Fyrirspyrjandi (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að spyrja hæstv. samgrh. um þá þál. sem Alþingi gerði á síðasta þingi þar sem ályktað er svo: ,,Alþingi ályktar að fela samgrh. að láta gera kostnaðaráætlun um gerð vegar með suðurströnd Reykjanesskaga milli Þrengslavegar við Þorlákshöfn og Grindavíkurvegar. Niðurstöður þeirrar athugunar skulu liggja fyrir við endurskoðun vegáætlunar á næsta Alþingi.``
Undir þetta mál var vel tekið á síðasta þingi. 1. flm. þess var Níels Árni Lund. Það eru mörg rök sem mæla með því að þarna verði gerður varanlegur og vel uppbyggður vegur með suðurströnd landsins. Það er í fyrsta lagi það, eins og segir hér í þál., að þar muni opnast nýjar samgönguleiðir á milli héraða, það mundi stytta leið frá Suðurlandsundirlendi til Suðurnesja um 30--50 km sé horft til þeirrar miklu umferðar. Þetta mundi auðvelda okkur Sunnlendingum að taka hina mörgu erlendu ferðamenn, sem fyrst og fremst eru í fyrsta áfanga að hugsa til Suðurlands, beint inn á okkar svæði. Það mundi líka verða til þess, eins og segir í þáltill., að minnka umferð á Reykjanesbraut sem mjög er kvartað yfir og hættuástandi á henni. Síðan er það hitt, sem er mjög mikilvægt, að hinn forni Selvogshreppur hefur nú sameinast Ölfushreppi og á þessari leið er Selvogsheiðin sem er snjóþung. Ég býst við að nýr vegur lægi sunnan hennar og þar með væri mikill vandi leystur. Þess vegna er mér það mikið kappsmál og vænti þess að þessi athugun liggi fyrir hjá samgrn. og hafi farið fram. Heimafólk spyr eftir þeim niðurstöðum.