Jöfnun símagjalda
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Kristín Einarsdóttir:
    Virðulegi forseti. Ég mun aðeins gera örstutta athugasemd. Ég fagna því að það skuli vera stefnt að því að jafna símkostnað um landið. Það þarf varla að taka fram hér hversu erfitt er fyrir marga sem búa úti á landi að þurfa mjög oft að sækja þjónustu til Reykjavíkursvæðisins í gegnum síma. Það er þó eitt skref sem mætti taka strax í því sambandi og það er að setja þjónustustofnanir ríkisins á landsnúmer þannig að fólk sem þarf að ná til Reykjavíkur í gegnum síma þurfi ekki, ef bið er löng, að kosta miklu til þegar það er að hringja hingað til að leita eftir þjónustu hjá þeim stofnunum sem hér eru. Ég vil bara taka undir það, sem hér hefur komið fram, að það er nauðsynlegt að jafna símkostnað á landinu því að það dregur úr misrétti ef símkostnaður er ekki mismunandi eftir landsvæðum.