Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir svör hans. Það er gott að fá það afdráttarlaust úr hans munni að hann telur að matvæli séu hærri að kostnaði hérlendis en í nágrannalöndum okkar. Mér fannst þó öllu verra að heyra að hann hafði engar markvissar aðgerðir eða ráðstafanir í huga til að draga úr þessum mismun eða kostnaði sem ég tel að sé nauðsynlegt að gera.
Ég tel að matarskattur sé ein af ástæðunum fyrir þessum mismun. Þær eru auðvitað fleiri. Ein af ástæðunum er einnig að laun eru hér hlutfallslega lægri miðað við matvælakostnað en gerist meðal nágrannalanda okkar.
Það var áhugaverð sú tafla eða þær upplýsingar sem hann lagði á borð fyrir okkur. Mig langar sérstaklega að beina athygli manna að mismun á verðlagi í Glasgow og Reykjavík. Þann mismun þekkjum við, eins og kom fram hjá hæstv. ráðherra. Íslendingar hafa gert sér tíðförult til Glasgow einmitt til þess að versla, þó ekki endilega til matvælakaupa, vegna þess að verð er þar almennt lægra en hér. Í Bretlandi, og Glasgow telst til Bretlands, er einmitt ekki skattlagning á matvæli á svipaðan hátt og hér er. Ég held ekki að beinir skattar séu í raun svo miklu hærri þar en hér gerist þó ég hafi engar ákveðnar upplýsingar um það í huga mér. Ég held að stjórnvöld þar í landi, þó margt megi um þau segja, hafi þó a.m.k. haft rænu á því að gera matvæli vel aðgengileg fyrir allan þorra manna þó að margt mætti segja um hag hins almenna launþega í Bretlandi.
Ég vek sérstaklega athygli á mismun á verðlagi á t.d. heilhveitibrauði, appelsínum, tómötum, kjúklingum og svínakótilettum. Þar er geysilega mikill verðmunur miðað við Ísland. Fiskurinn er ódýrari hérlendis sem betur fer, og þykir kannski engum frétt, en margar vörur sem eru tilgreindar eru verulega ódýrari en hér á landi. Það er rétt, eins og hæstv. ráðherra sagði, að Noregur er talið frekar dýrt land.
Ég fagna því að Verðlagsstofnun skuli hyggja á að gera betri og ítarlegri könnun í þessum efnum þó síðar verði á árinu. Ég legg til að Verðlagsstofnun stundi reglubundnar kannanir með þessum hætti til þess að fylgjast með þróun verðlags á matvælum hérlendis miðað við nágrannalönd okkar. Hvað sem líður nágrannalöndunum eru þetta mikilvægar upplýsingar en öllu varðar auðvitað að matvæli séu verðlögð hér þannig að þau vegi ekki of þungt í kostnaði við heimilisrekstur og launþegar eigi þess kost og allur þorri manna í þjóðfélaginu að kaupa sér matvæli án þess að því fylgi íþyngjandi kostnaður.
Ég vona að stjórnvöld hafi einhverjar markvissar aðgerðir í huga varðandi lækkun á kostnaði. Og ég vildi alveg sérstaklega spyrja hæstv. ráðherra: Hyggst þessi ríkisstjórn gera eitthvað til að lækka matarskatt eins og haft var á orði fyrr á þessu ári og jafnvel notað sem beita í umræðum um kjarasamninga á sínum tíma? Síðan hefur ekkert frekar til þessa máls heyrst. En munu stjórnvöld beita sér fyrir því að lækka matarskattinn?