Hagþjónusta landbúnaðarins
Miðvikudaginn 12. apríl 1989

     Málmfríður Sigurðardóttir:
    Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju minni yfir því að þetta frv. liggur hér frammi. Það yrði illt til þess að vita að það fengi ekki nógu góða umfjöllun og næði fram að ganga á þessu þingi. En það er nú með það eins og fleiri mál núna að það er nokkuð seint á ferðinni til að búast megi við að það fái eins rækilega og vandaða umfjöllun og það þyrfti. Hins vegar sýnist mér í fljótu bragði, þó ekki hafi verið langur tími til að kynna sér þetta eins og þyrfti, að þarna sé um margt þarft og gott rætt.
    Landbúnaðurinn hefur nú um árabil átt undir högg að sækja á ýmsum sviðum og ýmis þjóðfélagsöfl hafa sætt hverju færi að gera þessa atvinnugrein tortryggilega í augum þjóðarinnar. Þess vegna er mikilvægt, að mér finnst, að komið sé á fót óháðri ríkisstofnun sem fjallar um gögn, um afkomu þessarar atvinnugreinar á opinberan og hlutlausan hátt. Því aðeins verða niðurstöðurnar marktækar í augum almennings og allra þeirra sem málið varða. Bændasamtökin hafa um árabil sent frá sér ályktanir um nauðsyn þess að koma slíkri hagstofnun á fót þar sem hægt væri að ganga á einum stað að hagtölum landbúnaðarins og upplýsingum og staðreyndum um landbúnaðarmál. Ég tel það mjög mikilvægt að þetta sé samræmt á einum stað því að upplýsingar og staðfestar hagtölur eru undirstaða allra áætlana í hverri grein. Slík gagnastofnun gæti svo séð um úrvinnslu þeirra tölulegu staðreynda sem safnast til hennar.
    Ég held einnig að hagrannsóknir í landbúnaði sem ætlast er til að þessi stofnun geti haft með höndum eða a.m.k. leggi grunninn að sé eitthvert brýnasta verkefni sem bíður í þessari atvinnugrein því eins og segir í grg. er líklegt að fé sem yrði lagt í þennan þátt mundi skila sér fljótlega aftur. Það eru aftur mín orð að í rauninni er ekki hægt að segja annað en að það sé fullkomlega ámælisvert að slíkar rannsóknir skuli aldrei hafa farið fram hér með markvissum hætti. Áreiðanlega væri margt með öðrum hætti í landbúnaðinum nú og í landbúnaðargreinum ef á þeim málum hefði verið tekið, við skulum segja þó ekki væri nema fyrir um 20 árum síðan, þó ekki sé farið lengra aftur.
    Hlutverk hagstofnunarinnar er að sjá um samræmingu í bókhaldi m.a., bókhaldi landbúnaðarins. Búreikningastofa landbúnaðarins hefur séð um þau mál hingað til en hún yrði þá væntanlega lögð niður. En það er nauðsynlegt að bændur hafi aðstoð og leiðbeiningu í þessum málum, ekki síst í ljósi þess að þegar virðisaukaskattur verður tekinn upp má búast við að bændur séu í rauninni bókhaldsskyldir og þá þurfa þeir visst aðhald og aðstoð. Margir bændur, ekki síst einyrkjar, hafa takmarkaðan tíma til að sinna flóknu reikningshaldi og ekki kannski alltaf þá bókhaldsþekkingu sem þarf til. Þess vegna er þetta mjög mikilvægt fyrir þá að einhver stofnun hafi á hendi samræmingu á bókhaldinu til að tryggja að niðurstöðurnar séu marktækar.
    Ég hefði viljað tala lengra mál um ýmsa þætti frv. og ég vænti þess að það gefist tími til þess þó seinna

verði. En eins og ég sagði áðan þá er skammt síðan það kom á okkar borð og ég hef ekki haft tök á að kynna mér ýmsa þætti þess eins vel og ég hefði þurft að gera. Í fljótu bragði finnst mér að miðað við verkefni þau sem stofnuninni eru ætluð í frv. mundi e.t.v. þurfa fleiri starfsmenn en það kemur þá trúlega fljótlega í ljós. Efasemdir mínar eru líka komnar til vegna tregðu fjárveitingavaldsins til að heimila stöðugildi við sumar ríkisstofnanir þó að ekki sé kannski unnt að uppfylla skyldur stofnunarinnar með þeim stöðum sem heimilaðar eru. Síðan fá þær kannski ámæli fyrir það að sinna ekki sínum skyldum eða fara að öðrum kosti fram úr fjárlögum. Hvorugt er góður kostur.
    Mér sýnist að hér sé það sett upp nokkuð raunhæft hver kostnaðurinn muni verða við þetta en það er eitt sem vekur athygli mína í því að ég sé hvergi gert ráð fyrir byggingarkostnaði eða húsnæði fyrir þessa stofnun. Ég vildi mega spyrja hvort fyrir hendi sé húsnæði á Hvanneyri. Það er í rauninni fleira sem þyrfti að ræða um í því sambandi. En ég vil lýsa ánægju minni með að þessari stofnun skuli ætlaður staður á Hvanneyri þar sem nú fer fram á eina staðnum á Íslandi háskólanám í búvísindum. Búvísindadeild hlýtur að verða styrkur að því að hagdeildin sé á staðnum. Það gefur tilefni til eflingar kennslu í hagrænum þáttum og samnýtingar á starfskröftum þessara stofnana sem ég held að sé líka mikilvægt og að þær séu í sem bestum tengslum hvor við aðra.
    En alveg sérstaklega vil ég fagna því að þarna er tekið skref í þá átt að koma ríkisstofnun fyrir á landsbyggðinni. Það er einkennileg tregða sem ríkir í þeim málum nú á tölvuöld þegar auðvelt er að koma upplýsingum á milli landshluta og stofnana. Það er eins og allar þessar stofnanir sæki mjög fast á einn stað og sé erfitt að koma þeim þaðan. Stofnun sem fjallar um landsbyggðina og tengist henni á auðvitað að vera á landsbyggðinni þar sem rætur hennar eru og einkum þar sem kennsla fer fram í þeim þáttum sem hún tekur til. Ég hef ekki enn á þó nokkuð langri ævi náð því að skilja nauðsyn þess að höfuðstöðvar bændasamtakanna og landbúnaðarins þurfi allar að vera á einum stað við Hagatorg í Reykjavík.