Stefán Valgeirsson:
Virðulegi forseti. Á þskj. 673 er fsp. til samgrh. um jöfnun símagjalda frá frú Auði Eiríksdóttur sem átti hér sæti á Alþingi í minni fjarveru. Spurningin er um það hvernig verði staðið að jöfnun símakostnaðar í landinu.
Tilefni þessarar fsp. er m.a. að í þessari merku bók, þ.e. í málefnasamningi ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar, stendur á bls. 9:
,,Gerðar verði ráðstafanir til jöfnunar á flutningskostnaði og kostnaði við síma.``
Það hefur verið mikil umræða um jöfnun símakostnaðar. Fyrst þegar sjálfvirku stöðvarnar voru settar upp í strjálbýlinu voru settar stöðvar svo að ég taki dæmi á Hrafnagili og Árskógsströnd. Það var gerð krafa til þess að þessi svæði, t.d. út frá Akureyri, bæru sama símagjald og það var ekki fyrr en þeir í Fnjóskadal fengu síma að þá voru þeir tengdir við Akureyri og þó að póst- og símamálastjórnin væri búin að segja að ekki væri hægt að gera þetta var það gert, þ.e. að svæðin sem eru í kringum hvern þéttbýlisstað borgi sama símagjald. En hér á suðvesturhorninu, þar sem er meira en helmingur af landsbúum, er borgað sama gjald. Í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar var því heitið að stíga skref í jöfnunarátt á mörgum sviðum, m.a. þessu, og því er þessi fsp. fram borin.