Hagþjónusta landbúnaðarins
Miðvikudaginn 12. apríl 1989

     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um hagstofnun landbúnaðarins.
    Frv. gerir ráð fyrir að stofnuð verði hagstofnun landbúnaðarins og verði hún starfrækt á Hvanneyri í Borgarfirði í nánum tengslum við búvísindadeild bændaskólans þar.
    Markmið og verkefni hagstofnunar landbúnaðarins eru einkum eftirfarandi: Að hafa yfirumsjón og skipuleggja búreikningahald ásamt því að annast samræmda úrvinnslu búreikninga, að vinna hagskýrslur í landbúnaði ásamt ýmiss konar sérverkefnum, að vinna grunnvinnu fyrir verðlagningu búvara, að stuðla að aukinni notkun búreikninga við rekstrarkannanir og áætlanagerð, að hafa á höndum framkvæmd og umsjón með almennum hagrannsóknum í landbúnaði og þá ekki síst í tengslum við búvísindanámið á Hvanneyri, að hafa umsjón með hagrænum leiðbeiningum í landbúnaði og annast ýmiss konar útgáfustarfsemi. Kennsla í landbúnaðarhagfræði í samráði við búvísindadeildina yrði líka eitt af meginverkefnum stofnunarinnar.
    Á undanförnum árum hafa bæði búnaðarþing og aðalfundur Stéttarsambands bænda hvað eftir annað ályktað um nauðsyn þess að koma á fót einhvers konar hagstofnun fyrir landbúnaðinn þar sem á einni hendi væru hagtölur landbúnaðarins og þar sem hagfræðilegar áætlanir fyrir greinina yrðu unnar. Þörfin fyrir markvissa vinnu á þessum vettvangi er brýnni nú en nokkru sinni fyrr og því mikilvægt að þessi mál séu nú tekin til endurskoðunar og skipulögð á sem bestan veg.
    Færsla búreikninga er nú skipulögð með tvennum hætti, annars vegar á Búreikningastofu landbúnaðarins undir yfirstjórn Búnaðarfélags Íslands og hins vegar eru þeir búreikningar sem færðir eru hjá búnaðarsamböndunum sjálfum með svokölluðu bændabókhaldi. Gildandi lög um búreikningastofu landbúnaðarins voru endurskoðuð á árunum 1966--1967 og var þá lagður grunnur að því tölvuvædda uppgjöri búreikninga sem fer nú fram hjá búreikningastofunni. Ljóst er að forgangsverkefni við mótun búreikningahalds í framtíðinni er að skipuleggja upplýsingaöflun með færslu búreikninga hjá bændum þannig að hægt sé að afla þeirra gagna sem þörf er á um afkomu bændastéttarinnar í heild, svo og þann mismun sem er innan hennar, upplýsinga til að grundvalla á verðlagningu búvara og ýmsar tegundir hagrannsókna. Þetta væru sem sagt og hljóta að verða forgangsverkefni við uppbyggingu þessa starfs. Jafnframt er nauðsynlegt að samræma að fullu það reikningsform sem unnið er eftir. Ríkisvaldið fjármagnar nú þegar og hefur yfirumsjón með margvíslegri gagnaöflun og gagnaúrvinnslu er varðar landbúnaðinn. Má þar til að mynda nefna Búnaðarfélag Íslands, Búreikningastofu landbúnaðarins, Framleiðsluráð landbúnaðarins, Hagstofu Íslands og Þjóðhagsstofnun.
    Sem almenn rök fyrir þátttöku ríkisvaldsins í

