Frsm. menntmn. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Menntmn. deildarinnar hefur fjallað um frv. til laga um ráðstafanir til jöfnunar á námskostnaði. Þetta frv. er komið frá Ed. og á sér alllanga sögu því að þetta mál hefur verið hér til umræðu í þinginu í mörg ár. Menn hafa bent á það að framlög í þessum tilgangi, þ.e. til jöfnunar á námskostnaði þeirra sem stunda framhaldsnám en búa fjarri heimilum sínum --- stunda nám fjarri heimilum sínum og búa í heimavistarskólum --- hafi mjög rýrnað á þessum áratug, stóðu reyndar í stað árum saman, og því væri brýn nauðsyn á að koma fastari skipan á þessi mál þannig að þessi framlög rýrnuðu ekki áframhaldandi, heldur væri ákveðin viðmiðun sett sem tryggði að lögin næðu tilgangi sínum. Sá sem hér stendur flutti reyndar frv. þessa efnis nokkrum sinnum um miðjan þennan áratug án árangurs, en að lokum varð það niðurstaðan að sett var nefnd til að endurskoða þessa löggjöf og hún hefur nú skilað árangri sem er það frv. sem hér er til umræðu.
Frv. hefur verið samþykkt í Ed. og er nú hér til 2. umr. í Nd.
Umsagnir bárust um frv. fyrst og fremst frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun og þessar umsagnir sem lúta að kostnaði sem samþykkt frv. hefur í för með sér fylgja hér sem fylgiskjöl við nál.
Herra forseti. Það er sem sagt einróma niðurstaða nefndarinnar að mæla með samþykkt frv.