Birgir Ísl. Gunnarsson:
Herra forseti. Ég vil mjög sterklega taka undir það sem hv. 10. þm. Reykn. sagði í sinni ræðu áðan. Það er að sjálfsögðu alveg óþolandi að dag eftir dag skuli vera boðað til þingfunda utan reglulegs fundatíma án þess að fullt samráð sé haft um það á milli flokka. Eins og fram kom hjá hv. þm. munu nú liggja um 30 stjórnarfrv. á borðum manna sem var útbýtt á mánudag og þriðjudag. Það gefur auga leið að þingmenn verða að fá tíma til þess að kynna sér þessi mál. Ég vil í því sambandi fagna því að hv. forseti þessarar deildar skuli taka þmfrv. jafnmikið á dagskrá í dag og raun ber vitni þannig að mönnnum gefst þá betra tóm til að íhuga þau stjórnarfrumvörp sem lögð voru fram á mánudag og þriðjudag. Mér sýnist reyndar annar háttur vera hafður á í Ed., en það er að vísu ekki okkar mál hér í Nd.
Það er krafa okkar þingmanna í stjórnarandstöðunni að ef til þingfunda er boðað utan reglulegs fundatíma, hvort sem það er fyrir kl. 2 á daginn eða eftir kl. 7 á kvöldin þegar kvöldfundir eru, sé um það fullt samráð á milli þingflokka, það sé gert í samráði við formenn þingflokka og menn viti það með góðum fyrirvara. Ég vissi t.d. ekki um þennan fund kl. hálftvö í dag fyrr en mér barst símleiðis tilkynning kl. eitthvað um ellefu í morgun og ég var búinn að ráðstafa mér til tvö í dag og varð að gera ráðstafanir til þess að losa mig og ég veit að þannig var um marga aðra þingmenn. Ég vil mjög sterklega taka undir þessi aðfinnsluorð hv. 10. þm. Reykn.