leiðbeiningaþjónustu, gagnaöflun og rannsóknum varðandi atvinnuveginn, landbúnaðinn, má m.a. færa fram eftirfarandi: Leiðbeiningar, fræðsla og þar með aukin þekking framleiðenda sem og annarra eiga að skila sér í arðbærari rekstri og lægra verði til neytenda og betri afkomu framleiðenda. Tæki hið opinbera ekki, a.m.k. að hluta, þátt í fjármögnun þessara liða mundu þeir án efa lenda að einhverju leyti inni í verðmyndun eða verðlagningu framleiðsluvaranna. Gagnaöflun er almennt samfélagslegt atriði. Grunnupplýsingar og söfnun staðreynda eru nauðsynlegar ýmissa hluta vegna, svo sem í sambandi við trygginga- og skattamál. Í búvörulögum er kveðið á um upplýsingaskyldu hins opinbera við verðlagninguna. Þá má nefna að rannsóknir eru hér auðvitað sem annars staðar forsenda framfara og framþróunar bæði þeirra sem leiða til almennrar framþróunar í greininni og eins þess að með slíkum rannsóknum og slíku starfi er unnt að fækka eða afstýra mistökum.
    Þátttaka ríkisvaldsins er nauðsynlegur þáttur í þessu sambandi einnig til að gefa niðurstöðum slíkrar stofnunar hlutleysi gagnvart öllum aðilum. Væri töluleg úrvinnsla einvörðungu á ábyrgð og undir stjórn bændasamtakanna væri viss hætta á því að þeim upplýsingum sem þaðan kæmu væri tekið með ákveðnum fyrirvara um hlutdrægni af hálfu þeirra aðila sem standa annars vegar borðsins. Þetta atriði er afar mikilvægt hvað varðar þann trúnað sem þær niðurstöður verða að fá sem birtast á vegum stofnunarinnar og frá henni.
    Á móti kostnaði sem ríkissjóður tæki á sig vegna starfrækslu hagstofnunar landbúnaðarins kæmi sparnaður vegna yfirtöku verkefna Búreikningastofu landbúnaðarins og jafnframt er hugsanlegt að staða hagfræðiráðunautar hjá Búnaðarfélagi Íslands flyttist til hagstofnunar landbúnaðarins og að sparnaður yrði í rekstri búvísindadeildar á Hvanneyri vegna sameiginlegrar nýtingar starfskrafta til starfsemi hagstofnunar og til kennslu.
    Fyrsti kafli frv. fjallar um hagstofnun og aðsetur hennar og hlutverk. Hlutverk stofnunarinnar er síðan ítarlega rakið í 2. gr. frv.
    Í II. kafla, frá og með 3. gr. frv., er fjallað um skipan, stjórn og hlutverk stjórnar hagstofnunar og þar er gert ráð fyrir að stjórnin annist ráðningu forstjóra sem síðan annist daglega stjórn stofnunarinnar í umboði stjórnar. Þar er og fjallað um það samstarf við aðrar stofnanir sem
nauðsynlegt er talið.
    Í III. kafla frv. er fjallað um bókhaldsstofur bænda. Þar er m.a. kveðið á um hlutverk og skyldur búnaðarsambandanna í uppbyggingu og framkvæmd búreikningahalds meðal bænda með stofnun og starfrækslu bóhaldsstofa fyrir bændur. Þar er gert ráð fyrir að færðir séu og gerðir upp búreikningar sem bæði eru ætlaðir til notkunar við leiðbeiningar fyrir viðkomandi bónda, svo og til gagnaöflunar til að mynda gagnagrunn fyrir upplýsingaöflunina í heild. Þar er einnig í þeim kafla kveðið á um eftirlit og umsjónarhlutverk hagstofnunar landbúnaðarins gagnvart

bókhaldsstofunum.
    Verði frv. þetta að lögum falla úr gildi lög um Búreikningastofu landbúnaðarins, nr. 20 frá því í apríl 1967.
    Ég held að engum sem kynnt hefur sér þessi mál, herra forseti, blandist hugur um að mikil þörf er á að betrumbæta bæði söfnun og úrvinnslu hagrænna upplýsinga í landbúnaði. Slíkar upplýsingar eru í vaxandi mæli stjórntæki og undirstaða fyrir skipulagningu og áætlanagerð í greininni. Þá er það og ljóst að þær þjóðhagslegu upplýsingar sem fyrir liggja og stuðst er við um landbúnaðinn í heild sinni byggja á mjög veikum upplýsingagrunni. Ég leyfi mér að fullyrða eftir því sem ég hef skoðað þau mál og m.a. rætt við starfsmenn á Þjóðhagsstofnun og víðar að á þeim bæ og annars staðar þar sem hagrænum upplýsingum landbúnaðarins er haldið til haga, a.m.k. að nafninu til, væru menn fúsir til að viðurkenna að þeim hlutum sé ekki svo vel fyrir komið sem skyldi. Án þess að ég ætli að fara að gera þeim ágætu sérfræðingum sem starfa á Þjóðhagsstofnun og Hagstofu Íslands upp orð eða skoðanir hef ég fengið það staðfest af ýmsum á þeim bæjum að þessum hlutum sé ekki nægjanlega vel fyrir komið og að ónógar og að ýmsu leyti takmarkaðar þjóðhagslegar upplýsingar liggi fyrir um málefni landbúnaðarins.
    Ég hygg því að það sé ekki nokkur vafi á því að með tilkomu laga sem hér er flutt frv. um mundi verða gerð mikil bragarbót í þessum efnum. Það er að sjálfsögðu rétt að taka fram og undirstrika að hér á ekki að setja upp sjálfstæða Þjóðhagsstofnun eða Hagstofu fyrir þessa atvinnugrein heldur er þetta fyrst og fremst fagleg hagstofnun fyrir greinina og sá upplýsingagrunnur sem vonandi yrði lagður með starfi hagstofnunar og bókhaldsstofa á vegum búnaðarsambanda mundi að sjálfsögðu nýtast þeim aðilum sem færa saman þjóðhagslegar upplýsingar og ætlunin er að tryggja sem best og mest samstarf þar á milli. Benda má á í því sambandi að í 3. gr. frv. er gert ráð fyrir því að fulltrúar frá bæði Þjóðhagsstofnun og Hagstofu Íslands skipi menn í stjórn hagstofnunar landbúnaðarins.
    Og ég lýk svo máli mínu, herra forseti, með því að leggja til að þessu máli verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. landbn.