Sorpbrennslan á Skarfaskeri við Hnífsdal
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Fyrirspyrjandi (Kristín Einarsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherra svör hans þó að ég telji ekki nóg að gert með þeim aðgerðum sem þarna er talað um. Það er alveg rétt að það er slæmt að það þurfi að koma tilskipanir að sunnan eins og hv. 2. þm. Vestf. talaði um hér áðan, en það virðist því miður vera svo að þarna hlusta þeir sem á málum halda ekki á raddir fólksins. Ég er hér með blaðaúrklippur úr vestfirskum blöðum, m.a. Bæjarins besta, lesendabréf sem þar birtast, og allir eru mjög áhyggjufullir út af þessu.
    Ég vil benda á að vatnsból Ísfirðinga og Hnífsdælinga eru opin. Mengunin getur borist í vatnsbólin. Þetta er mjög hættulegt. Það er ekki nóg að hafa gott og fallegt sjúkrahús ef vatnið sem þar er notað er meira og minna mengað. Og ég tek það fram, ég las það hérna áðan, að umhverfis- og náttúruverndarnefnd Ísafjarðar hefur eindregið lagst gegn sorpbrennslunni og fólk almennt er orðið mjög þreytt á vatnsmálum þar fyrir vestan og hefur meira að segja talað um að vatnið sé ekki baðhæft, hvað þá heldur neysluhæft. Ég held því að það væri ráð að hlusta á fólkið sem býr á þessum stöðum en fara ekki eingöngu eftir því hvort um dýrar lausnir er að ræða. Ég sé hlynnt því að leitað verði varanlegra lausna, eins og hæstv. ráðherra talaði um hér áðan og ég veit sannarlega að það er erfiðleikum bundið þarna að urða rusl eða koma því fyrir annars staðar. Hins vegar er mér kunnugt um það að aðilar hafa boðist til þess, m.a. frá Hollustuvernd ríkisins, að hjálpa Vestfirðingum ef þeir vilja til að leita leiða og hafa bent á leiðir, skammtímalausnir, meðan fundnar eru varanlegar lausnir á þessu vandamáli. Og varðandi það að Hnífsdælingar eigi enn einu sinni að sýna biðlund, þá held ég að þeir séu búnir að sýna alveg ótrúlega biðlund. Fólk er orðið langþreytt á þessu máli. Börn geta ekki verið úti að leika sér. Það þarf að taka þau inn. Það var t.d. ein kona sem var með barn úti í barnavagni sem var ljós eða hvítur. Hann var allur orðinn flekkóttur og barnið og sængurfötin þannig að það er ekki beint fýsilegt að setja börn út við þessar aðstæður. Þvottur er allur orðinn flekkóttur eftir daginn þannig að fólk þarf oft og iðulega að þvo aftur þvottinn sem hefur verið hengdur út um morguninn ef vindátt er inn dalinn eins og hún er ríkjandi þar fyrir vestan. Ég held að það ætti að hlusta betur á fólkið á þessum stöðum og áhyggjur þess og þó svo að ekki hafi orðið mikið um krabbamein og fósturlát getur orðið meira um það ef þetta ætlar að halda áfram á þennan hátt. Ég skora á hæstv. heilbrmrh. í samvinnu við heimamenn að vinna bug á þessum vanda og það strax og að sjálfsögðu einnig að leita varanlegra leiða. Hæstv. ráðherra benti á að reglugerðin sem vitnað var í er frá 1985 þannig að það er drjúgur tími sem hægt hefði verið að nota til að leita leiða til þess að leysa þennan vanda. Ég lít alls ekki á það sem neina lausn að leita bara að varanlegum leiðum í þessu sambandi. Það verður að gera eitthvað nú þegar.