þennan skóla með fjárframlögum. Það mun gefast betra tækifæri til þess að kynna sér málið við umfjöllun í nefnd og mun ég biðja um áheyrnaraðild að nefndinni við umfjöllun málsins.