Sundurliðun símareikninga
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Fyrirspyrjandi (Matthías Á. Mathiesen):
    Virðulegi forseti. Í tíð minni sem samgrh. fól ég Póst- og símamálastofnuninni að vinna að því að símnotendur gætu fengið sundurliðaða símareikninga sína samkvæmt ósk þeirra. Þetta er enn ekki orðið að veruleika. Þess vegna hef ég leyft mér að spyrja núv. hæstv. samgrh.:
    ,,Hvenær má búast við að símnotendur geti fengið sundurliðaða símareikninga samkvæmt óskum þeirra?``