Flm. (Guðrún Helgadóttir):
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingflokksformönnum fyrir að fallast á að þetta mál fengi að fara á dagskrá í dag, en eins og allir vita er það seinna til komið en fjölmörg önnur mál. Fyrir það vil ég þakka.
Hér er um að ræða till. til þál. um heimild til handa forsetum Alþingis til að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg. Texti tillögunnar er stuttur og hljóðar, með leyfi hæstv. forseta, á þennan veg:
,,Alþingi ályktar að heimila forsetum Alþingis að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg og láta gera nauðsynlegar lagfæringar á húseigninni ef af kaupnum verður.``
Greinargerðin er einnig stutt þar sem málið hafði verið ítarlega kynnt fyrir hv. þm. Ég ætla, með leyfi virðulegs forseta, að lesa greinargerðina:
,,Á undanförnum árum hefur Alþingi orðið að dreifa starfsemi sinni í æ fleiri húseignir í nágrenni Alþingishússins til að mæta aukinni þörf á þjónustu og húsrými. Starfsemin fer nú fram í sjö húsum utan Alþingishússins og það gefur auga leið að þessi þróun er afar óheppileg. Þar nægir að nefna sívaxandi rekstrarkostnað og lélega nýtingu á mannafla. Meðan nýbyggingarmál Alþingis eru í biðstöðu vegna efnahagslegra aðstæðna í þjóðfélaginu hefur athyglin beinst að öðrum úrræðum til að ráða bót á brýnustu þörfinni og koma skipulagsmálunum í betra horf. Í því skyni létu forsetar Alþingis kanna hvort kaup á Hótel Borg gætu reynst æskilegur kostur fyrir Alþingi. Könnunin leiddi í ljós að náist viðunandi samningar um kaup á húseigninni sé ráðin bót á brýnasta húsnæðisvanda Alþingis næstu árin en það auðveldar til mikilla muna þá endurskipulagningu á starfsemi Alþingis sem nú er unnið að`` og lýkur þar greinargerð.
Eins og hv. alþm. er kunnugt fólu forsetar Alþingis fjögurra manna nefnd, sem í áttu sæti Sigurður Þórðarson vararíkisendurskoðandi, sem var formaður nefndarinnar, Gunnar Ingibergsson, eftirlitsmaður með húsakosti Alþingis, Dan S. Wiium fasteignasali og Gunnar Pálsson verkfræðingur, að kanna hvort kaup á þessu stóra og mikla húsi hér við hliðina á okkur væri fýsilegur kostur fyrir þingið eða ekki.
Þessum hópi manna var falið að líta sérstaklega eftir því að gera úttekt á ástandi húseigna Hótel Borgar, leggja mat á verðmæti fasteignarinnar, kanna nýtingu húsnæðisins fyrir starfsemi Alþingis, meta nauðsynlegar breytingar og kostnað því samfara að húsnæðið henti Alþingi, meta áhrif á rekstrarkostnað Alþingis ef fasteignin yrði keypt og kanna breytingu á notkun annarra húseigna Alþingis.
Hæstv. forseti. Það liggur ljóst fyrir að hér er einungis verið að fara fram á að forsetar fái umboð til að ganga til samningaumleitana við núverandi eigendur Hótel Borgar. Í fyrsta lagi á málið eftir að fara til hv. fjvn. til umfjöllunar þar og ef til samninga kæmi yrði málið að sjálfsögðu borið undir þingflokka áður en af kaupum yrði.
Ég tel ekki ástæðu til að rekja hér stærð hússins og
hugsanlega nýtingu. Greinargerð um fasteignina og niðurstöðu hópsins mun verða dreift til allra hv. þingmanna og þar sem okkur er nokkuð naumur tími skorinn skal ég ekki eyða tíma í að lesa hana. Ég vil aðeins leggja áherslu á nokkur meginatriði.
Í tilefni af 100 ára afmæli Alþingishússins samþykkti Alþingi árið 1981 ályktun um að það væri bæði viðeigandi og tímabært að bæta húsakost þingsins. Þá var starfsemi þingsins í fimm húsum, nú er hún í átta. Til að mæta þessum vanda var um tvo kosti að velja. Annars vegar var að reisa nýtt alþingishús, hins vegar var að finna einhver þau úrræði önnur sem að gagni mættu koma.
Eins og allir hér inni vita var efnt til samkeppni um nýtt alþingishús og dómnefnd komst að niðurstöðu um hver skyldi hljóta verðlaun fyrir tillögu sína og nokkur undirbúningsvinna hefur verið unnin að hönnun þeirrar byggingar og hafa hingað til farið til þess um það bil 31 millj. kr. Það er hins vegar jafnljóst að ekkert fjármagn er til frekari framkvæmda og er auðvitað leitt til þess að vita, en hér er um að ræða mjög mikla og dýra byggingu sem áætlað er að kosti síðast þegar áætlað var um 2,5 milljarða, og það þarf mikla bjartsýni til að reikna með að það hús rísi innan a.m.k. næstu tíu ára.
