Verð á matvælum
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
    Ég þakka hæstv. forseta fyrir að leyfa mér að gera örstutta athugasemd og ég þakka hv. þm. öllum og ráðherrum sem hafa tekið þátt í þessari umræðu. En vegna þess sem kom fram í henni vil ég fyrst og fremst taka það fram að landbúnaðarvörur eru að mínu viti nær alls staðar niðurgreiddar í Evrópulöndum. Það er engin frétt. Við erum ekkert sérstök að þessu leyti hér á Íslandi. En samt tekst að halda matvælaverði og það á nauðsynjum í lágmarki víða annars staðar.
    Yfirbygging verslunar og milliliða er ekki síst vegna ráðstafana stjórnvalda. Því skulum við ekki gleyma. Það er ekkert náttúrulögmál sem leyfir þeim að bólgna út.
    Lífskjör í Bretlandi kunna að einhverju leyti að ráðast af þeim þáttum sem hæstv. viðskrh. nefndi. Og víst ráðast kjör manna af fleiru en krónum eins og hv. 9. þm. Reykn. sagði. En þegar minnst er á tekjur Íslendinga og að þær séu betri en annars staðar megum við aldrei gleyma því að að baki þessum tekjum liggur lengri vinnudagur en í flestum öðrum nágrannalöndum okkar. Hér vinnur fólk lengri vinnudag til að afla þessara tekna en launþegar í nágrannalöndunum.
    Hv. 5. þm. Suðurl. minntist á verðlagið í Osló, að það væri jafnvel hærra en hér, og varð kannski svolítið glaður við, ég veit það ekki. En þá mega menn ekki gleyma því að laun í Osló eru hærri en hér til að mæta þessum matvælakostnaði. Það er sama hver skýringin er. Það verður að draga úr þessum háa matvælakostnaði hér á landi og það er skylda stjórnvalda að beita sér fyrir því og finna til þess leiðir.
    Ein af þeim leiðum sem fara má til að byrja með er að gera vandlega könnun eins og boðuð hefur verið, en þá verður líka að gæta þess við gerð hennar að taka tillit til allra þeirra þátta sem hafa áhrif á málið, t.d. eins og kostnaðarhlutdeildar matvæla í heimilisrekstri, tekjuskatts og annars sem kemur málinu við.