Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Ég vil upplýsa hv. þm. um að kl. 2 hefst fundur í sameinuðu þingi og þá mun hv. 5. þm. Vesturl. flytja þinginu yfirlýsingu. Að öðru leyti verður þinghald eins og gert hafði verið ráð fyrir. Ég vil taka fram að hv. 5. þm. Vesturl. hefur fengið tíma samkvæmt fyrri málsgr. 32. gr. laga um þingsköp, þ.e. hálftíma. Að öðru leyti mun þinghald fara fram í dag eins og dagskrá gerir ráð fyrir. Hugmyndin er að hæstv. utanrrh. geri grein fyrir skýrslu sinni um kafbátsslysið við Bjarnarey um þrjúleytið.