Með hugmyndum sem komist hafa á loft um að kaupa Hótel Borg er ekki verið að hafna því að byggt verði yfir Alþingi um alla framtíð, langt í frá. Forsetar eru allir sammála um að gæta beri þess að sjálfsögðu að Alþingi haldi því landi sem það á hér á torfunni ef bjartari tíð skyldi renna upp og þingið hefði ráð á að byggja hús yfir starfsemi sína sem hentaði því frá hönnunarstigi og vitaskuld væri það ánægjulegast. En sá kostur sýnist ekki vera í boði í nánustu framtíð og því hafa forsetar gripið til þess ráðs þar sem svo stóð á að Hótel Borg mun vera föl að leita þessara leiða. Húsið þarfnast ekki gagngerðra breytinga. Við getum nýtt það mjög vel og 42 þingmenn geta fengið þar skrifstofur án þess að til meiri háttar rasks komi auk ýmissar annarrar starfsemi sem vel má koma fyrir í húsinu.
Við teljum því eins og starfshópurinn fýsilegan kost að festa kaup á þessu mikla húsi ef mögulegt er að fá það keypt, og tillit hefur verið tekið til
þess að því verði ekki breytt á þann veg að það sé ekki seljanlegt aftur til sömu nota og þar hafa verið. En það skal tekið fram að þetta gamla og virðulega hús er þannig gert að nær allir veggir í því eru burðarveggir og því afar mikið og erfitt verk að breyta herbergjaskipun án þess að stóreyðileggja húsið þannig að sá kostur hefur verið tekinn að gera sem allra minnst af því.
Þau sjónarmið hafa vissulega komið fram, hæstv. forseti, og skal ég nú stytta mál mitt, m.a. með bréfi frá Miðbæjarsamtökunum nú í dag, sem Guðlaugur Bergmann, formaður þeirra, hefur undirritað, að hér sé Alþingi að ganga fram fyrir skjöldu að leggja sína dauðu hönd á lífið í miðbænum. Þetta held ég að sé afar mikill misskilningur. Við ráðum ekki bót á því að Hótel Borg virðist ekki skila arði sem hótel. Ég held
að við sem skoðað höfum húsið gerum okkur fullkomlega grein fyrir af hverju það stafar. Þetta gamla fallega hús uppfyllir ekki lengur skilyrði nútíma hótelreksturs. Það er alveg ljóst. Til þess er sorglegt að vita og ég get vel skilið áhyggjur manna sem sjá eftir þessum rekstri, en ég er hrædd um að hvorki hv. alþingismenn né neinn annar Reykvíkingur eða aðrir ráði við að reisa þetta gamla virðulega hótel til þess vegs og þeirrar virðingar sem það áður naut, því miður.
Það er hins vegar ýmislegt annað hægt að gera til þess að glæða lífið í miðbænum og ég vil að sjálfsögðu beina þeirri ósk til borgaryfirvalda að því verði sinnt til meiri muna en hingað til hefur verið gert. Skoðun mín er sú að skilyrði þess að mannlíf sé í miðborginni sé auðvitað að hér sé blómstrandi viðskiptalíf eins og áður var, en nú hefur það að mestu flust út úr miðbænum. Hvort hótel verður í hinu gamla húsi Jóhannesar á Borg held ég ekki að breyti miklu um lífið í miðbænum. Ég kannast ekki við að neitt sérstakt mannlíf fari fram vestur við Hagatorg þó að miklu stærra hótel sé þar rekið.
Það er auk þess alrangt, sem fram kemur í þessu bréfi, að engin hótel sé að finna í miðbænum. Ég vil minna menn á eitthvert hentugasta hótel fyrir ákveðna hópa manna, Hótel Holt, sem er hér í miðbænum, og Hótel Saga telst nú nálægt miðbænum, hygg ég, ef við lítum til annarra og stærri borga, auk þess sem ég veit ekki annað en Eimskipafélag Íslands hyggi á stórbyggingu á hóteli einmitt í miðbænum.
Ég held þess vegna að þetta sjónarmið og þessi eftirsjá eftir Hótel Borg sé afar skiljanleg en næstum því algerlega óviðráðanleg. Svona sem dæmi um vandamál Hótel Borgar er það að t.d. eru einungis 17 af 42 hótelherbergjum með salerni og baði. Ég er hrædd um að slíkt ástand sé nú ekki talið nýtískulegt í hótelrekstri.
En hvað um það. Ég tel að Reykvíkingar eigi að geta sætt sig fullkomlega við það að ekki óálitlegri hópur en hið háa Alþingi Íslendinga og starfslið þess taki við þessu gamla húsi ef kaupin gerast svo á eyrinni og tel alveg fullvíst að Alþingi reyni að sýna þessu gamla húsi fullan sóma og sitji það með virðingu.
Forsetar leggja á það mikla áherslu að þetta mál komist sem allra fyrst til hv. fjvn. svo að nefndin fái tækifæri til að fara gaumgæfilega yfir þær niðurstöður starfshópsins sem fyrir liggja og jafnvel kanna málið sjálf og koma í veg fyrir að hér sé verið að flana að neinu. Síðan kemur til samningaumleitana og síðan fá auðvitað að þeim loknum hv. þm. að kynna sér í þaula hvað hér er um að ræða.
Virðulegi forseti. Ég legg til að loknu máli mínu að till. þessi verði send hv. fjvn. til fyrirgreiðslu.