Úttekt á starfsemi fræðsluskrifstofa
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Ég er sannfærður um að ef þessi fsp. hefði verið borin fram á hv. Alþingi fyrir tveimur árum hefði verið aðeins fleira í salnum en nú er þegar fsp. er svarað.
    Hv. 7. þm. Reykn. leggur fram fsp. til menntmrh. um niðurstöður úttektar á starfsemi fræðsluskrifstofa landsins. Það er fyrst spurt: Hafa niðurstöður úttektar á fræðsluskrifstofum landsins, sem menntmrn. lét gera í ársbyrjun 1987, verið kynntar formönnum fræðsluráða?`` Svarið er: Nei, það hefur ekki verið gert fyrr en nú að fræðsluráð í Norðurlandi eystra, formaður þess, óskaði eftir því fyrir tveim, þrem vikum að fá þessa skýrslu. Menntmrn. sendi hana strax formanni fræðsluráðsins í Norðurlandi eystra og sömuleiðis hefur skýrslan af sama tilefni verið send formönnum fræðsluráða og fræðslustjórum í öllum öðrum fræðsluumdæmum.
    Í öðru lagi: ,,Hefur skýrsla um þessa úttekt verið skilað?`` Svarið er: Já. ,,Ef svo er mun ráðherra beita sér fyrir því að henni verði dreift til alþingismanna?`` Svarið er að skýrslan er allmikil að vöxtum. Hún er satt að segja svo mikil að vöxtum að við höfum ekki séð ástæðu til þess að láta fjölfalda hana í því skyni að dreifa henni á borð hvers alþingismanns. Hins vegar mun ég nú með mikilli ánægju afhenda fyrirspyrjanda eintak af skýrslunni, sömuleiðis skrifstofu Alþingis þannig að allir þeir þingmenn sem vilja kynna sér málið geta fengið aðgang að þessu gagni sem frá og með þessari stundu er opinbert gagn.