Egill Jónsson:
Virðulegi forseti. Þau voru virkilega fleyg orð sem hæstv. viðskrh. mælti áðan þar sem hann sagði að það væri ásetningur ríkisstjórnarinnar að draga á alla kanta og enda úr vöruverði hér á landi.
Nú er það svo að á síðustu árum, og það hefur ekki verið dregið inn í þessa umræðu fyrr, hefur verð á framleiðsluvörum til bændanna í landinu, bæði mjólk og kjöti, farið lækkandi ár frá ári. Á sama tíma hefur verð á þessum sömu vörum farið hækkandi til neytenda. Nú er það svo að það er hæstv. viðskrh. sem stjórnar þeim aðgerðum. Það þurfa til að koma heimildir frá Verðlagsstofnun sem hann stjórnar til þess að sú þróun geti átt sér stað. Aldrei hefur orðið jafnmikil breyting í ógæfusamlega átt í þessum efnum og á sl. hausti. Þetta er staðreynd málsins. Þetta er aðferðin sem hæstv. viðskrh. notar til þess að draga sem allra mest úr vöruverði hér á landi. ( Viðskrh.: Verðlagning á búvöru fer eftir búvörulögum, heyrir ekki undir viðskrh.) Verðlagningin? Ef ég má svara þessu fer hluti af henni fram undir forsæti verðlagsstjóra sem lýtur forræði viðskrh. ( Viðskrh.: Það er samkvæmt sérstökum lögum.) Það er nákvæmlega sama hvaða lög það eru. Það eru staðreyndir málsins.