Kjararannsóknir
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Kristín Einarsdóttir:
    Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. félmn. Sþ. fyrir afgreiðslu þessa máls. Samþykkt þessarar tillögu felur í sér að skráðar verði á einfaldan hátt upplýsingar til að einfalda og bæta kjararannsóknir. Með því verður hægt að átta sig betur á því fyrir hvers konar vinnuframlag laun eru greidd, svo sem dagvinnu og yfirvinnu.
    Ég endurtek þakkir mínar til hv. félmn. og vona að tillagan verði samþykkt hér á Alþingi.