Framlagning stjórnarfrumvarpa fyrir eindaga
Miðvikudaginn 12. apríl 1989

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Hér hefur komið fram gagnrýni á að forseti þingsins hefur boðað þingheim til starfa hálftíma fyrr en venja er. Deildinni hefur tekist að eyða um 24 mínútum af þessum hálftíma í almennt kjaftæði þannig að þau 20 mál sem á dagskrá eru bíða þar enn. Jafnframt hefur hver eftir annan komið hér upp og lýst því yfir að nú þurfi einhverja yfirstjórn til að ákveða hvaða mál eigi að fara í gegnum þingið og hver ekki. Að sjálfsögðu er það deildarinnar og hennar einnar að ákveða hvað hún lætur fara í gegn og ekki annarra.
    Ég er ekki hrifinn af því yfirstjórnartali sem hér hefur gengið og að þingmenn gleymi því að það er deildarinnar og þeirra sjálfra að taka ákvörðun um hvað fer hér í gegn. Það er ansi aumt að mínu viti. Það minnir þá á það að menn eru að láta í það skína að þeir séu fyrst og fremst hér til að þjóna einhverjum öðrum öflum en að standa skil á þeirri þingskyldu sinni sem þingmenn að vinna að því að semja lög eins og samviska þeirra býður.