Verð á matvælum
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Að gefnum þessum umræðum um þingsköp vil ég þakka hv. 2. þm. Austurl. fyrir aðstoð við fundarstjórn. Hún er hins vegar óþörf. Fundarstjóri er allvel að sér í lögum um þingsköp og hefur metið þessa umræðu svo mikilvæga að full ástæða sé til að gefa hv. þm. tækifæri til þess að gera athugasemdir svo og ráðherrum.