Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):
Frú forseti. Þessi till. til þál. var flutt hinn 5. des. sl. af Evrópuráðsnefnd Alþingis, sex þingmönnum, aðalmönnum og varamönnum í sendinefnd á þingi Evrópuráðs. Tillagan kom hins vegar á dagskrá fyrst nú sl. mánudag. Ég fer ekki orðum um það frekar. Ég hef kannað það í prentuðum dagskrám þingsins í vetur að það mun rétt vera að hún hefur ekki verið á dagskrá tekin fyrr. En það eru ástæður fyrir því að ég hef ekki sérstaklega knúið á um það nema til þess eins að gefa tiltekna skýringu.
Tillagan var á sínum tíma flutt í samræmi við sameiginlega ákvörðun þeirra varaforseta Evrópuráðsins sem voru frá löndum er vegabréfsáritunarskyldan bitnaði á. Forseti Evrópuráðsþingsins, Louis Jung, hafði beitt sér mjög fyrir því að létta þessari skyldu af þeim löndum, enda var hér um að ræða mismunun milli Evrópuríkja. Framkvæmd þessarar reglu var líka andstæð þeirri stefnu Evrópuríkja að færa þau nær hvert öðru, auka samstöðu og draga úr áhrifum landamæranna. Á hinn bóginn höfðu ríkisstjórnirnar sjálfar sýnt minni áhuga en þingmennirnir og þess vegna var tillagan flutt til þess að skora á þær að beita sér.
En frú forseti. Síðan þessi tillaga var flutt hefur mikið vatn runnið til sjávar. Tillagan fól í sér áskorun á ríkisstjórn Íslands að beita sér í þessu máli gagnvart ríkisstjórn Frakklands. Sú síðarnefnda varð hins vegar fyrri til og samþykkti nokkrum dögum eftir að tillögur þessar voru lagðar fram í þjóðþingum viðkomandi ríkja að létta af þessum hömlum. Þess gerist því ekki lengur þörf að ónáða ríkisstjórnina með þessu máli, enda hefur hún í mörgu öðru að snúast.
Af þessum ástæðum, frú forseti, legg ég ekki til að þessu máli verði vísað til nefndar, en dreg hins vegar tillöguna til baka í samræmi við heimild í 41. gr. þingskapa. En þessari skýringu hef ég viljað koma á framfæri.