Alexander Stefánsson:
    Virðulegi forseti. Það verður að segjast eins og er að mér finnst áhugi þingmanna ekki vera mikill fyrir því mikla húsnæðismáli Alþingis sem hér er verið að ræða um þar sem svo fáir taka þátt í þessum umræðum.
    Ég verð að segja það alveg eins og er að ég hef ýmsar efasemdir um þessa þáltill. og gæti sjálfsagt fært mörg rök fyrir því sem ég mun ekki gera við þetta tækifæri, en ég segi alveg eins og er að mér finnst þetta ágæta hús og virðulega, Hótel Borg, ekki vera hentugt fyrir starfsemi þingsins miðað við þær skoðanir sem ég hef á starfsemi þingsins og miðað við þær skoðanir sem ég hef á þessu húsi. Eitt er ljóst, sem hér hefur raunar komið fram, að það eru fá hús hér í miðbæ Reykjavíkur sem eru eins óhentug til breytinga og Hótel Borg. Hér hefur komið fram að það er nær hver einasti veggur þar burðarveggur upp úr og niður úr og við vitum hvað það þýðir ef það á að fara að mölva slík hús niður að verulegu leyti. Ég verð að segja að eins og skipan þess húss er mundi ég ekki telja að það verði mjög hentugt fyrir þá starfsemi Alþingis sem er raunverulega þörf á að færa til nútímahátta með þeirri tækni sem nú er orðin, bæði í sambandi við tölvur og aðra slíka þjónustu. Þess vegna er það í mínum huga ekkert spennandi. Ég verð að segja það alveg eins og er að ég tel mig hafa fullt leyfi til að halda því fram að ég vantreysti svona skyndiáætlanagerð sem þarna hefur farið fram og ég hef raunar séð að hluta til miðað við þá reynslu sem við höfum á breytingu á gömlum húsum. Við þurfum ekki annað en líta á þá miklu kostnaðarreikninga sem hafa komið fram í sambandi við það hús sem við stöndum hér í, í sambandi við Þórshamar og mörg fleiri hús hér í kring sem hafa orðið kannski tíu, fimmtán sinnum dýrari hvert atriði þar en áætlun hefur sagt til um.
    Auðvitað er það alveg ljóst og við vitum að svona breytingar, sem mundu fljótlega aukast kröfur um þegar til kastanna kæmi, mundu margfalda þær tölur sem þarna er um að ræða. Mér þætti það ekkert skrýtið þó að kaupverð með þeim breytingum sem kröfur yrðu fljótt gerðar um mundi verða einhvers staðar um 300--400 milljónir.
    En þetta er kannski ekki aðalmálið. Mér finnst að fyrst alþingismenn í umboði þjóðarinnar hafa ekki séð sér fært að byggja á undanförnum áraröðum myndarlegt hús fyrir starfsemi Alþingis heldur farið sífellt í skyndilagfæringar á húsnæði í miðbænum komi vel til greina að skoða fleiri atriði. Ég verð að segja að ég hef alltaf litið á hús Pósts og síma hérna hinum megin við Austurvöll sem æskilegan valkost fyrir starfsemi Alþingis þangað til sú ákvörðun verður endanlega tekin annaðhvort að byggja hér á svæðinu eða að flytja Alþingi til eins og einn hv. þm. sagði hér áðan. Ég held að það hús þjóni miklu betur ýmsu því sem Alþingi þarf á að halda en þetta virðulega hús hérna hinum megin við götuna.
    En ég skal ekki, eins og ég sagði í upphafi, halda langa ræðu. Þar sem það hefur komið fram að gert er

ráð fyrir að vísa þessari till. til fjvn. get ég alveg lýst því yfir að við munum vega og meta kosti og galla þessa máls vandlega. Og auðvitað munum við leita umsagnar eða hafa samráð við skipulagsyfirvöld Reykjavíkurborgar sem er sjálfsagður hlutur og þá borgaryfirvöld í einni setningu því að borgin alveg eins og hvaða sveitarfélag sem væri hefur umsjón með því hvernig starfsemi fer fram í virðingarverðum og mikilvægum húsum. Þegar á að breyta um starfsemi hefur það áhrif á skipulag viðkomandi svæða og þess vegna er ekkert eðlilegra en að hafa samráð við borgaryfirvöld í þessum málum.
    Ég vildi taka þátt í umræðunni til að lýsa því að ég er ekkert sannfærður um það að þarna sé rétt að staðið en mun leggja mig fram um það eins og aðrir fulltrúar í fjvn. að skoða þetta mál vel áður en endanlega ákvörðun verður tekin.