Friðrik Sophusson:
Virðulegur forseti. Það hljóta að teljast mikil tíðindi þegar stofnaður er nýr þingflokkur eins og gerst hefur í dag og við höfum orðið vitni að. Ég vil leyfa mér að árna hinum nýja þingflokki heilla í starfi, þingflokki frjálslyndra hægrimanna, og fyrir hönd þingflokks Sjálfstfl. vonast ég eftir góðu samstarfi við hinn nýja þingflokk í andstöðu við óvinsælustu ríkisstjórn sem hér hefur nokkurn tíma setið.