Sorpbrennslan á Skarfaskeri við Hnífsdal
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Hæstv. forseti. Það var aðeins örstutt. Ég vil fyrst taka undir það með hv. 2. þm. Austurl. Hjörleifi Guttormssyni að þessi mál eru því miður víða í ólestri eða ekki í nógu góðu ásigkomulagi og staðreyndin er sú að víðast hvar eru þessi mál þannig vaxin að lausnirnar eru dýrar. Það er erfitt smáum sveitarfélögum að standa svo að sorplosun að vel sé og í samræmi við þau lög og þær reglur sem við höfum sett okkur varðandi þessi mál og mengunarhættu af sorplosun.
    Ég held að það form að urða sorp, jafnvel þótt landrými sé fyrir hendi, sé ekki góð lausn til lengri tíma. Ég álít að það sé ekki skynsamlegur kostur nema þá landslagsaðstæður séu alveg með sérstökum hætti. Menn eigi fremur að reyna að leita lausna um eyðingu á annan hátt, með brennslu, en sú leið er auðvitað dýr. Þess vegna kann að vera að ríkið eða hið opinbera verði að koma til aðstoðar í einhverjum mæli þar sem úrlausnirnar eru hvað dýrastar og erfiðastar fyrir sveitarfélögin, en það á ég von á að komi einmitt upp í umræðum um lausnina á Ísafirði og Hnífsdal og þá komi í ljós hvort menn finna þar einhverja leið sem mögulegt er að framkvæma, auðvitað helst sem allra fyrst.
    Vegna þess sem kom síðan fram í lokaorðum hv. fyrirspyrjanda, 12. þm. Reykv., vil ég segja það, og ég nefndi það reyndar líka í svarinu áðan, að við höfum auðvitað bráðabirgðalausn í huga einnig. Ég er sammála því að þetta er búið að bíða lengi. Ég geri ráð fyrir því að bréfaskriftir og samskipti hafi farið fram á þessum árum, 1985---1988 eða 1989, og að þessi umræða sé ekkert að byrja núna þó að ég þekki ekki þá sögu. En það er alla vega ljóst að það er verið að vinna að málinu í dag og það er sem sagt komið á góðan rekspöl, vona ég, þar sem að þessu hafa nú komið skipaðir fulltrúar frá bæjarráði Ísfirðinga og fulltrúar ráðuneytis og Hollustuverndar. Og ég vil a.m.k. ekki liggja undir því að ráðuneytið eftir að ég kom þar til starfa hafi ekki hlustað á raddir fólksins hvað þetta varðar því að við höfum einmitt verið að vinna að þessu nú og þó að við höfum farið fram á það við þá sem hafa sent okkur undirskriftalista eða bænaskjal að þeir bíði enn um sinn vona ég að það þurfi ekki að verða löng bið, að við finnum fljótt einhverja lausn á þessu ástandi sem þarna er við að glíma og þá hugsanlega bráðabirgðalausn ef varanleg lausn tekur óviðunandi langan tíma.