Júlíus Sólnes:
Hæstv. forseti. Með bréfi dags. 12. apríl 1989 hafa tveir þingmenn Borgfl., þeir hv. þm. Hreggviður Jónsson og Ingi Björn Albertsson, sagt sig úr þingflokki Borgfl. og tilkynnt að þeir muni stofna nýjan þingflokk frjálslyndra hægrimanna. Ástæðan er talin vera ágreiningur um stefnumál og meintan stuðning einstakra þingmanna Borgfl. við núv. ríkisstjórn. Þingflokkur Borgfl. harmar þessa ákvörðun sem hann telur ekki vera á rökum reista.
Borgfl. var stofnaður á örlagastundu vorið 1987 þegar hópur fólks kom til liðs við Albert Guðmundsson sem hafði orðið fyrir ómaklegum árásum af hálfu fyrrum samherja sinna og verið hrakinn úr embætti ráðherra. Borgfl. vann glæsilegan kosningasigur og fékk sjö þingmenn kjörna á grundvelli stefnuskrár sinnar og þeirra hugsjóna sem flokksmenn sameinuðust um í upphafi. Þar er efst á blaði virðing fyrir einstaklingnum, skoðunum hans og sjónarmiðum, að einstaklingurinn skuli ekki þurfa að líða fyrir skoðanir sínar innan flokksins og vera frjáls til að standa eða falla með þeim án þess að vera beittur þvingunum og flokksaga eins og Albert Guðmundsson mátti þola.
Þingmenn Borgfl. hafa hingað til borið gæfu til að starfa saman í þeim anda sem kemur fram í stefnuskrá flokksins, stefnu mannúðar og mildi. Skilyrði sem þau að heimilt sé að víkja þingmanni úr þingflokknum fyrir skoðanir hans og að þingmenn eigi að skrifa undir yfirlýsingu um að þeir harmi afstöðu sína til einstakra mála og viðurkenni mistök sín eru ekki í samræmi við þá stefnu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir af hálfu formanns Borgfl. og annarra stuðningsmanna flokksins hefur ekki tekist að sætta þessi mismunandi sjónarmið og ég vil ítreka það að allt frumkvæði til þessarar sáttatilrauna hefur verið af hálfu formanns Borgfl. og ýmissa annarra stuðningsmanna flokksins.
Þingflokkur Borgfl. hefur frá upphafi verið reiðubúinn að ræða við alla stjórnmálaflokka um ríkisstjórnarsamstarf á grundvelli stefnuskrár flokksins. Um þetta atriði getur ekki verið ágreiningur.
Undir þessa yfirlýsingu, sem er samin á Alþingi 13. apríl 1989, rita Júlíus Sólnes, formaður Borgfl., og Óli Þ. Guðbjartsson, formaður þingflokks Borgfl.