Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Virðulegur forseti. Mér er ánægja að því sérstök að tala fyrir hönd okkar, mín og menntmrh., sem erum hér staddir, að við viljum mjög gjarnan beita okkur fyrir því sem hv. fyrirspyrjandi var að fjalla um. Og ég vil lýsa því yfir við fyrirspyrjanda að ég skal taka þetta mál sérstaklega upp í ríkisstjórninni og inna þá ráðherra aðra sem ég nefndi og vissulega eiga að fjalla um þetta efni einnig eftir því hvernig þessi mál standi.